09.12.1964
Sameinað þing: 17. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2330 í B-deild Alþingistíðinda. (2079)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Hv. 3. þm. Vesturl. vitnaði réttilega í vegal. Þar er svo kveðið á, að till. til vegáætlunar verði lögð fram samtímis frv. til fjárl. En það er nú svo, að þetta var ómögulegt og ég veit, að hv. fyrirspyrjandi er mér sammála um, að það var ekki sanngjarnt að ætlast til þess, að Vegamálaskrifstofan hefði lokið samningu þessarar till. um það leyti, sem Alþingi kom saman. Nú er það svo, að það er nokkur tími liðinn síðan till. kom í rn. Við vorum að tala um það í morgun, ráðuneytisstjórinn og ég, hversu langt væri síðan. Okkur taldist til, að það væru rúmlega 3 vikur. Það má vel vera, að hv. fyrirspyrjanda finnist þetta nokkuð langur tími, að rn. haldi hjá sér till. í meira en þrjár vikur, áður en hún kemur fram. En þetta er ekki bara venjuleg till., aðeins eitt blað, þetta er þykk bók og eðlilega þurftu ráðh. að lesa þetta yfir og eðlilega þarf prentsmiðjan nokkurn tíma til þess að skila því frá sér. Ég var að vonast eftir því, að till. yrði útbýtt í dag, en hún er ekki komin hér á borð hv. alþm., en ég vænti þess, að það verði á morgun. Og ef nokkurn er hægt að ásaka um seinagang í þessu máli, þá skulum við bara hafa það samgmrh., að hann hafi legið á málinu í 1–2 vikur, á aðra viku og síðan prentsmiðjuna og þá skulum við segja, að ég hafi tafið þetta mál í 1-2 vikur, og þá tek ég þann dóm á mig. En ég er ekki viss um, að það verði af miklum þunga sagt, jafnvel hjá hv. fyrirspyrjanda. Ég held, að hann sé svo sanngjarn maður í eðli sinu, að hann skilji nú aðstæður allar, og ég lít svo á, að hann hafi borið fsp. fram, ekki í ásökunartón fyrir drættinum, ekki vegna þess, að hann hafi ekki skilið allar aðstæður í þessu máli, heldur einfaldlega vegna þess, að það er eðlilegt, að hann eins og aðrir hv. alþm. vilji nú fara að sjá þetta plagg. Og ég fyrir mitt leyti hefði gjarnan viljað, að það hefði getað komið fyrr hér fram, en eðli málsins samkv., þegar það er skoðað ofan í kjölinn, var ekki mögulegt, að það gæti orðið öllu fyrr, en þetta.