07.12.1964
Efri deild: 27. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2266 í B-deild Alþingistíðinda. (2051)

Olíugeymar í Hvalfirði

Gils Guðmundsson:

Herra forseti. Það eru nokkur atriði í tilefni af ræðu hæstv. félmrh., sem ég vildi gera hér stuttlega að umtalsefni.

Mér virtist, að það væri einkum þrennt, sem hæstv. ráðh. vildi leggja áherzlu á í vörn sinni fyrir þeim samningi, sem nú hefur verið gerður. Það væri í fyrsta lagi það, að sú olíu- og benzínbirgðastöð, sem verið hefur og er í Hvalfirði, væri orðin úrelt, þ.e.a.s. olíugeymarnir þar væru yfir 20 ára gamlir og þyrftu þess vegna endurnýjunar, þess vegna hefði verið eðlilegt að gera slíkan samning, sem hæstv. ríkisstj. hefur nú gert. Í öðru lagi taldi hæstv. ráðh., að ekki hefði verið ástæða til þess að bera slíkan samning sem þennan undir Alþingi á neinu stigi málsins, vegna þess að ákvæði herstöðvarsamningsins við Bandaríkin giltu í því efni og það væri á grundvelli þess samnings, sem nú hefur verið samið. Og í þriðja lagi lagði hæstv. ráðh. á það ríka áherzlu, sem líka hefur verið gert að meginatriði eða verulegu atriði í fréttatilkynningu ríkisstj. og í skrifum stjórnarblaðanna um málið, að það sé í rauninni ekki um neinn eðlismun að ræða, þó að þessar framkvæmdir verði gerðar í Hvalfirði; frá því, sem verið hefur. Ég ætla að fara um þessi atriði fáeinum orðum hvert um sig.

Það er þá fyrst, að hér sé um eðlilega framkvæmd að ræða til endurnýjunar á þeirri birgðastöð, sem í Hvalfirði hefur verið og þar er í dag. Ég held, að það þurfi ekki að fara um það mörgum orðum, að þarna er um allt annað og meira að ræða í raun heldur, en endurnýjun þeirrar stöðvar. Eins og ég tók fram í fyrri ræðu minni, er þar í dag ekki um aðra aðstöðu að ræða af sjó heldur en þá, að venjuleg olíuflutningatankskip geta athafnað sig þar. Þar er engin aðstaða til annars. En eftir að upp væru komin þau mannvirki, sem þar eiga að koma samkv. samningnum, auk nýrra olíutanka, þ.e.a.s. vatnsgeymir, bryggja eða bryggjur og legufæri fyrir skip, er eins og ég hélt fram í fyrri ræðu minni, í einu vetfangi, á einni svipstundu hægt að breyta þessari stöð í herskipalægi, þar sem herskip gætu athafnað sig til hverra þeirra hluta, sem þau teldu sig þurfa, þau gætu ekki aðeins fengið þar olíu, heldur einnig vatn og með notkun bryggna gætu þau einnig birgt sig upp af vistum og meira að segja hergögnum, ef því væri að skipta. Hér er þess vegna reginmunur á.

Ég skal ekki fara langt út í rökræður um það, hvort það fái staðizt hjá hæstv. ríkisstj., að hægt hafi verið að byggja þessa samningagerð á herstöðvasamningnum frá 1951. Í sjálfu sér er það ekki kjarni þessa máls, þó að vitanlega skipti það máli og það verulegu máli, hvort hæstv. ríkisstj. hefur hlýtt þarna lögum og jafnvel stjórnarskrá eða ekki. En um þetta vil ég aðeins segja það, að það virðist þó upplýst, að hér sé um að ræða samningagerð við annan aðila, en samið var við 1951. Hér er ekki um að ræða samning við Bandaríki Norður-Ameríku, eins og herstöðvasamningurinn frá 1951 er þó samningur við, heldur er samið við annan aðila, þ.e.a.s. NATO, hernaðarbandalag margra ríkja. Og m.a. vegna þess virðist mér mjög svo hæpið, að ekki sé meira sagt, að skjóta sér á bak við þann samning. En jafnframt vil ég spyrja: Hverjar eru í rauninni skoðanir hæstv. ríkisstj. á því, hvað leyfilegt sé samkv. hinum svokallaða varnarsamningi frá 1951? Það væri mjög æskilegt, að það kæmi skýrt og greinilega fram, hvort hægt sé að hennar dómi að leggja í þann samning slíkan skilning, að ríkisstj. geti sem eini íslenzki aðilinn samið um ný og ný landssvæði, jafnvel nýjar herstöðvar, án þess að spyrja Alþingi neitt um það, hvað hún geri í því efni. Það væri mjög fróðlegt að fá skýr svör við því, hvað hæstv, ríkisstj. telur, að þessi samningur gefi íslenzkum stjórnarvöldum einum víðtæka heimild til slíkrar samningagerðar.

Þá kem ég aðeins að þriðja atriðinu, sem lögð er á rík áherzla, bæði hjá hæstv. félmrh. hér áðan og í blöðum stjórnarflokkanna. Það er, að þetta sé í rauninni ákaflega lítið mál, að þarna sé eingöngu um að ræða endurnýjun þeirrar olíu- og benzínbirgðastöðvar, sem nú er í Hvalfirði. Ég held, að það sé ástæðulaust að fara mörgum orðum um þessa staðhæfingu, svo fjarstæð er hún, er menn leiða hugann að henni. En því miður, vil ég segja, er þetta ekki í fyrsta sinn, sem hæstv. núv. ríkisstj. hefur í viðkvæmum utanríkismálum gert tilraunir til þess að láta hlutina líta öðruvísi út, en þeir eru, gert tilraun til þess að blekkja. Ég ætla ekki að fara langt aftur í tímann og ekki að nefna mörg mál í því sambandi. Ég vil aðeins nefna sjónvarpsmálið, af því að það er nú tiltölulega nýtt og er öllum kunnugt. Þess er skemmst að minnast, að hér var í fyrstu heimilað að setja upp á Vellinum litla stöð, sjónvarpsstöð, sem bundin var við Völlinn einan. Svo liðu fáein ár. Ég held, að það hafi verið árið 1961, sem sagt var: Þessi stöð er lítil og úr sér gengin og nú leyfum við, sögðu hæstv. ráðamenn, stækkun þessarar stöðvar úr 50 wöttum, ef ég man rétt, í 250 wött og það var látið fylgja með þá, að þetta væri í sjálfu sér sáralítil eða jafnvel engin breyting, stöðin nýja mundi ekki ná til miklu fleiri aðila en gamla stöðin og það var jafnframt fullyrt, að það væri ekki hægt að fá minni stöð en þessa. En hver hefur reynslan orðið? Reynslan hefur orðið sú, að hvorugt þessara atriða hefur reynzt sannleikanum samkvæmt. Annað tveggja hefur því skeð, að þeir, sem ábyrgðina bera í þessu máli, hafi sakir vanþekkingar á sínum tíma eða annars verra gefið skakkar upplýsingar um þetta mál. Og þegar maður minnist þess, að hæstv. ríkisstj. hefur leyft sér slík og þvílík vinnubrögð í öðrum málum, þá er kannske ekki furða, þó að menn séu dálítið tortryggnir í sambandi við það mál, sem hér er til umræðu, þessa Hvalfjarðarstöð.

Mér þykir miður, að hæstv. utanrrh. skuli vera forfallaður nú, þegar þessi mál eru hér enn til umr. og auðsjáanlega komin á lokastig og í rauninni samkv. því, sem hæstv. ríkisstj. hefur tilkynnt, búinn og gerður hlutur. Ég hefði viljað spyrja hann nokkurra spurninga um málið, en þar sem hann er forfallaður, þá verður það að bíða og ég ætla að láta nægja að beina enn aðeins einni fyrirspurn til hæstv. félmrh. í sambandi við þetta mál, og hún er þessi: Hvaða tímatakmörk eru í þessum nýja samningi? Hvaða uppsagnarákvæði gilda um hann? Ég vænti þess, að hæstv. ráðh. geti og vilji upplýsa þetta.