11.05.1965
Sameinað þing: 52. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2104 í B-deild Alþingistíðinda. (2019)

Almennar stjórnmálaumræður

Ásgeir Bjarnason:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Fyrir rúmum 5 árum töldu sjálfstæðismenn þjóðinni trú um það, að eina leiðin til bættra lífskjara væri sú að kjósa Sjálfstfl., enda lofuðu þeir bættum lífskjörum án nýrra skatta. Trúi þeir, sem trúa vilja, en reynslan sýnir nokkuð annað.

Efnahagsmálalöggjöfin frá 1960 er grundvöllur að stefnu ríkisstj. og kjarni hennar er það, sem kallað er framboð og eftirspurn. M.a. var fjárfestingareftirlit afnumið, almennir vextir hækkaðir, svo að afnema varð lög um okurvexti, vextir af stofnlánum landbúnaðar stórhækkaðir. Ekki var samt látið við það sitja af ríkisstj., því að samkv. lögum um Stofnlánadeild landbúnaðarins eiga bændur að borga 1% af afurðaverði búa sinna til deildarinnar. Árið sem leið voru lánaðar úr Stofnlánadeild landbúnaðarins 103 millj. kr., og eru þau lán yfirleitt með 6–61/2 % vöxtum. Ofan á það bætist svo stofnlánadeildargjald fyrir sama ár, en það var 11.6 millj. kr., sem bændur greiddu af söluvörum búa sinna. Svarar það til þess, að þau lán, sem tekin voru s.l. ár, séu með 16–17% vöxtum. Það stóð ekki heldur á því að gefa fögur fyrirheit, þegar stofnlánadeildin var mynduð. Hæstv. fjmrh., Magnús Jónsson, þáv. bankastjóri Búnaðarbankans, sagði, með leyfi hæstv. forseta:

„Það verður ekki um það deilt, að með því frv., sem hér liggur fyrir, eru leyst til frambúðar lánsfjárvandamál landbúnaðarins til stofnlána og lagður grundvöllur að því, að hægt sé að bæta úr því mikla vandamáli.“

Hver er svo reynsla bændanna af þessum gefnu fyrirheitum? Jú, hún er sú, að eftir eins árs starf stofnlánadeildarinnar var svo komið, að fjármagn það, sem deildin hafði til umráða, nægði ekki til að veita bændum tilskilin lán út á framkvæmdir. Lánað var út á vissar framkvæmdir, en aðrar ekki og yfirfært það, er fjármagn vantaði fyrir, til næsta árs og voru það við síðustu áramót í kringum 15 millj. kr., sem færast yfir á þetta ár og verða til þess að auka verulega þau vandamál, sem eru í sambandi við fjárútvegun deildarinnar á þessu ári. Það er vel kunnugt, að veðdeild Búnaðarbankans er fjárvana, svo að ekki sé meira sagt og biður fjöldi bænda eftir jarðarkaupalánum. En ekki bólar neitt á því, að úr þessu verði bætt, þrátt fyrir gefin fyrirheit í þessum efnum. Lausaskuldasöfnun bænda er vaxandi og það sem verra er, að skuldir þessar eru mestar hjá þeim, sem eru að hefja búskap, enda kemur þar margt til samtímis. Hér er óbrúað bil, sem alltaf breikkar með ört vaxandi dýrtíð, enda engar ráðstafanir gerðar til að bæta úr í þessum efnum, svo að til vandræða horfir hjá byrjendum í búskap.

Fjármagn þjóðarinnar fellur eftir öðrum farvegum en þeim, sem þjóna landbúnaðinum. Þetta hefur í för með sér margþætt vandamál fyrir einstaklinga og sveitarfélög, sem mörg eiga í vök að verjast fjárhagslega. Afleiðingin er líka sú, að jafnvel jarðir í beztu sveitum landsins og með öllum þægindum eru mannlausar og mannvirkin eyðileggjast og þeir, sem þar bjuggu, fá litið eða ekki neitt fyrir framkvæmdir sínar. Á sama tíma er sumt af unga fólkinu, sem gjarnan vill búa í sveit, en vantar til þess fjármagn, að reisa yfir sig íbúðir í bæjum og borgum, og kostar það þó miklu meira, en vel uppbyggðar jarðir fást fyrir. Þess eru líka dæmi, að lóðarblettir hér í höfuðborginni kosti mörg hundruð þúsunda. Munur á eignum eftir því, hvar er á landinu, er orðinn mjög uggvænlegur og segir það nokkuð um það, hvert fjármagninu er stefnt.

Hér hefur á mörgum sviðum orðið breyting á fjárfestingu og satt er það að vísu, að fjárfesting er mikil. En þeir, sem nú ráða þessari fjárfestingu, eru nokkrir auðmenn, bankarnir og ríkisstj. Ekkert samræmi finnst í þessum málum. Þar ráða peningarnir meira, en þjóðarheill. Ein af auðugustu þjóðum heims, Bandaríkin, telur sig ekki hafa efni á því að skipuleggja ekki fjárfestingu. Hver trúir því þá að við Íslendingar getum leyft okkur algert skipulagsleysi í þessum efnum? Þjóðhagslega er það ekki sama, hvort bætt er við einni verzlun í stórhýsi í Austurstræti, þar sem alls staðar eru verzlanir fyrir, eða hvort bætt er aðstaða fólksins, sem framleiðir verðmæti til lands og sjávar. Hér þarf ríkisvaldið að vera vel á verði og beina atvinnulífinu meira inn á verðmætasköpun, en ekki þjónustu eða milliliðastarfsemi, sem sogar fjármagnið frá grunnatvinnuvegum þjóðarinnar.

Það hefur ýmsum orðið tíðrætt um niðurgreiðslur á verði landbúnaðarvara og finnst sumum, að þarna sé um svimandi upphæðir að ræða vegna landbúnaðarins. Hér er um mjög villandi kenningu að ræða, þar sem niðurgreiðslur á vöruverði, hvort heldur þær tilheyra sjávarútvegi, landbúnaði eða iðnaði, eru ráðstöfun ríkisstj. hverju sinni til þess að reyna að halda niðri dýrtíð. Bændur hafa ekki óskað eftir niðurgreiðslum. Þeir fara aðeins fram á það að fá sambærileg kjör við aðrar stéttir, eins og lög ákveða og skortir talsvert á, að

slíkt hafi enn þá tekizt. Ríkisstj. hefur í sinni hendi að verja þjóðartekjum, eftir því sem hún telur hyggilegt, en á það vil ég benda í þessu sambandi, að um ýmsar leiðir er að velja til þess að hafa áhrif á vöruverð. Það má t.d. með því að halda niðri framleiðslukostnaði greiða niður áburðarverð, hækka framlög til framkvæmda, lækka vexti af stofnlánum, lengja lánstíma og afnema tolla af vélum. Allt þetta gæti miðað að lækkun á niðurgreiðslum á landbúnaðarvöru og finnst mér, að ríkisstj. ætti að láta rannsaka þessi mál og vita, hvort hún getur ekki fundið betri lausn á þessum málum. Því er líka haldið fram, að bændurnir séu of margir og framleiðsla landbúnaðarins of mikil. En þó er hún ekki meiri en svo, að eftir eitt harðindaár yrðum við ekki sjálfum okkur nógir á þessu sviði. Og finnst ykkur, að það sé fyrirhyggja í því að tefla þannig á tæpasta vaðið í þessum efnum?

Góður búmaður reynir jafnan að hafa sem minnsta áhættu, tryggja sig gegn harðindum. Þeir munu líka fleiri, sem svo hugsa eftir s.l. vetur, því að hafísinn, hinn forni fjandi, hefur minnt á það, að hann er eigi með öllu horfinn.

Á það vil ég minna, að Búnaðarfélag Íslands og Stéttarsamband bænda hafa starfandi nefnd, sem á að athuga ástand íslenzks landbúnaðar og gera heildaráætlun um framtíðarskipulag búvöruframleiðslu á Íslandi og framtíðarskipulag íslenzkra búnaðarmál yfirleitt. Þessi n. hefur þegar unnið mikið og kemur til með að skila ýtarlegu og fróðlegu álíti, áður en langt um líður. Þetta sýnir það, að félagasamtök bændanna eru nú sem fyrr vel á verði um hagsmuni landbúnaðarins og þær nýjungar, sem eru á döfinni hverju sinni.

Mér er vel ljóst, að margvíslegra breytinga er þörf í landbúnaðinum, en höfuðsjónarmiðum má aldrei gleyma, en það er, að íslenzkur landbúnaður verður að fullnægja þjóðinni með þá kjarnmiklu fæðu, sem hann hefur á boðstólum og svo hitt, að betri möguleikar geta opnazt með útflutning á landbúnaðarframleiðslu. Ég vil sérstaklega benda á íslenzku ullina í því sambandi. Og vitað er enn fremur, að á sviði garðyrkjunnar eru miklir möguleikar innanlands til meiri neyzlu og einnig til útflutnings. Þá er og verður landbúnaðurinn alltaf grundvöllur umfangsmikils iðnaðar í landinu.

Ísland er land eldfjalla og ísa, en það er líka land mikillar orku, kjarnmikils gróðurs og auðugra fiskimiða. Við höfum því öll skilyrði til að lifa hér á landi mannsæmandi lífi án þess að sækja auðæfin annað, ef vel er á málunum haldið. Undanfarin ár hafa verið hagstæð, að því er tíðarfar snertir. Sjávarafli hefur aukizt um 60% síðan 1958 og verðmæti hans hækkað á sama tíma um 100%. Ræktun hefur aukizt og framleiðsla landbúnaðarins vaxið. Þó er ástandið á stjórnarheimilinu þannig, að þar stendur ekki steinn yfir steini, en skattur er lagður á skatt ofan og mögru kýrnar byrjaðar að gleypa þær feitu, eins og hjá Faraó forðum.

Sú stjórn, sem ekki getur stjórnað í góðæri, þegar drýpur smjör af hverju strái, er ekki fær um að stjórna landinu, enda fækkar þeim óðum, sem treysta á úrræði núv. ríkisstj. Rúm 6 ár eru að baki, síðan við framsóknarmenn áttum ráðh. í ríkisstj. Þótt okkar málum á Alþ. hafi yfirleitt verið illa tekið, hefur þó svo farið um mörg þeirra, að stjórnarsinnar hafa um síðir látið undan síga og tileinkað sér þau. Í því sambandi minni ég á baráttu okkar fyrir auknum jarðræktarframlögum, lagasetningu um sandgræðslu og landgræðslu, lækkun tolla á landbúnaðarvélum, lækkun vaxta og athugun á skólamálum dreifbýlis. Hér er þó engu marki náð og munum við áfram berjast fyrir málefnum þeim, sem óleyst eru og kunna að auka velferð og tryggja rétt þeirra, sem verr eru settir í landinu. Í því sambandi minni ég á það, að við höfum nú og á undanförnum þingum flutt frv. um bústofnslán, jarðarkaupalán, breytingar á jarðræktarlögum, komið með till. um rafvæðingu í dreifbýli, sem miða að því, að allir fái rafmagn fyrir árslok 1968. Þá höfum við flutt till. um aukið fjármagn til samgöngubóta, eflingu félagsheimilasjóðs og byggingu framhaldsskóla í dreifbýli og síðast, en ekki sízt frv. um jafnvægissjóð.

Góðir hlustendur. Þið, sem viljið trausta félagslega uppbyggingu og trúið á mátt samtakanna til að leysa stórverkefni, sem hverjum og einum ykkar eru um megn, standið sem bezt vörð um velferð ykkar og hagsæld komandi kynslóða með því að efla Framsfl. og losa ykkur sem fyrst undan viðjum núv. valdhafa. Breytinga er þörf í þessum efnum, þar sem þjóðinni er nauðsynlegt að sameina krafta sína til að skapa varanlegt öryggi í efnahags-, menningar- og stjórnmálum. Góða nótt.