19.12.1964
Efri deild: 35. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 178 í B-deild Alþingistíðinda. (198)

91. mál, ríkisreikningurinn 1963

Ólafur Jóhannesson:

Herra forseti. Ég vil aðeins láta í ljós mína stórkostlegustu furðu yfir þeim vinnubrögðum, sem hér á að viðhafa. Það er ákaflega skiljanlegt, að ríkisstj. liggi stundum á því að fá lög afgreidd, lög, sem hafa að geyma efnisreglur, sem á eftir að fara í framtíðinni. Víð því segir enginn neitt, það skilur hver maður. Það skilur hver maður, að ríkisstj. þurfi að leggja eða leggi áherzlu á t.d. afgreiðslu skattal. eins og söluskattsfrv., það er auðskilið mál. En að hún skuli leggja áherzlu á að hraða samþykkt ríkisreikninga með þeim hætti, sem hér er gert, er meira en ég fæ skilið. Og í því sambandi sakar ekki að gera sér grein fyrir því, hvers eðlis þetta lagafrv. er, sem hér er verið að fjalla um.

Þetta reikningslagafrv. geymir engar efnisreglur, það á ekki að fara eftir neinu í því í framtíðinni. Í hvaða skyni er það lagt fyrir Alþingi? Það á að leggja fyrir Alþingi frv. til l. um samþykkt á ríkisreikningnum til þess að gefa Alþingi kost á því að kanna það, hversu vel hafi verið fylgt þeim áætlunum og fyrirmælum, sem gefin hafa verið í fjárl. og fjáraukal. Það er meiningin og það er eina meiningin með l. um samþykkt landsreiknings.l. um samþykkt landsreiknings þýða það eitt og ekkert annað en syndakvittun til ráðh. fyrir ráðsmennsku hans á fjármálum ríkisins. Það er skylda ráðh. að sjá um, að endurskoðun fari fram með eðlilegum hætti og að frv. til l. um samþykkt á ríkisreikningi sé lagt fram með skikkanlegum hætti og á skikkanlegum tíma. En svo vil ég leyfa mér að halda því fram, að hlutverki ráðh. sé lokið í sambandi við frv. til l. um landsreikning. Þá álít ég, að þingið eigi að taka við og það eigi að segja til um það, hversu langan tíma það telur sig þurfa að hafa til að athuga frv. Það er ekki smekklegt af hæstv. fjmrh. að ganga eftir því, að ríkið gefi sér syndakvittun deginum fyrr en ella. Hann á að láta það um það, hvenær það vill láta slíka syndakvittun í té.

Og hverja þýðingu hefur nú það, að þetta frv. er samþ. nú og afgreitt? Það hefur eina og aðeins eina einustu þýðingu, og það er það, að það er samþykkt fyrir jól, það verður birt sem lög í Stjórnartíðindunum fyrir 1964. En ef það verður dregið að afgreiða það þangað til eftir jól, kemur það í Stjórnartíðindum fyrir 1965, en það verður sama þingið, sem afgreiðir það.

Ráðh. hefur í þessu sambandi algerlega lokið sínu hlutverki, og hann ætti að sjá sóma sinn í því að láta málið algerlega afskiptalaust, láta þingið alveg um það, hvenær það vill afgreiða landsreikninginn og veita honum syndakvittun, og gefa þinginu ríkulegan tíma til þess að athuga það. En hitt er svo augljóst mál, að eina skylda þingsins í sambandi við þetta frv. og ríkisreikningslög er að athuga og kanna reikninginn, og það er öllum ljóst, að þeirri skyldu bregzt þingið með þeim afgreiðsluhætti, sem hér er viðhafður. Og ég verð að segja það, að í ljósi þess, sem ég hef sagt, er mér aldeilis ómögulegt að skilja það, hverja áherzlu fjmrh. leggur á það að fá þetta afgreitt. Hann hefur gert allt, sem af honum verður krafizt, með því að leggja frv. fram. Meira verður ekki krafizt af honum. En ef það er rétt, að það sé hann, sem stendur fyrir þessum vinnubrögðum í fjhn., að fjhn.-menn fái ekki tíma til að athuga frv., þá er það að mínum dómi alger miskilningur á hans hlutverki, alger misskilningur bara, alveg furðulegur, og það er með svona vinnubrögðum verið að kippa stoðunum undan því fjárstjórnarkerfi, sem stjórnarskráin gerir ráð fyrir, þ.e. að þingið leggi línurnar um fjárstjórnina fyrir fram, ráðherrann sjái um framkvæmdina og þingið fái aðstöðu til þess eftir á að kanna, hvernig fjárstjórninni hafi verið hagað, og að því búnu, þegar sú könnun hefur farið rækilega fram, þá gefi það ráðherranum syndakvittun. En að vera að fara fram á það af einum ráðh., að þingið láti sér í té syndakvittun, áður en þingið hefur fengið nokkra aðstöðu til þess að kanna málið, það er alveg — ja, ég vil segja, það er kannske ekki óheyrt, en það er ákaflega óeðlilegt. Þetta hljóta allir að sjá, og nú finnst mér athugandi, hvort meiri hl. n. í þessari hv. d. hefur ekki bolmagn til þess að taka upp skynsamleg vinnubrögð í þessu máli og koma vitinu fyrir hæstv. fjmrh. í þessu efni, ef á þarf að halda.