05.02.1965
Sameinað þing: 25. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2310 í B-deild Alþingistíðinda. (2069)

Stóriðjunefnd

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Það voru nokkur orð í tilefni af því, sem hæstv. forsrh. sagði í þessu máli. Hann vildi túlka afstöðu ríkisstj. í þessu máli, þ.e.a.s. réttlæta það, sem gert hefur verið þegar varðandi skipun þessarar n., með því, að ég muni hafa sagt í viðtali við iðnmrh., að við Alþb: menn yrðum á móti þessu máli í öllum tilfellum, eða eins og hæstv. ráðh. sagði, undir öllum kringumstæðum og hvað sem upplýstist í málinu. Ég vil aðeins segja það, að þetta er með öllu rangt. Hæstv. ráðh. ætti að taka þetta mál upp á ný og kynna sér það og þá veit ég, að hann sannfærist um, að þetta er með öllu rangt. Það eina, sem ég hef sagt í þessum efnum við hæstv. iðnmrh., er það, að við Alþb.-menn værum að meginstefnu á móti því, að erlend auðfélög fái úrslitaáhrif í íslenzku atvinnulífi, — annað hef ég ekki sagt í þessum efnum, — að við værum að meginstefnu á móti því, að erlend auðfélög fái úrslitaáhrif á íslenzk atvinnumál. Ég hef ekki verið spurður neitt sérstaklega út úr í þessu máli og hef ekki heldur sagt neitt annað, en þetta. En auk þess vil ég svo segja, að það er með öllu rangt, að þingflokkur Alþb. hafi tekið einhverja sérstaka afstöðu í þessu máli, sem hefur ekki verið lagt fyrir það í einu eða neinu formi. Þingflokkur Alþb. hefur enga afstöðu tekið í sambandi t.d. við meginþátt þessa máls, sem er raforkuvirkjunin, engin sérstök afstaða hefur verið tekin til þess. Menn hafa verið að lýsa sig hafa vantrú á þessu eða vantrú á hinu, á meðan ýmsar sundurleitar upplýsingar koma fram í málinu. Það fer auðvitað heldur ekkert á milli mála, að við erum margir á talsvert mikið annarri skoðun, en ýmsir sjálfstæðismenn varðandi notagildi byggingar alúminíumverksmiðju í landinu og einnig um það, hvernig ætti að ganga frá slíkum samningum, ef til þeirra kæmi.

Þá segir hæstv. forsrh., að tilgangur þessarar n., sem nú sé verið að skipa, sé sá, að þingflokkarnir þrír, sem hafi ekki tekið neina afatöðu í þessu máli enn þá, þurfi að skipa með sér nefnd til þess að reyna að finna út afstöðu sína í málinu, en við, fjórði þingflokkurinn, séum búnir að taka afstöðu í málinu og af því þurfum við auðvitað ekki inn í n. Ég verð að segja það, að svona málflutningur er ekki hæstv. forsrh. samboðinn, því að ég hygg, að það væri lítill vandi að halda því fram, að þeir í ríkisstj. og Sjálfstfl. væru búnir að mynda skarpar sína afstöðu til þessa máls heldur en t.d. við, sem höfum ekki fengið að fylgjast með undirbúningi málsins.

Nei, það, sem um er að ræða og glögglega var líka staðfest í bréfum þeim, sem formaður Framsfl. las hér upp og Framsfl. hefur skipzt á við ríkisstj. um það, sem um er að ræða, enda kom það mjög skýrt fram í viðtölum iðnmrh. einnig við mig, að þessi n., sem nú er verið að skipa, á að fá það verkefni að rannsaka stórvirkjunarmálin; hvar á að vírkja, hversu stórt á að virkja og hvernig á að haga þeim málum. Hún á að rannsaka, hvort á að virkja með tilliti til þess, að mikill hluti af orkunni, sem fæst, verði seldur til langs tíma til erlends fyrirtækis, sem hér kæmi t.d. upp alúminíumverksmiðju. Þetta á n. að athuga. Hún á að athuga um lántökur þjóðarinnar í sambandi við þessar framkvæmdir. Og hún á að athuga um hugsanleg sérréttindi, sem fært þætti að veita þeim erlenda aðila, sem hér reisti alúminíumverksmiðju. Þetta á n. að athuga. Og ég vil aðeins segja: Vill hæstv. forsrh. neita því, að þetta sé verkefni, sem n. á að hafa? Nei, ég veit, að hann neitar því ekki, því að það er alveg augljóst mál, enda hefur það komið skýrt fram. Þetta eru verkefnin. Það getur vel verið, að þessi n. eigi að hafa eitt viðbótarverkefni enn. Þar kem ég að vísu með getgátu, en mér sýnist margt benda til þess, eins og að málinu er staðið, að þessi n. eigi að hafa það viðbótarverkefni, að það eigi að reyna að bræða saman þessa svonefndu lýðræðisflokka til þess að standa að málinu og halda saman um það á móti öllum öðrum og af því megi ekki aðrir vera þar nærstaddir, á meðan verið er að bræða slíkt saman. Það má vel vera. En það er sérstakt verkefni, sem Alþ. sem slíku kemur ekki við. Og það hefur verið skýrt tekið fram við mig, að verkefni þessarar n. ætti að vera framhaldsundirbúningur og athugun á þessu máli fyrir Alþingi, því að síðan ætti að leggja málið fyrir Alþingi og Alþingi ætti að taka endanlega ákvörðun um, hvað gera skal. Hér er því verið að setja á laggirnar undirbúningsnefnd fyrir Alþingi, og spurningin er um það: eiga þingflokkar Alþ. að fá rétt til þess að fylgjast með þessum undirbúningi málsins eða ekki? Um það snýst málið. Allt hitt eru undanbrögð. Og ég vil segja það við hæstv. ríkisstj., að það er með öllu þýðingarlaust fyrir hana að vera með slík undanbrögð sem hún reynir að hafa í þessu máli. Eða þá hitt, þegar það er sagt, sem hæstv. forsrh. sagði hér og ég hafði reyndar áður heyrt frá hæstv. iðnmrh., að það eigi ekki að leyna Alþb. neinu í þessu máli, hann, iðnmrh., ætlaði að vera svo elskulegur, að þó að við gætum ekki fengið rétt til þess að eiga mann í n., þá ætlaði hann að eiga viðtöl við okkur og segja okkur, ef við spyrðum, eitthvað eða það, sem honum þætti merkilegast að skýra okkur frá í sambandi við gang málsins. Hæstv. forsrh. var að láta í það skína, að þetta væri meiningin, að haga þessu svona. En þetta eru líka undanbrögð og ekkert annað. Hér er stefnt að því að halda heilum þingflokki fyrir utan undirbúning málsins, svipta þennan þingflokk þeim rétti, sem hann á samkv. réttum leikreglum hér á Alþingi. Við vitum það, að slíkar upplýsingar eru harla lítils virði. Þar á aðeins að velja það úr, sem gott þykir að láta aðra fá að vita um. En við eigum jafnan rétt til þess sem aðrir að vera í þessari n., sjá þar allt, sem fram er lagt, og heyra þau svör, sem þar koma fram og taka þátt í undirbúningi málsins að minnsta kosti allt fram að þeim tíma, sem Alþingi tekur endanlega ákvörðun um afgreiðslu málsins.

Hæstv. forsrh. sagði, að það væri í rauninni illt, að ég skyldi ekki hafa haft tækifæri til þess að hafa samband við iðnmrh. um þetta mál, áður en ég kvaddi mér hér hljóðs utan dagskrár. Ég hafði haft samband við hann áður. Hann ræddi við mig einmitt snemma í morgun og baðst út af fyrir sig afsökunar á því, að Alþýðublaðið skyldi hlaupa fram fyrir hann og tilkynna okkur þetta, áður en hann tilkynnti okkur um þessi úrslit og svo það líka, að hann mundi út af fyrir sig vera fús til þess að svara fsp. okkar og láta okkur vita eitthvað til hliðar við n., þótt við gætum ekki verið nægilega hreinir eða góðir til þess að eiga sæti í þessari n. Þetta var það, sem hann hafði mér að tilkynna um málið og það er einmitt vegna þess, að þetta allt liggur fyrir og málið er svona, sem ég mótmæli þessum vinnubrögðum sem brotum á réttum leikreglum hér á Alþingi, sem freklegu lýðræðislegu broti. Og það er heldur hastarlegt, að þegar menn eru að vinna slík ólýðræðisleg verk sem þetta, skuli þeir sérstaklega flagga með því, að þetta sé gert í nafni lýðræðisflokkanna. Ég efast ekkert um það, að hæstv. forsrh. gerir sér fulla grein fyrir því, að hann sér það mætavel, hve óréttilega er hér á málum haldið og óviturlega. Þá er aðeins spurningin um það, hvort hann vill leiðrétta það, sem hér hefur verið misgert eða ekki.

Það er vitanlega svo fráleitt sem mest má vera, að það geti skýrt þessa afstöðu ríkisstj., að hún hafi grun um það, hver sé afstaða manna til vissra þátta málsins, hvort þeir eigi að fá að vera í undirbúningsnefnd að málinu eða ekki. Það skyldu eiga eftir að koma þær reglur hér á Alþingi, að það megi yfirleitt ekki kjósa menn í nefndir, nema þeir hafi fyrir fram ákveðið það, hvaða afstöðu þeir hafa. Ég veit ekki nákvæmlega fyrir mitt leyti t.d. viðvíkjandi Framsfl., hvort hann er búinn fyrir fram að selja í hendur ríkisstj. loforð um það, hver sé hans endanlega afstaða í málinu. Satt að segja hefur mér virzt það, bæði á skrifum frá þeim flokki og ræðum, sem hér hafa verið haldnar, að ekki sé með öllu ljóst, hver yrði endanleg afstaða Framsfl. til vissra þátta málsins. Ég spyr því einnig um það: Hefur Framsfl. verið látinn gefa það upp, áður en hann var talinn nægilega góður til þess að eiga menn í þessari n., fyrir fram, hver væri afstaða hans til einstakra þátta málsins, eins og virðist vera ætlunin gagnvart okkur Alþb.-mönnum, að halda því fram, að við séum ekki nægilega góðir í þessa n., vegna þess að við munum hafa þannig afstöðu til vissra þátta?

Ég skal svo ekki lengja þessar umr. frekar, en ítreka áskorun mína til hæstv. forsrh. að kippa þessum málum aftur í lag og leiðrétta það, sem hér hefur verið misgert. Það mun verða bezt, bæði fyrir vinnubrögð í þessu máli og öðrum málum, sem þarf að afgreiða hér á Alþingi.