07.12.1964
Neðri deild: 24. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2288 í B-deild Alþingistíðinda. (2059)

Olíugeymar í Hvalfirði

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Hér er um mikið stórmál að ræða og það er því ofur eðlilegt, að talsverðar umr. verði hér um þetta mál, þó að þær verði að vera utan dagskrár á Alþingi.

Mér sýnist, eins og umr. hafa fallið hér, að í rauninni sé hér um tvö meginatriði að ræða og nokkuð sérskilin. Annars vegar er um lagagildi þessa samnings að ræða, sem gerður hefur verið af hálfu ríkisstj. og um aðstöðu Alþingis í sambandi við þetta mál, en hins vegar er svo aftur um að ræða hinar hernaðarlegu framkvæmdir, sem nú er verið að efna til hér í landinu. Eftir að ég hef hlustað hér á hæstv. forsrh. verja hina lagalegu hlið málsins eða verja afstöðu ríkisstj. varðandi hina lagalegu hlið, verð ég að segja það, að minn dómur er alveg hiklaust sá, að hæstv. forsrh. hafi fundið það, að hann skorti rök til þess að sannfæra þm. um, að hér væri rétt að farið samkv. lögum. Hæstv. forsrh. reyndi að halda sér við 1. gr. herverndarsamningsins frá 1951 eða það ákvæði í 1. gr. samningsins, sem segir, að Ísland lætur í té land o.s.frv., eftir því sem aðilar koma sér saman um, — að þetta ákvæði í 1. gr. l. veiti ríkisstj. heimild til þess um óákveðinn tíma að semja um kvaðir á íslenzku landi til hins aðila þessa sáttmála, eftir því sem ríkisstj. ákveður á hverjum tíma, án þess að þurfa að spyrja Alþingi um það. Nú er þessi samningur þegar orðinn 14 ára gamall. Ég tel alveg augljóst, að það sé ekki aðeins, að það hljóti að vera efi hjá öllum mönnum um heimild ríkisstj. samkv. þessum ákvæðum um langt árabil til þess að semja um kvaðir á íslenzku landi þrátt fyrir skýlaus ákvæði í stjórnarskránni um annað, það sé einnig hrein móðgun við Alþingi, sem situr að störfum, í jafnmikilvægu máli og hér um ræðir að leita ekki álíts Alþingis í slíku máli. Ég held líka, að hæstv. forsrh. hafi fundið þetta í málflutningi sínum og þá var það, sem hann komst þannig að orði, að ríkisstj., sem að visu hefði þetta vald, leitaði eftir samþykki stuðningsmanna sinna á Alþingi eða eftir álíti þeirra alþm., sem hún styddist við og hagaði sínum framkvæmdum síðan eftir því. Nú veit hæstv. forsrh. það manna bezt, að frá lagalegu sjónarmiði í þessum efnum er ekkert til, sem heitir einhver hluti af Alþingi. Annaðhvort ber ríkisstj. að hafa samráð við Alþingi sem heild eða ekki. Það eru ekki aðeins einhverjir nokkrir alþm., sem hún á að hafa samband við um afstöðu til mikilvægustu mála, slíkt er vitanlega ekki til. Slíkt getur hún gert um afgreiðslu minni háttar mála. Og það er meira en lítil hætta í því, ef það á að taka upp þann sið á Alþingi í hinum mikilvægustu málum, að ríkisstj. geti tekið afstöðu til þeirra aðeins með því að bera sig saman við tiltekinn hluta af þinginu. Alþingi er eitt í þessum efnum. Það er að vísu meiri hl., sem ræður, en hann á þá líka að taka afstöðu til málanna eftir þinglegum venjum.

Hæstv. forsrh. sem sagt minntist á það, að ríkisstj. hefði gert þennan samning í samráði við sína fylgismenn á Alþingi, eins og hann orðaði það. En ríkisstj. er að mínum dómi í rauninni að viðurkenna með því að skýra frá þessu, að hún fann það, að hún þyrfti raunverulega á samþykki Alþingis að halda, en gerði það bara ekki formlega. Vitanlega er það fráleit túlkun á l. um herverndarsamninginn frá 1951, að hann veiti ríkisstj. um alveg ótakmarkaðan tíma heimild til þess að semja við erlendan aðila um kvaðir á íslenzku landi og það alveg ótakmarkað. Eins og hér hefur verið bent á, mundi t.d. hæstv. ríkisstj. ekki detta það í hug, að hún hefði vald samkv. þessum samningi til þess að heimila Atlantshafsbandalaginu að setja upp herstöðvar í hverjum firði á Íslandi. Auðvitað veit ég, að ríkisstj. dettur slíkt ekki í hug. Ef ætti að fara að færa út þessar herstöðvar í mjög stórum stíl, mundi ríkisstj. í reyndinni ekki telja sér annað fært en leita formlega til Alþingis í slíku tilfelli. En ég hygg hins vegar, að það, sem hefur ráðið úrslitum um þá leið, sem ríkisstj. valdi í þessu efni, hafi verið það, að hún ætlaði sér að gera á yfirborðinu eins lítið úr þessu máli og mögulegt væri. Hún reynir að halda því fram, að hér sé svo sem ekki um neitt að ræða, það sé, eins og hér hefur verið sagt, aðallega um það að gera, að endurnýja þurfi fjóra olíugeyma og einn vatnsgeymi, sem séu orðnir um 20 ára gamlir og um þetta þurfi ekki ýkjamikið fjas. En ég efast ekki um, að hæstv. ríkisstj. veit mæta vel, að hér er um miklu meira mál, en svo að ræða, að hægt sé að verja sig með slíkum fyrirslætti.

En það er reyndar gamalt í þessum hernámsmálum að halda einmitt svona á hinum mikilvægustu málum. Þegar Keflavíkursamningurinn var gerður á sínum tíma, 1946, var því haldið fram opinberlega af þeim, sem að þeim samningi stóðu, það var aðalforskriftin í blöðum ríkisstj. þá, að Íslendingar fengju nú fullnaðarvald yfir Keflavíkurflugvelli. Þá loksins áttu Íslendingar að ráða þar einir öllu, þegar Keflavíkursamningurinn var gerður. Þannig var reynt að blekkja menn um hið raunverulega innihald samningsins og í hvaða átt var verið að stefna. Við vitum, hvernig reynslan hefur orðið. Og þegar þátttaka Íslands var ákveðin í Atlantshafsbandalaginu á sínum tíma, var því beinlínis lýst yfir, að ekki kæmi til mála að hafa erlendan her á Íslandi samkv. þessum samningi á friðartímum. Hver hefur reynslan orðið? Allir alþm. þekkja það og allir landsmenn sömuleiðis. Og þegar verið var að veita sjónvarpsleyfi á sínum tíma fyrir herliðið á Keflavíkurflugvelli, var því blákalt haldið fram, að það væri útilokað með öllu að sjá þetta sjónvarp nema af þeim, sem væru innan girðingar á Keflavíkurflugvelli. Og síðar, þegar verið var að samþykkja stækkunina, var því blákalt haldið fram hér og það meira að segja af ráðh., að þrátt fyrir margfalda stækkun á stöðinni sæist sjónvarpið ekki lengra, en áður hafði verið, það yrði aðeins skýrara innan girðingarinnar þar suður frá. En hver hefur reynslan orðið? Svona hefur alltaf verið reynt í þessum málum að fara að Íslendingum, segja þeim allt annað en það, sem raunverulega lá á bak við. Og nú, þegar er verið að efna til þess að koma upp flotastöð í Hvalfirði, þá er mönnum sagt: Í rauninni er nú bara verið að gera við 20 ára gamla tanka, 4 stykki, það er nú allt og sumt.

Nei, það er ekki það, sem hér liggur á bak við. Hér er um miklu stærra mál að ræða, en svo, að það sé aðeins um viðgerðir eða endurnýjun á einhverjum örfáum geymum að ræða. Hér er um það að ræða, hvort á að fallast á þá beiðni, sem Íslendingar hafa verið að neita um leyfi fyrir langan tíma, eins og margsinnis hefur verið upplýst í umr. um þetta mál á Alþingi. Spurningin er sú: Á nú að láta af fyrri stefnu í þessu máli, hætta við að synja um leyfi til þess að koma upp flotastöð í Hvalfirði, á nú að fallast á það? Og fyrsta skrefið er svo að veita þá heimild, sem ríkisstj. hefur nú samþykkt að veita, aðstöðu til þess að byggja nýja birgðastöð, sem sérstaklega er ætluð fyrir herskip og engin dul er dregin á, að eigi að notast í ófriði eða takast í notkun, ef ófriðlega horfir og á það að skapa sérstaka aðstöðu fyrir stór og mikil herskip til þess að geta legið þarna eða haft þann útbúnað, sem þau telja sig þurfa að hafa. Þetta hafa þau ekki haft í Hvalfirði. Það er því verið að leggja grundvöllinn að því að gera Hvalfjörð að flotastöð. Það er sannleikur málsins.

Hér er því vissulega um stórmál að ræða, sem ríkisstj. átti, þótt ekki væri nema af siðferðilegum ástæðum, að leggja fyrir Alþingi og láta Alþingi taka afstöðu til. Það er Alþingi, meðan það situr að störfum, sem á að taka afstöðu til hinna þýðingarmestu mála. Og þannig er það líka í flestum lýðræðis- og þingræðislöndum, að það er talin skylda, meðan þingið situr að störfum, að leggja fyrir þingið til afgreiðslu hin stærstu og þýðingarmestu mál, jafnvel þó að gamlar heimildir kunni að að vera til þess, að afgreiða mætti málið með öðrum hætti. En nú veit ríkisstj. mæta vel í þessu tilfelli, að um það bil helmingur alþm. a.m.k. vefengir það, að ríkisstj. hafi þessa lagalegu heimild og hefur krafizt þess áður, að þetta mál yrði lagt fyrir Alþingi. Þrátt fyrir það víkur ríkisstj. sér undan og reynir að gera sáralítið úr málinu og ætlar að reyna að standa á því, að þrátt fyrir skýlaus ákvæði í stjórnarskránni hafi hún rétt samkv. þessum ákvæðum í 1. gr. hernámssamningsins, þá hafi hún heimild til þess að semja um kvaðir á íslenzku landi, hvar sem er á landinu og hversu langt sem liðið er frá þeim tíma, að þessi samningur upphaflega var gerður.

Ég tel, að það sé ekkert um að villast, að hér hafi ekki verið farið að lögum og hér hafi Alþingi verið sýnd alveg ótvíræð lítilsvirðing í meðferð málsins. En það væri ástæða til að spyrja um það, hvernig stendur á því, að nú þykir nauðsynlegt að veita þetta leyfi og skapa þessa nýju aðstöðu í Hvalfirði? Hvernig stendur á því, að einmitt nú þykir ástæða til þess að veita þetta leyfi, en það hefur ekki verið gert áður? Hvaða ný viðhorf hafa skapazt, sem kalla á það, að þeir, sem annast varnir landsins, eins og það er orðað, þurfa einmitt á þessu að halda nú, því sem þeir hafa getað komizt af án síðustu 15 árin, á þessum varnartíma? Hvað er það, sem hefur gerzt? Okkur er almennt sagt, að nú sé útlitið í heimsmálunum með betra móti, nú sé friðvænlegra, en um langan tíma áður hefur verið að ræða. Okkur er sagt, að Bandaríkin hafi nýlega tekið ákvörðun um það að leggja niður um 500 herstöðvar á erlendri grund. En einmitt þegar þetta er að gerast, virðist koma hér upp einhver ný nauðsyn til þess að veita hernámsliðinu hér nýja hernaðarlega aðstöðu í landinu, sem það hefur ekki beinlínis þurft á að halda fram til þessa. Hvað er það, sem kallar á þetta? Hæstv. forsrh, sagði í þessu efni og varpaði fram þeirri spurningu: Hvers vegna er friðvænlegra, nú en áður? Og hann komst að þeirri niðurstöðu, að nú væri einungis friðvænlegra í heiminum vegna þess, að NATO væri sterkara, en nokkru sinni áður, vegna þess að árásaraðilar treystu sér ekki til atlögu við hið sterka NATO. Við erum nú að heyra og lesa í Morgunblaðinu alltaf annað slagið, að það horfi nú ekki allt of vel hjá NATO, það séu jafnvel ýmsir stærstu og þýðingarmestu aðilar að þessu bandalagi að tala um að segja sig úr því og það riði til falls og það sé meiri ágreiningur nú, en nokkru sinni áður. Og heldur finnst mér, að þessi röksemd skjóti skökku við það, þegar þess er gætt, að nú um þessar mundir sitja Bandaríkin og aðrir aðilar að NATO að samningum um það að framkvæma, eins og það er orðað, allsherjarafvopnun í heiminum, eyðileggingu á vopnum og vopnabúnaði í stórum stíl. Og þá kemur fram þessi kenning: Friðvænlegt er í heiminum vegna þess, að menn eru nógu sterkir fyrir. Ef menn væru enn á þessari gömlu kenningu, þá ættu þeir ekki að sitja að samningaborði og tala um það að framkvæma allsherjar afvopnun. Þeir menn, sem trúa því, að friðurinn í heiminum verði einungis tryggður með því að hervæða sem mest, byggja upp sem flestar herstöðvar, þeir ættu auðvitað að halda áfram á þeirri braut og vera ekki að tala um hitt í sömu andránni, að þeir ætli að bjarga mannkyninu með því að eyðileggja vopn og leggja niður herstöðvar.

Sannleikur málsins er sá, að þessi kenning um það, að hinn mikli herstyrkur tryggi mönnum frið, sú kenning er orðin úrelt. Hæstv. forsrh. og aðrir gátu notað þessa kenningu og gerðu það alveg óspart fyrir nokkrum árum. En hún er úrelt. Þeir, sem þá höfðu hana mest á lofti, eru hættir að hafa hana á lofti. Þeir hafa tekið upp aðra taktik í þessum efnum. Nei, við Íslendingar, sem ég hélt að hefðum af einlægni tekið undir það, að við fögnuðum því, að reynt er nú að semja um afvopnun, reynt er nú að leysa vandamálin í heiminum á friðsamlegum grundvelli, reynt er nú að leggja niður herstöðvar, fækka þeim, — við eigum vitanlega ekki að gera neitt í þessum efnum, sem fer í bága við þessa stefnu. Við eigum ekki að stuðla að því, að hér sé verið að fjölga herstöðvum á okkar landi og okkar land verði umdeildara hernaðarlega séð, en það hefur verið. Slíkt er röng stefna.

Ég held, að þó að hæstv. ríkisstj. hafi nú gert þennan samning, sem að mínum dómi stenzt ekki lög, þá ætti hún að láta sér það að kenningu verða í sambandi einmitt við þær umr., sem fram hafa farið, bæði nú og áður, um þessi mál hér á Alþingi, að á þennan hátt má ekki standa lengur að þessum mikilvægu málum. Ríkisstj. ber skylda til þess að leggja mál eins og þessi fyrir Alþingi og alveg sérstaklega þegar Alþingi er að störfum, annars fyrir utanrmn., og Alþingi á að fá fulla aðstöðu til þess að vega og meta aðstæður allar og taka afstöðu til þess, hvort það á að veita ríkisstj. nýjar heimildir í þessum efnum eða ekki. Vinnubrögð eins og þau, sem hér hafa verið viðhöfð, ber að fordæma, þau eru hættuleg og það er satt að segja ekki gott að sjá út, til hvers slík vinnubrögð gætu leitt, ef þessi ríkisstj. eða einhver önnur, sem á eftir henni kemur, ætlar sér að nota vafasamar heimildir, vægast sagt, eins og þá, sem hér hefur verið vitnað til, til slíkra víðtækra ráðstafana.

Ég endurtek það sem skoðun okkar Alþb.- manna, að við álitum, að sá samningur, sem hér hefur verið gerður af ríkisstj., eigi ekki við lög að styðjast og hafi því ekki lagagildi.