07.12.1964
Neðri deild: 24. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2294 í B-deild Alþingistíðinda. (2061)

Olíugeymar í Hvalfirði

Birgir Finnsson:

Herra forseti. Mér skilst, að hv. 5. landsk. þm. vilji láta líta svo út, þrátt fyrir þær upplýsingar, sem ég gaf hér um meðferð á þáltill. hans frá síðasta þingi áðan, að þessi meðferð hafi verið eitthvað óvenjuleg. Þess vegna vil ég aðeins bæta við það, sem ég sagði áðan, örfáum orðum.

Það er í fyrsta lagi þetta, að hv. þm., ekki síður en forsetar, hafa áhrif á það, hvaða mál komast til nefndar, með því að draga ekki umr. á frumstigi mála úr hófi fram. Og í öðru lagi geta langar umr. um einstök mál orðið þess valdandi, að önnur mál komist ekki að, og frá síðasta þingi minnist ég nokkurra slíkra mála. í þriðja lagi geta langar umr. utan dagskrár valdið því, að dagskrármálin komist ekki til umr., hvað þá meir og á þessum fundi hv. þd höfum við gott dæmi um þetta.

Á siðasta þingi komu fram 54 þáltill., sem ekki urðu útræddar og sýnir það, að það er ekki einsdæmi, þótt þáltill. sú, sem hv. 5. landsk, þm. flutti þá, yrði ekki útrædd. Þetta er engan veginn góð útkoma, það skal ég játa. En ég mótmæli því, að sú útkoma sé skrifuð á minn reikning sem forseta sameinaðs Alþingi, og það vænti ég, að hv. alþm, skilji manna bezt.

Að lokum vil ég biðja þá hv. þm., sem mest segjast bera fyrir brjósti, að þingmál hljóti þinglega meðferð, að íhuga, hvort langar umr. utan dagskrár séu þinglegar.