12.05.1965
Sameinað þing: 54. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2371 í B-deild Alþingistíðinda. (2196)
Þinglausnir
Eysteinn Jónsson:
Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir hlýjar kveðjur hans til okkar alþingismanna og ég vil leyfa mér fyrir okkar hönd allra að þakka honum fyrir réttláta fundarstjórn í Sþ. og fyrir mjög gott samstarf við þingvinnuna. Ég vil leyfa mér að óska honum og fjölskyldu hans allra heilla og láta í ljós þá ósk, að við megum hitta hann heilan á húfi aftur í haust, þegar þingstörf hefjast á nýjan leik. Ég vil biðja hv. þm. að taka undir þessar óskir og þakkir með því að rísa úr sætum.— [Þingmenn risu úr sætum.]