02.11.1964
Efri deild: 9. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2335 í B-deild Alþingistíðinda. (2092)

Athugasemdir um þingstörf

Á 9. fundi í Ed., 2. nóv., utan dagskrár, mælti Ólafur Jóhannesson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að gera hér stutta athugasemd við óheppileg vinnubrögð þingsins og þá sérstaklega þessarar hv. d., sem hæstv. forseti á að vísu ekki sök á, en ég tel mega rekja til starfshátta hæstv. ríkisstj.

Það, sem ég á hér við, er sú misskipting, sem á sér stað á framlagningu stjórnarfrv. í deildum þingsins. Á þeim þremur vikum, sem nú eru liðnar frá þingsetningu, hafa, að ég ætla, verið lögð fram í Nd. 11 eða 12 stjfrv., sum viðamikil, en hér í þessari hv. d. hafa aðeins fram að deginum í dag verið lögð fram tvö og nú í dag það þriðja.

Þessi tvö, sem áður hafa verið lögð fram, eru mjög einföld og ekki líkleg til þess að vekja miklar umr. eða valda deilum, enda er annað frv. þegar afgreitt frá þessari deild til Nd. Og nú í dag er lagt fram hér þriðja stjfrv. í Ed., og þá liggur ekki meir af málum fyrir þessari hv. d. en það, að það er óskað eftir afbrigðum og leyfi deildarmanna, til þess að þetta frv. megi takast fyrir strax í dag, áður en þm. hefur gefizt kostur á því að lesa það og er hér þó um allmikinn lagabálk að ræða.

Það mætti segja, að það væri ekki ástæða til þess að sakast um þetta, ef þetta væri eitthvað alveg nýtt og hefði ekki komið til greina áður. En sannleikurinn er sá, að þessi vinnubrögð hafa viðgengizt nokkuð mikið á undanförnum þingum, þó að ég minnist þess ekki, að það hafi verið gengið jafnlangt í þessu nokkru sinni eins og nú. Afleiðingin af þessu hefur verið sú, að þegar málin hafa komið í þessa hv. d., þá hefur oft og einatt lítill tími unnizt til þess að athuga þau. Málin hafa verið keyrð áfram, ég vil segja stundum með óeðlilegum hraða. Það segir sig sjálft, að þetta eru ákaflega óheppileg vinnubrögð. Og maður getur ekki séð, hvaða ástæða liggur til þess, að hæstv. ríkisstj. misskiptir svo frv. á milli d. sem raun ber vitni.

Það er að vísu svo að, að ýmissa álíti er þessi hv. þd., Ed., eins konar yfirdeild, sem á að yfirskoða og endurskoða gerðir hv. Nd. En það er þó ekki í raun og veru rétt á litið, heldur eru báðar d. jafnréttháar. En ég tel það miklu heppilegri vinnubrögð að skipta málunum nokkurn veginn jafnt, — þeim stjórnar- frv., sem um er að tefla, — milli deildanna, þannig að þær hafi báðar við nokkuð að vera. En eins og við allir vitum, dm., sem sitjum í þessari d., þá hefur þessi hv. d. sannast sagna haft heldur lítil verkefni þann tíma, sem af er þingtímanum, eins og sést bezt á þeim vinnubrögðum, sem á að viðhafa hér í dag, þar sem ekki væri fundarfært, vegna þess að verkefni lægju ekki fyrir, ef ekki ætti að taka þetta mál fyrir með afbrigðum. Ég segi fyrir mig, að ég mun alls ekki greiða því atkv. Ég er á móti því, að mál séu tekin svona fyrir með afbrigðum og til 1. umr., án þess að þm. gefist kostur á að athuga þau. Auðvitað á ekki sama ætíð við, — mál geta verið svo einföld og þeim getur legið svo mikið á, að slíkt sé réttlætanlegt.

Ég hef sem sagt viljað nota þetta tækifæri til þess að láta þessa athugasemd koma fram opinberlega og láta þingtíðindin geyma hana, því að ég sé ekki annað, en að þessi vinnubrögð séu mjög óheppileg og óskynsamleg, ekki aðeins gagnvart stjórnarandstöðunni, heldur bitnar þetta á svipaðan hátt á stuðningsmönnum stjórnarinnar, þó að þeirra aðstaða sé að vísu alltaf nokkuð á aðra lund, þar sem þeim hefur áður oftast nær sjálfsagt gefizt

tími til þess að athuga þau mál, sem um er fjallað á þinginu, áður í stjórnarflokkunum.

Eins og ég sagði áðan, þá dettur mér ekki í hug að saka hér hæstv. forseta um. En ég vil mælast til þess við hann, að hann ásamt og í samvinnu við aðra forseta þingsins hlutist til um það við hæstv. ríkisstj., að eftirleiðis verði haldið öðruvísi á þessum málum en hingað til.