07.12.1964
Efri deild: 27. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2264 í B-deild Alþingistíðinda. (2050)

Olíugeymar í Hvalfirði

Alfreð Gíslason:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá atriði í ræðu hæstv. sjútvmrh., sem ég vildi gera stuttlega að umtalsefni.

Hæstv. ríkisstj. hefur nýlega veitt NATO aðstöðu til athafna í Hvalfirði. Því hefur verið haldið fram, að hér væri um að ræða brot á stjórnarskrá landsins. Hæstv. ráðh. mótmælti því algerlega og taldi, að hér hefði hvorki verið framið stjórnarskrár- né lagabrot. Rök hans voru þau, að sams konar verknaður hefði svo oft verið framinn áður af stjórnarvöldum á umliðnum árum. Ég vil aðeins vekja athygli á þessu og spyrja: Eru þetta nú ekki heldur hæpin og jafnvel varhugaverð rök, að það nægi til þess að afsaka einhvern verknað, að hann hafi svo oft verið framinn áður og geti því ekki talizt lagabrot? En eins og okkur öllum er kunnugt hér, hafa íslenzk stjórnarvöld, það er rétt, oftlega framið sams konar verknað áður í viðskiptum sínum við NATO og Bandaríkjaher. En því mun næstum ávallt hafa verið mótmælt af vissum hópum manna í landinu og aldrei viðurkennt af öllum, að hér væri farið að lögum.

Þá ræddi hæstv. ráðh. lítillega um friðarhorfurnar í heiminum og vildi ekki neita, að þær væru máske eitthvað betri ó seinni tíð. En ef svo væri, væri það ekki sízt aðgerðum Atlantshafsbandalagsins að þakka. Nú leyfir hæstv. ríkisstj. NATO auknar athafnir hér á landi í vígbúnaðarskyni. Ég hygg, að ég hafi skilið hæstv. ráðh. rétt, að hann líti svo á, að aukinn vígbúnaður NATO á Íslandi muni frekar bæta friðarhorfur í heiminum en veikja þær. Það litur hver sínum augum á silfrið. Íslenzkir ráðh. líta kannske þessum augum á málið. Starfsbræður þeirra í Noregi og Danmörku virðast líta allt öðrum augum á sama mál. Þar hafa bæði forsrh. Noregs og utanrrh. Danmerkur nú nýlega lýst því yfir, að þeir séu andvígir því, að NATO-her verði búinn kjarnorkuvopnum og segja, að lönd sín muni ekki taka þátt í slíkum NATO-her. Hvers vegna? Það er vegna þess, að þeir líta svo á, að aukinn vígbúnaður NATO í heiminum í dag spilli friðarhorfum, en bæti þær ekki. Hér virðast íslenzk stjórnvöld líta þveröfugt á málið, telja sig, að því er mér heyrist, vera að efla frið í heiminum eða friðarútlit með því að bæta aðstöðu NATO á Íslandi til aukins vígbúnaðar. Það er eins og hér var tekið fram áðan, að þetta eina skref, sem íslenzk stjórnarvöld hafa stigið nú í afstöðunni til NATO og Bandaríkjahers, er í sjálfu sér ekki svo ákaflega stórt eða mikilvægt, ef ekkert væri á undan gengið. En það má segja, að allar götur síðan 1946 hefur ekki linnt á tilslökunum við hinn útlenda her á Íslandi. Það er þetta, sem er svo alvarlegt. Það er hvert skrefið á fætur öðru stigið í þá átt að afsala réttindum í hendur útlendra hervelda. Ég held, að íslenzk stjórnarvöld hafi aldrei neitað þessum erlendu aðilum um nokkurn hlut? Undantekning er, að tilmælunum um flotahöfn í Hvalfirði til 99 ára var hafnað. En er ekki verið að veita það nú eða hliðstætt og samsvarandi? Er ekki verið að stíga í átt til þess í nokkrum skrefum í staðinn fyrir að taka það í einu skrefi, eins og farið var fram á í upphafi?

Það var athyglisvert í ræðu hæstv. ráðh. hér áðan, að hann talaði nokkuð um olíugeyma. En ég held, að hann hafi varla minnzt á hafskipabryggjuna og legufæri skipanna, sem er þó ekki síður mikilvægt atriði í þessu sambandi.

Ég skil það vel, að bæði hæstv. sjútvmrh. og aðrir hæstv. ráðh. hliðri sér hjá að fara að ræða þessi mál og rökræða þau, því að aðstaðan er svo veik hjá þeim. Röksemdir eru ekki margar fyrir því að ívilna þannig ár eftir ár og eitt skiptið eftir annað þessum erlendu stórþjóðum, sem hér eiga hlut að máll. Sú afsökun, sem hæstv. ríkisstj. hefur á takteinum og mikið er notuð, er að með því að við ekki leggjum NATO til herafla og með því að við leggjum ekki annað í beinan kostnað vegna aðildarinnar að NATO, beri okkur að gefa öll þessi leyfi, sem gefin hafa verið á umliðnum árum. Þetta er dálítið sérkennileg afsökun. Í henni felst það, að úr því að við erum svo heppnir að hafa engar fjárhagslegar byrðar í sambandi við aðildina að NATO, beri okkur skylda til að veita NATO allt annað, sem um er beðið. Fyrir það eigum við að þakka, hvort sem það eru menningarleg verðmæti eða umráðin yfir landi okkar. Danir og Norðmenn hafa hvað eftir annað neitað NATO um bækistöðvar í löndum sínum. Þeir hafa afdráttarlaust hafnað því, að í Danmörku og Noregi yrðu nokkurn tíma erlendar herstöðvar eða erlendur her. Hvers vegna gera Danir og Norðmenn þetta? Hæstv. ríkisstj. mundi segja: Það er af því, að þeir hafa sjálfir her. En þetta er ekki rétt. Tyrkir eru í NATO og þeir hafa her. Samt leyfa þeir herstöðvar og erlendan her í landi sínu, svo að þetta er ekki nægileg skýring. Nei, Danir og Norðmenn gera sér fulla grein fyrir þeim hættum, sem smáþjóð er af því að hafa til lengdar erlendar bækistöðvar í landi sínu.

Ég minnist á þetta til þess að sýna fram á, hversu erfið aðstaða hæstv. ríkisstj. er í þessum málum yfirleitt, hversu hún hlýtur að standa rökþrota í umr. um þessi mál.

Ég gat þess áðan, að í einu einasta tilfelli hefði hinum erlendu herveldum verið neitað um leyfi. Þeim var að vísu neitað um fleiri leyfi, en þau hafa öll verið veitt nú þegar. Einu sinni höfðu íslenzkir ráðamenn hátt um það, að á Íslandi skyldi aldrei leyfður her né herstöðvar á friðartímum. Þessar fullyrðingar eru fyrir löngu orðnar markleysa. Herinn er kominn og herstöðvarnar. Skyldi það ekki geta farið eins um þetta eina, sem þeim hefur verið neitað hingað til, flotastöð í Hvalfirði til 99 ára? Er ekki að fara á sömu leið um þá synjun og þær synjanir, sem ég nefndi áðan í sambandi við her og herstöðvar í landinu?