19.12.1964
Efri deild: 37. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2364 í B-deild Alþingistíðinda. (2167)

Þingsetning

Á 37. fundi í Ed., 19. des., mælti forseti (SÓÓ):

Þar sem þetta verður að öllum líkindum síðasti fundur þessarar hv. d. fyrir þingfrestun, vil ég leyfa mér að færa hv. þdm. mínar beztu þakkir fyrir ánægjulega samveru og samvinnu, það sem af er þessu þingi. Ég óska öllum hv. þdm. og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls nýs árs. Sömu óskir færi ég öllu starfsfólki Alþingis. Öllum utanbæjarþingmönnum óska ég góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu og hittumst svo öll heil að þinghléi loknu.