06.11.1964
Sameinað þing: 9. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2345 í B-deild Alþingistíðinda. (2105)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Frsm. (Einar Ingimundarson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman til fundar til að rannsaka kjörbréf Odds Andréssonar bónda á Neðra-Hálsi í Kjósarsýslu, en hann er 2. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi og hefur þess verið óskað, að hann taki nú sæti á Alþingi í fjarveru Matthíasar Á. Mathiesens, hv. 3. þm. Reykn. 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, Axel Jónsson, hefur þegar tekið sæti á Alþingi. Kjörbréfanefnd sér ekkert athugavert við kjörbréfið og leggur einróma til, að það verði samþykkt og kosning Odds Andréssonar bónda á Neðra-Hálsi í Kjósarsýslu verði tekin gild: