11.05.1965
Neðri deild: 88. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2333 í B-deild Alþingistíðinda. (2087)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Það er nú komið að þinglokum og því vil ég leyfa mér að gera hér fyrirspurn til hæstv. sjútvmrh. utan dagskrár.
Eins og kunnugt er, þá er vetrarvertíð bátaflotans nú að ljúka. Vetrarvertíðin hefur gengið misjafnlega eins og oft áður, sums staðar vel, en hjá öðrum miður vel. Nú er það kunnugt mál, að margir útgerðarmenn eiga í miklum erfiðleikum með að standa við umsamdar greiðslur af stofnlánum fiskibáta, einkum til fiskveiðasjóðs. Þá er það einnig vitað, að rekstrarlán bankanna í sambandi við síldarútgerð eru mjög lág og hvergi nærri jafnhá, miðað við tilkostnað við að gera út á veiðarnar, eins og þau voru áður.
Af þessum ástæðum vil ég nú spyrja hæstv. sjútvmrh. um það, hvort ríkisstj. hefði ekki í huga að gera nauðsynlegar ráðstafanir í þessum efnum til þess að greiða fyrir því, að útgerðarmenn geti tekið fullan þátt í sumarsíldveiðunum í sumar og þurfi ekki að lenda í greiðsluþrotum af þessum ástæðum. Ég er á þeirri skoðun, að það sé alveg nauðsynlegt að gera vissar ráðstafanir, ef það eigi ekki að bitna verulega á þátttökunni í síldveiðunum í sumar og því, hvernig bátarnir verða útbúnir til veiðanna.
Ég vil vænta þess, að hæstv. ráðh. sjái sér fært að svara þessari fsp. minni.