10.05.1965
Sameinað þing: 51. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2068 í B-deild Alþingistíðinda. (2011)
Almennar stjórnmálaumræður
Jón Þorsteinsson:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Það er einkennandi fyrir þessar umr. sem og fleiri slíkar, að stjórnarandstæðingar gera ákaflega lítið að því að bera gerðir núv. ríkisstj. saman við gerðir þeirrar ríkisstj., sem þeir sjálfir áttu aðild að. Þetta segir sína sögu, enda er meginhluti málflutnings þeirra ýmiss konar tillögur og kröfugerðir í skattamálum, verðlagsmálum, launamálum og efnahagsmálum almennt, sem þeir sjálfir gátu ekki tekið undir eða leyst, meðan þeir höfðu valdaaðstöðu. Stjórnarandstæðingar gera því að vissu leyti meiri kröfur til núv. ríkisstj. en sjálfra sín og skal ég ekki lasta það.
Halldór E. Sigurðsson ræddi hér áðan um margs konar hækkanir á fjárlagaliðum. En hann gleymdi alveg hinni stórkostlegu aukningu á framlögum til almannatrygginga eða félagsmála, sem hækkuðu frá árinu 1958 til 1965 úr 106 millj. kr. í 758 millj. kr., enda gæti ég trúað því, að hann væri sjálfur lítið hrifinn af þessum fjárveitingum.
Það kemur vissulega úr hörðustu átt, þegar framsóknarmenn eru að gagnrýna það, hversu mjög fjárl. hafa hækkað á valdatíma núv. ríkisstj., því að við hverja einustu fjárlagaafgreiðslu hafa þeir sjálfir lagt til, að fjárl. hækkuðu um 200–300 millj., svo að líklega væru fjárl. nú 1.000 millj. hærri, en þau raunverulega eru, ef till. framsóknarmanna hefðu verið teknar til greina.
Ingvar Gíslason talaði um það, að stefna ríkisstj. hefði beðið skipbrot. Það er rétt að athuga þessi ummæli nánar, af því að þau koma frá framsóknarmanni. Hvað sögðu framsóknarmenn um stefnu ríkisstj, í upphafi? Það liggur fyrir og sérstaklega kom það fram í umr. um efnahagsmálin á Alþ. á öndverðu ári 1960. Þá sagði einn framsóknarmaður, sem talaði einna skýrast, en allir aðrir höfðu sömu meiningu, — hann sagði: „Leggja á dauða hönd yfir alla nauðsynlega og réttláta framþróun og uppbyggingu í landinu.“ Og ég get vissulega tekið undir það, að þeir menn, sem álíta, að þetta hafi verið stefna ríkisstj., geti vissulega sagt með sanni, að hún hafi beðið skipbrot.
Fyrir nokkrum vikum sat ég á tali við einn gáfaðasta og víðsýnasta þm. Framsfl., mann, sem er mjög frumlegur og snjall ræðumaður, en þó er sá ljóður á ráði hans, að hann er mjög sjálfstæður í skoðunum og því fær hann aldrei að taka þátt í útvarpsumr. fyrir Framsfl,
Talið barst að frv. ríkisstj. um lækkun tolla, sem þá var til meðferðar á Alþ. Ég kvartaði undan því, að erfitt væri að eiga við þessa framsóknarmenn, það væri sama, hvaða umbótamál ríkisstj. bæri fram, alltaf gætu þeir boðið betur. Nú stæðu þm. Framsfl. upp hver á fætur öðrum, þegar þetta mál var til umr., fullir vandlætingar yfir því, að tollarnir skyldu ekki lækkaðir meira, en frv. gerði ráð fyrir, þó hefði þessum sömu mönnum ekki komið til hugar að lækka neina tolla, þegar þeir sátu sjálfir að völdum. Þm., sem ég ræddi við, hugsaði málið um stund og svaraði síðan meira í gamni en alvöru, að ríkisstj. ætti auðvelt með að koma í veg fyrir yfirboð flokksbræðra hans með því móti að leggja til, að tollarnir á hinum umræddu vörutegundum skyldu lækka niður í ekki neitt eða m.ö.o. afnumdir, þá væri alls ekki hægt að bjóða betur. Við ræddum þetta úrræði um stund í mesta bróðerni, en komumst fljótt að þeirri niðurstöðu, að það mundi eigi duga, því að ef ríkisstj. ætlaði sér að fella alveg niður tolla af einhverjum vörum, mundu framsóknarþm. óðara standa upp og ekki sætta sig við það, heldur mundu þeir krefjast þess, að tollar af þessum vörum yrðu endurgreiddir nokkur ár aftur í tímann, slíkir snillingar væru framsóknarmenn í yfirboðum.
Árið 1960 lagði ríkisstj. á 3% söluskatt í smásölu. Þessari skattlagningu voru framsóknarmenn algerlega andvígir. Í upphafi ársins 1964 var svo söluskatturinn hækkaður upp í 51/2 % og um síðustu áramót var hann hækkaður enn á ný upp í 71/2%. Báðum þessum hækkunum voru framsóknarmenn mjög mótfallnir. Söluskatturinn er nú einn aðaltekjustofn ríkisins og í fjárlögum fyrir árið 1965 er gert ráð fyrir, að tekjur af honum nemi rúmum 900 millj, kr. Tekjur ríkissjóðs af söluskatti á árunum 1960–1965, að báðum meðtöldum, munu nema samtals yfir 2.000 millj. kr. Ef stefna Framsfl. hefði ráðið, hefði ríkissjóður misst af öllum þessum tekjum. En það mega framsóknarmenn eiga, að þótt þeir hafi viljað leysa landsmenn undan því að greiða alla þessa fjárfúlgu í ríkiskassann, hafa þeir ekkert haft á móti því, að ríkisstj. ráðstafaði þessum peningum, sem inn koma fyrir söluskattinn, til nýrra skóla, sjúkrahúsa, hafna, vega, jarðræktarframkvæmda, niðurgreiðslna á vöruverði o.s.frv. og þeir hafa meira að segja talið allt of skammt gengið á sumum þessum sviðum. Ágreiningurinn milli ríkisstj. og Framsfl. um fjármál og fjárveitingar er fyrst og fremst í því fólginn, að ríkisstj. telur ekki unnt að veita stórar fjárhæðir til ýmissa nauðsynlegra og nytsamlegra hluta nema innheimta fé til þess af þjóðinni. En Framsfl. telur hins vegar unnt að eyða fé án þess að afla þess. Ég er viss um það, að ef allar till. Framsfl. á undanförnum árum varðandi skatta, tolla og fjárveitingar hefðu náð fram að ganga, mundi skorta á annað þús. millj. kr., til þess að tekjur ríkissjóðs hrykkju fyrir útgjöldunum á yfirstandandi ári. Svona fjármálastefnu treystir ríkisstj. sér auðvitað ekki til að fylgja.
Höfuðgagnrýni stjórnarandstöðunnar á gerðum ríkisstj. er fólgin í tvennu: Í fyrsta lagi, að ríkisstj. ráði ekki við verðbólguna, í öðru lagi, að kaupmáttur launa hafi minnkað. Ég skal viðurkenna, að fyrra ásökunarefnið er að verulegu leyti réttmætt. En hið síðara hefur við mjög lítil rök að styðjast. Verðbólgan hefur haldið áfram að vaxa í tíð núv. ríkisstj., það er satt. Framsóknarmenn tala gjarnan um óðaverðbólgu, Evrópumet, heimsmet í dýrtíðaraukningu og Eysteinn Jónsson talaði hér áðan um tröllaskref. Svona öfgar eiga vitanlega engan rétt á sér, enda hefur ekkert met verið slegið í þessum efnum í tíð núv. ríkisstj., ekki einu sinni Íslandsmet. Það er sjálfur Framsfl., sem er aðili að Íslandsmetinu. Það var sett árið 1950, en það ár hækkaði verðlagið miðað við vísitölu neyzlu og þjónustu um 40.6% og ég veit ekki, hvaða nafn Eysteinn Jónsson vill gefa slíku skrefi. Árið eftir var Framsfl. einnig í stjórn. Þá hækkaði verðlagið um 21.9%. Það lengsta, sem núv. ríkisstj. hefur hins vegar komizt á einu ári, miðað við almanaksár, er 16.7%. Það er árið 1960. Ég nefni þessar tölur ekki ríkisstj. til afsökunar, heldur til þess að sýna fram á, að Framsfl. hefur af engu að státa í þessum efnum. Enda er það svo, að í stjórnarandstöðunni hefur þessi flokkur aðeins borið fram eina skynsamlega till. í dýrtíðarmálunum, en það er að veita vísitöluuppbætur á sparifé og setja vísitöluálag á skuldir. Flest annað, sem Framsfl. hefur haft til málanna að leggja á undanförnum árum, hefði aukið verðbólguna, enn meir, en raun er á orðin.
Ríkisstj. hefur setið í um það bil 51/2 ár og það er fróðlegt að kanna, hvenær á þessu tímabili verðbólgan hafi aukizt mest, án þess að miða við almanaksárið. Í ljós kemur, að langmest verður aukningin á 8 mánaða tímabili frá 1. júlí 1963 til 1. marz 1964. Þá hækkar verðlagsvísitalan úr 150 stigum upp í 180 stig eða um 20%. Það er augljóst, hver er undirrót þessarar sérstöku verðbólguaukningar. Í upphafi þessa tímabils varð mikil hækkun á launum opinberra starfsmanna. Í kjölfar hennar eða í desember 1963 fengu svo aðrar launastéttir 15% kauphækkun. Afleiðing þessara kauphækkana varð svo veruleg hækkun á landbúnaðarafurðum og öðru verðlagi. Þessar hækkanir eru að mestu leyti komnar inn í vísitöluna og verðlagið í lok tímabilsins hinn 1. marz 1964.
Landsmenn voru yfirleitt sammála um það, að opinberir starfsmenn væru orðnir langt á eftir öðrum stéttum í launakjörum og nauðsyn væri á róttækum leiðréttingum. Hin mikla launahækkun, sem þeim hlotnaðist með kjaradómi 1. júlí 1963, skapaði samt óánægju annarra launastétta í landinu, sem töldu sig þá hafa dregizt aftur úr opinberum starfsmönnum. Því fór skriðan af stað og það tók nokkurn tíma að koma á jafnvægi aftur. Ég fullyrði það, að hvaða ríkisstj. sem hefði setið í landinu, er hefði framkvæmt veigamikla leiðréttingu á kjörum opinberra starfsmanna, hefði orðið fyrir þessari sömu reynslu. Ríkisstj. stóð frammi fyrir þeim vanda að velja á milli þess að viðhalda ranglætinu í launamálum opinberra starfsmanna til þess að hamla gegn aukinni verðbólgu ellegar að leiðrétta launakjörin og taka á sig nýja dýrtíðarskriðu.
Í umr. um verðbólgumálin er nauðsynlegt að líta á þróun þessara mála upp á síðkastið. Þá kemur í ljós, að síðustu 12 mánuðina hefur vísitala neyzlu, vöru og þjónustu aðeins hækkað um 5%. Þetta er langminnsta verðbólguaukningin, sem orðið hefur á einu ári á valdatíma ríkisstj. Enginn vafi er á því, að þessi hagstæða þróun á rót sína að rekja til júnísamkomulagsins í fyrra. En nú er allt undir því komið, að í þeim samningum, sem eru fram undan milli verkafólks, vinnuveitenda og ríkisstj., verði stöðvun verðbólgunnar höfð að leiðarljósi, þótt þar sé vissulega við torleystan vanda að glíma. Gangur málanna hefur verið sá að semja við verkafólk á vorin, bændur á haustin og útvegsmenn og sjómenn um áramótin. Ég held, að það gæti orðið til mikilla bóta, ef unnt væri að slá öllum þessum samningum saman í eitt, láta allar þessar stéttir sitja saman við samningaborðið ásamt fulltrúum ríkisstj. og vinnuveitenda og reyna að semja um öruggan vinnufrið og jafnvægi í verðlagsmálum til tveggja ára í senn.
Þá skal ég víkja að hinu meginásökunarefninu á hendur ríkisstj., fullyrðingunni um, að kaupmáttur launa hafi minnkað. Þá rís spurningin, hvort fremur eigi að miða við atvinnutekjur eða breytingar á kauptöxtum. Í ádeilum sínum miða kommúnistar ávallt við kauptaxtana, af því að það gefur óhagstæðari útkomu fyrir launþegana og sú viðmiðun er líklegri til að skapa óánægju hjá þeim. En þessi viðmiðun er ófullkomin að því leyti, að hún tekur ekki tillit til almennra yfirborgana, aukinna aldurshækkana, tilfærslu milli launaflokka og aukinnar ákvæðisvinnu. Sannleikurinn er sá að þótt aðallega sé miðað við kauptaxtana, kemur í ljós, að hjá flestum stéttum hefur kaupgjaldið hækkað meira ,en nemur hækkun á vísitölu verðlags og þjónustu, nema hjá verkamönnum. Ástæðan fyrir því, að þeir eru lakar settir en aðrir, að þessu leyti, er sú, að á undanförnum 5 árum hafa verkamannafélögin í landinu undir forustu kommúnista samið um 10–20% minni launalækkun, en aðrir hafa fengið. Og það þýðir ekkert fyrir leiðtoga þeirra að ætla sér að kenna ríkisstj. um það, hvernig þeir sjálfir hafa haldið á kjaramálum verkamanna. Í jólaverkföllunum 1963 leitaðist ríkisstj. við að koma á samningum um meiri launahækkun til verkamanna, en þeirra stétta, sem betur voru settar, en þessu sjónarmiði hafnaði Alþýðusambandið algerlega.
Ríkisstj. hefur á valdaferli sínum gert mjög verulegar endurbætur á skattalöggjöfinni.
Tekjuskattur hefur verið afnuminn á almenn um launatekjum, a.m.k. að því er fjölskyldumenn varðar. Persónufrádráttur hjóna með tvö börn verður í ár 144 þús. kr. Fastar reglur hafa verið settar um útsvarsálagningu og persónufrádráttur verið lögboðinn. Einnig hafa útsvarsstigar verið lögboðnir, en þó með þeim frávikum, að sveitarfélögin geta veitt afslátt af þeim eða hækkað þá. Hvert sveitarfélag ræður því, hvaða útsvarsbyrðar það leggur á gjaldendur sína í heild, en Alþ. ákveður aðeins innbyrðis skiptingu milli gjaldendanna eftir tekjuhæð. Lækkun útsvara á lágtekjufólki þýðir óhjákvæmilega aukna útsvarsbyrði þeirra, sem hafa meiri tekjur. Þetta verða menn að gera sér ljóst til að sjá við þeim blekkingum stjórnarandstæðinga, að auknar útsvarsálögur á s.l. ári í Reykjavík og ýmsum kaupstöðum landsins hafi verið sök ríkisstj. og meiri hl. Alþ. Þar er fyrst og fremst við sveitarfélögin sjálf að sakast, sem staðið hafa í miklum og fjárfrekum framkvæmdum og talið sér nauðsyn á að auka verulega útsvarstekjur sínar. Á s.l. ári var persónufrádráttur í útsvari hækkaður talsvert og nú í ár hefur hann verið hækkaður til mikilla muna. Þetta kemur lágtekjufólkinu til góða sem veruleg kjarabót. Persónufrádráttur hjóna með tvö börn verður nú 70 þús. kr. Beri menn þetta svo saman við ástandið á vinstristjórnarárunum, þegar enginn persónufrádráttur til útsvars var lögboðinn og algengt var að leggja útsvar á fólk með 10-20 þús. kr. nettótekjur.
Alþfl. hefur ávallt lagt ríka áherzlu á öflugt skattaeftirlit varðandi beina og óbeina skatta. Á s.l. ári var stofnuð skattarannsóknardeild, sem hefur unnið árangursríkt starf. Nú er með lagasetningu verið að efla þessa deild, gera hana sjálfstæðari og veita henni ríkari heimildir til rannsókna, en áður. Jafnframt því er verið að bæta skipulagið á meðferð skattsvikamála. Er þess að vænta, að þessi lagasetning geti orðið mikilvægur áfangi í baráttunni gegn skattsvikurum, en baráttan gegn þeim er ekki einungis réttlætismál í garð þeirra, sem telja heiðarlega fram, heldur er hún einnig barátta fyrir bættu fjármálasiðferði þjóðarinnar og heilbrigðari þjóðfélagsháttum.
Undanfarna mánuði hafa miklar hræringar átt sér stað innan Alþb. Hver höndin hefur verið upp á móti annarri og hatrammar deilur á opinberum vettvangi milli hinna ýmsu deilda þess. Þeir, sem ætluðu sér að sameina aðra, hafa því sjálfir orðið sundrungunni ofurseldir. Árið 1930 klufu kommúnistar sig út úr Alþfl. Sá klofningur var út af fyrir sig fagnaðarefni, því að menn, sem trúðu á flokkseinræðið í Sovétríkjunum og valdatöku með byltingu, áttu ekki heima innan raða Alþfl. Kommúnistaflokkurinn hafði tveimur meginhlutverkum að gegna hér á landi, annars vegar að vera samastaður fyrir söfnuð Stalíns og hins vegar að kljúfa og eyðileggja Alþfl. Kommúnistar komust fljótt að raun um það, að til þess að ná verulegum árangri í síðara hlutverkinu yrðu þeir að dylja fyrra hlutverkið sem bezt. Því skipti flokkurinn um nafn og árangurinn lét ekki á sér standa. Einn af aðalforingjum Alþfl., Héðinn Valdimarsson, sem var einlægur baráttumaður fyrir einingu íslenzkrar alþýðu, lét blekkjast og gekk í lið með kommúnistum og margt manna með honum. Héðinn Valdimarsson sá þó fljótt, að hann hafði framið mistök og hætti afskiptum af stjórnmálum, en fólkið, sem fylgdi honum, sat um kyrrt í Sósfl. Þótt kommúnistar væru búnir að skipta um nafn og teldu Sósfl. vera óháðan lýðræðisflokk, kom hið sanna innræti alltaf við og við í ljós, þ.e.a.s. Rússaþjónkunin og aðdáunin á kommúnistísku ofbeldi. Þessu til áréttingar má benda á margt. Hér skal aðeins minnzt á árás Sovétríkjanna á Finnland og atburðina í Ungverjalandi. Aldrei opnuðu þó kommúnistar hjarta sitt betur, en á stund sorgarinnar við fráfall Stalíns, en þennan mikla foringja kvaddi Þjóðviljinn með þessum orðum: „Vertu sæll, kennari vor og leiðtogi, kæri vinur og góði félagi.“
Þegar Sósfl. fór að nálgast tvítugsaldurinn, sáu kommúnistar, að þetta dulargervi dygði ekki lengur, ef þeim ætti að takast að klekkja frekar á Alþfl. Þá var enn notuð gamla aðferðin og skipt um nafn. Nú var tekið upp heitið Alþýðubandalag og Hannibal Valdimarsson ginntur út úr röðum Alþfl. yfir til Alþb. og nokkurt lið með honum. Að þessu sinni var atburðarásin nokkuð önnur en 1938, því að leiðtogi klofningsliðsins sat um kyrrt í bandalagi við kommúnista, en talsverður hluti liðsins, sem fylgdi honum, sneri fljótlega baki við fyrirtækinu. Nokkru eftir þetta tókst svo kommúnistum einnig að kljúfa Þjóðvarnarflokkinn. Til þess var notaður millilíður, hin svonefndu Samtök hernámsandstæðinga, sem voru í reynd útibú frá Sósfl. Hálfur Þjóðvfl. gekk undir merki Alþb., en hinn helmingurinn tvístraðist í allar áttir, mest þó til Framsóknar. Kommúnistar töldu sig nú á grænni grein, því að auðvitað höfðu þeir ætíð haft öll ráð Alþb, í hendi sér. Í því efni liggur fyrir vitnisburður þeirra manna, sem gerst þekkja til. Gils Guðmundsson og Ragnar Arnalds rituðu eftirfarandi orð um Alþb. í Frjálsa þjóð hinn 26. nóv. 1960: „En svo einkennilega er högum háttað innan þessara samtaka, að hinir gallhörðu kommúnistar ráða þar lögum og lofum.“ Þessi orð eru vitanlega jafnsönn í dag og þau voru árið 1960.
Þegar kommúnistar höfðu lokið við að kljúfa Alþfl. í þriðja sinn og sundra Þjóðvfl., töldu þeir sig hafa treyst mjög aðstöðu sína. Nú mundi allt leika í lyndi. En þá kom reiðarslagið. Alþingiskosningarnar síðustu sýndu, að þrátt fyrir liðveizlu Hannibals og þjóðvarnarmanna hlaut Alþb. síður en svo meira fylgi meðal þjóðarinnar, en Sósfl. einn hafði áður hlotið. Nú fóru margir Sósfl.-manna að hugsa ráð sitt. Er það ekki ástæðulaust með öllu, hugsuðu þeir, að flokkurinn sé að gefa Hannibal, Gils og Alfreð þingsæti? Væru þau ekki betur komin í höndum manna, sem öruggir væru á Moskvulínunni? Væri ekki bezt að leggja Alþb. niður, þar sem það hafði engan árangur sýnt og láta Sósfl. einan bjóða fram eftirleiðis? Það er vaxandi fylgi við þessi sjónarmið innan Sósfl., sem var undirrótin annars vegar að för kommúnistaforingjanna til Moskvu á s.l. sumri, þar sem þeir ræddu við félaga Breznev og að hinu leytinu að því, að Brynjólfur Bjarnason styrkti mjög aðstöðu sína innan Sósfl. á síðasta flokksþingi. Hannibal og Gils og félagar undu því að vonum illa, að framlag þeirra til Alþb. væri lítils eða jafnvel einskis metið. Þeir héldu því fram, að kosningaúrslitin sýndu nauðsyn þess að draga úr áhrifum kommúnista innan Alþb. eða öllu heldur að dylja þessi áhrif betur, en gert hafði verið. Létu þeir jafnvel í það skína, að þeir mundu stofna nýjan flokk, ef þeir fengju máli sínu ekki framgengt. Þetta var þó tæpast meint í alvöru, heldur var hótunin fyrst og fremst sett fram til þess að ná sem hagstæðustum samningum við kommúnista.
Nú settust hinar ýmsu klíkur Alþb. á rökstóla til þess að leysa vandann og var oft harkalega deilt. Einn af þm. Alþb., sem vildi bera klæði á vopnin, lagði til, að stefna Alþb. ætti að vera sú að vera bæði á móti kommúnistum og andkommúnistum. Ekki þótti fært að athuguðu máli að skipta enn einu sinni um nafn. En að lokum fannst þó lausnarorðið. Það átti að endurskipuleggja Alþb. og eftir mikið stríð og mæðu virðist sem grundvöllur endurskipulagningar sé nú fundinn. Þennan grundvöll getur Einar Olgeirsson samþykkt, af því að hann lítur svo á, að á þessum nýja grundvelli haldi Alþb. áfram að starfa sem kosningabandalag. Hannibalsmenn samþykkja grundvöllinn hins vegar af þeirri ástæðu, að þeir telja, að Alþb. hætti að vera kosningabandalag samkv. honum og verði að stjórnmálaflokki. Þjóðvarnarmenn bíða að hinu leytinu átekta og velta málinu fyrir sér, en þó telja sumir, að þeir komist að þeirri niðurstöðu, að þessi óljósi grundvöllur henti þeim einkar vel.
Ég skal engu um það spá, hvernig til tekst um endurfæðingu Alþb. En eitt er víst. Kommúnistar hafa um áratugi verið sundrungarafl í íslenzkum stjórnmálum og þeir bera sök á því, að hér á landi er ekki til neinn stór lýðræðissinnaður verkalýðsflokkur. Hannibal Valdimarsson, Gils Guðmundsson og Björn Jónsson verða aldrei liðtækir við sköpun slíks flokks, nema þeir hafni fyrir fullt og allt öllu samstarfi við kommúnista, en það gera þeir ekki, hversu oft sem þeir endurskipuleggja Alþb.
Ég hef sérstaklega gert þessi mál hér að umtalsefni vegna þess, að ég tel það mjög miður farið, ef það tækifæri, sem nú hefur gefizt til þess að einangra kommúnista í íslenzkum stjórnmálum, verður ekki notað.
Á síðari árum hefur Framsfl. talið sig til þess kjörinn að gegna hlutverki hins stóra vinstrisinnaða lýðræðisflokks, sem þjóðina hefur vantað. Leika framsóknarmenn nú ákaft verkalýðsflokk og telja það bezt gert með því að sýna sem mest ábyrgðarleysi. Framsfl. skortir þó margt til að hæfa í hlutverk verkalýðsflokksins. Hann á tiltölulega lítið fylgi innan verkalýðshreyfingarinnar, en afl flokksins byggist að verulegu leyti á yfirráðum hans yfir sterkum atvinnufyrirtækjum. Er þar fyrst og fremst um að ræða atvinnufyrirtæki samvinnuhreyfingarinnar og þeirra hlutafélaga, sem framsóknarmenn hafa raðað í kringum hann sér til trausts og halds.
Þegar núv. ríkisstj. er borin saman við aðrar ríkisstj., sem hér hafa setið síðustu áratugina, sker hún sig einkanlega úr um þrennt. Hún hefur setið lengur, en flestar þeirra, verið samhentari og komið meira í verka. Auðvitað eru verk hennar umdeilanleg og sumt hefur farið miður, þótt flest hafi vel tekizt. Skuggi verðbólgunnar hvílir yfir og honum verður að eyða með samstilltu átaki allra stétta. Það þarf að efla sparnað í ríkisrekstrinum, yfirvega nýjar leiðir í landbúnaðarmálunum, auka verklega og bóklega menntun þjóðarinnar og tryggja öruggan vinnufrið til frambúðar með nýju júnísamkomulagi. Fjöldamörg verkefni bíða framtíðarinnar. Þar skiptir mestu máli, að sú undirstaða hefur verið reist á síðustu 6 árum, sem gefur okkur ríka ástæðu til að ætla, að vel megi takast um lausn þeirra. Góða nótt.