22.12.1964
Sameinað þing: 22. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2365 í B-deild Alþingistíðinda. (2175)
Þingsetning
Eysteinn Jónsson:
Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forseta árnaðaróskir hans þingheimi til handa. Ég þakka hæstv. forseta góða samvinnu við þm. á því ári, sem nú er að enda. Ég óska honum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og farsæls nýs árs og vona, að víð hittum hann heilan, þegar Alþingi kemur aftur saman snemma á næsta ári. Ég bið þm. að gera þessar þakkir og árnaðaróskir að sínum með því að rísa úr sætum. – [Þingmenn risu úr sætum.]