12.05.1965
Efri deild: 91. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2368 í B-deild Alþingistíðinda. (2190)

Starfslok deilda

Karl Kristjánsson:

Sem elzti maður í þessum hópi leyfi ég mér að kveðja mér hljóðs og ganga fram fyrir skjöldu til þess að flytja hæstv. forseta þakkir fyrir hans hlýju kveðjuorð og góðu óskir í garð okkar þingdeildarmanna. Jafnframt vil ég óska honum og fjölskyldu hans allra heilla og þakka honum fyrir samstarfið, prúðmannlega forsetastjórn og réttláta. Einnig vil ég taka undir óskir hans og kveðjur til okkar ágæta skrifstofustjóra og starfsliðs hans. Það fólk allt á skyldar beztu þakkir af okkar hálfu. Og svo vil ég segja: Njótum sumarsins vel og ríkulega og hittumst öll heil á næsta hausti, þegar þing verður kvatt saman. Ég bið ykkur, hv. þingdeildarmenn, að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]