15.10.1964
Sameinað þing: 3. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2338 í B-deild Alþingistíðinda. (2097)
Meðferð fyrirspurna
Á 3. fundi í Sþ., 15. okt., mælti forseti (BF):
Ég leyfi mér að vekja athygli hv. alþm. á því, að framvegis verður tekið fyrir, hvort leyfðar skuli fsp., á fundum sameinaðs þings á miðvikudögum og er þá gert ráð fyrir, að þeim verði svarað viku síðar. Þurfa því fsp. að berast skrifstofunni eigi síðar en á mánudögum, þannig að útbýting þeirra geti farið fram á þriðjudögum. Þetta eru hv. alþm. vinsamlega beðnir að taka til athugunar.