27.10.1964
Neðri deild: 7. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2344 í B-deild Alþingistíðinda. (2102)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Á 7. fundi í Nd., 27. okt., mælti forseti (SB):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf frá framkvæmdastjóra Sjálfstfl.: „Reykjavík, 27. okt. 1964.

Samkv. beiðni Ólafs Thors, 1. þm. Reykn., sem nú er sjúkur, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að varamaður hans, Axel Jónsson fulltrúi, taki á meðan sæti hans á Alþingi.

Virðingarfyllst,

Þorvaldur Garðar Kristjánsson.

Til forseta Nd. Alþingis.“

Kjörbréf varaþm., Axels Jónsonar, hefur áður verið rannsakað og hann undirritað eið að stjórnarskránni og ég býð hann hér með velkominn til setu í hv. þd.

Á 8. fundi í, Nd., 29, okt., mælti

forseti (SB): Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 29. okt. 1964.

Samkv. beiðni forsrh., Bjarna Benediktssonar, 1. þm. Reykv., sem nú er á förum til útlanda í opinberum erindum, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að varamaður hans, Sveinn Guðmundsson vélfræðingur, taki á meðan sæti hans á Alþingi.

Virðingarfyllst,

Þorvaldur Garðar Kristjánsson,

framkvæmdastjóri Sjálfstfl.

Til forseta Nd.“

Sveinn Guðmundsson vélfræðingur hefur áður átt sæti á Alþingi, undirritað drengskaparheit og kjörbréf hans hefur einnig áður verið rannsakað. Ég býð hann því velkominn til setu í hv. þd. að þessu sinni.