22.10.1964
Neðri deild: 5. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í C-deild Alþingistíðinda. (2202)

12. mál, vaxtalækkun

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég get ekki látið hjá líða að gera nokkrar aths. við ræðu hv. flm. þessa frv. og formanns Framsfl. Ég mun þó engan veginn gera tilraun til þess að gera þessar umr. að einhvers konar allsherjarumr. um stefnu ríkisstj. í efnahagsmálum annars vegar og stefnu Framsfl. á því sviði hins vegar. En nokkur atriði í ræðu hv. þm. finnst mér óhjákvæmilegt að leiðrétta, þar sem þar var um verulegar missagnir eða misskilning að ræða.

Í þessu frv., sem allir hv. þm. Framsfl. í þessari hv. d. flytja, er lagt til, að útlánsvextir og þá væntanlega einnig innlánsvextir séu nú þegar lækkaðir niður í það, sem þeir voru fyrir 1960 eða voru á árinu 1959 og hefur sams konar frv. áður verið flutt í þessari hv. d. Í þessu sambandi er nauðsynlegt að gera í stuttu máli grein fyrir því, hver var megintilgangur breytingarinnar í vaxtamálum, sem gerð var 1960, um leið og núv. stjórnarflokkar tóku við völdum.

Ég held, að engir, sem þekkja íslenzk efnahagsvandamál eins og þau hafa verið undanfarna áratugi, geri sér ekki skýra grein fyrir því, að einn höfuðvandinn, sem var á höndum í íslenzkum efnahagsmálum á áratugnum 1950–1960, var fólginn í því, að mjög áberandi misræmi var á milli framboðs og eftirspurnar á lánsfé, þ.e.a.s. sparifjármyndun í landinu var miklum mun minni, en eftirspurn eftir lánsfé nam. Ég undirstrika, að mér vitanlega er enginn ágreiningur um þessa megin staðreynd í þessu sambandi og hv. Framsfl. og þ. á m. formanni hans, sem var fjmrh. allan þennan áratug, var áreiðanlega ljóst, meðan hann var fjmrh., að eitt meginatriði í íslenzkum efnahagsvanda á þessum árum var einmitt fólgið í þessu mjög áberandi misræmi milli framboðsins á sparifé og eftirspurnarinnar eftir lánsfé. En allir, sem lágmarksskilning hafa á þessum efnum, gera sér auðvitað ljóst, að ef ekki er til lengdar, þegar yfir lengri tíma er litið, sómasamlegt samræmi á milli sparifjármyndunar annars vegar og bankaútlána hins vegar, verður það með einum eða öðrum hætti orsök til verðbólguþróunar, sem síðar þrýstir verðlagi og kaupgjaldi upp á við með óeðlilegum hætti, þannig að gengi gjaldeyrisins hlýtur að verða stefnt í voða og þannig hafi þetta verið á þessum áratug, sem ég áður gat um.

Eitt af því, sem ríkisstj. taldi því nauðsynlegt að gera, þegar hún tók við völdum 1960, var að gera alvarlegt átak til þess að auka samræmið milli sparifjármyndunarinnar og bankaútlánanna. Og hún komst að þeirri niðurstöðu, að tiltækilegt ráð í því efni væri einmitt hækkun vaxta, en tilraun í þá átt að auka samræmi milli sparifjármyndunar og bankaútlána með vaxtahækkun hafði ekki verið gerð hér á Íslandi í áíratugi. Það var sem sagt nýmæli, sem ríkisstj. greip til árið 1960, þegar hún beitti sér fyrir vaxtahækkuninni, sem þá var framkvæmd. Og nú má spyrja, hver árangur hafi orðið af þessu nýmæli, af vaxtahækkunarpólitíkinni og ef menn vilja leita svars við þeirri spurningu, þá liggur auðvitað beinast fyrir að athuga, hvort samræmi á milli sparifjármyndunar og bankaútlána hafi aukizt eða minnkað á því tímabili, sem liðið er siðan 1960. Og um það liggja fyrir óyggjandi tölur í opinberum hagskýrslum. Sparifé í bönkum og sparisjóðum var í ársbyrjun 1960 1.829 millj. kr. Á miðju þessu ári eða 1. júlí s.l., nam spariféð 4.509 millj. kr. Það hefur m.ö.o. aukizt síðan í ársbyrjun 1960 um hvorki meira né minna en 2.680 millj. kr. og hefur aldrei í sögu íslenzkra efnahagsmála orðið jafnmikil aukning á sparifé og á þessu tímabili.

Nú má auðvitað endalaust um það deila, hver sé skýringin á þessari miklu aukningu sparifjárins síðan 1960 og enginn getur auðvitað sannað, að það eigi eingöngu rót sína að rekja til vaxtahækkunarinnar á árinu 1960. En það hygg ég þó, að allir sanngjarnir og skynsamir menn hljóti við athugun að verða sammála um, að vaxtahækkunin hlýtur að hafa átt mjög verulegan þátt í þessari aukningu sparifjárins. Hún hefur raunverulega verið meginorsök þessarar sparifjáraukningar. En hvað hefur orðið um þessa sparifjáraukningu? Hv. þm. talaði þannig í ræðu sinni áðan, eins og hér væri nú meiri skortur á lánsfé, en nokkru sinni áður og að spariféð hafi verið tekið úr umferð, bankarnir eða öllu heldur ríkisstj. beinlínis héldi sparifénu fyrir framkvæmdamönnum, atvinnurekendum. húsbyggjendum eða þeim öðrum, sem á lánsfé þurfa að halda. En hver er sannleikurinn um þetta efni? Heildarútlán banka og sparisjóða voru 1. jan. 1960 3.899 millj. kr. Þau voru í ársbyrjun 1960 3.899 millj. kr. Á miðju þessu ári eða 1. júlí s.l., námu heildarútlán banka og sparisjóða 6.324 millj. kr. Þau hafa m.ö.o. aukizt um hvorki meira né minna en 2.425 millj. kr. Heildarútlán banka og sparisjóða hafa aukizt um 2.425 millj. kr. síðan í ársbyrjun 1960. Ef menn bera þessa einföldu og ótvíræðu tölu saman við fullyrðingar hv. þm. í ræðu sinni hér áðan um það, að sparifénu sé haldið úr umferð og hér ríki gífurlegur lánsfjárskortur, þá verður mjög erfitt að koma þessu tvennu heim og saman. Heildarútlán banka og sparisjóða hafa aukizt um upp undir 2.500 millj. kr. eða upp undir sömu fjárhæð og sparifé landsmanna hefur aukizt síðan í ársbyrjun 1960, um hvorki meira né minna en hálft þriðja þús. millj.

Um stefnu ríkisvalds og seðlabanka í vaxtamálum er það að segja, að markmið vaxtapólitíkur hlýtur að sjálfsögðu að vera að stuðla að sem mestu jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar á lánsfé, þ.e.a.s. mestu jafnvægi milli sparifjármyndunar og bankaútlána, til þess að komast eins og mögulegt er hjá beinni skömmtun lánsfjár. Þessar tölur, sem ég nefndi áðan um aukningu sparifjármyndunar síðan 1960 og aukningu heildarútlána banka og sparisjóða, sýna, að það hefur verið svo að segja jafnvægi milli aukningar sparifjárins og aukningar heildarútlánanna. Og ég leyfi mér að fullyrða, að sú skömmtun, sem nú er á lánsfé, því miður og hlýtur að vera, meðan ekki tekst að auka spari– fjármyndunina enn meir, en tekizt hefur þó með þeirri vaxtahæð, sem nú er viðhöfð, er síður tilfinnanleg nú, en hún var yfirleitt á áratugnum 1950–1960. Menn muna vel, hversu alvarleg skömmtunin á lánsfénu var þá, fyrst og fremst vegna þess, að sparifjármyndunin var allsendis ónóg, en þá var sá kostur tekinn að mæta eftirspurninni eftir lánsfé með því að auka bankaútlán umfram sparifjármyndunina, sem hlaut auðvitað að hafa verðbólguáhrif innanlands og rýra gjaldeyrisstöðuna út á við mjög verulega.

Auðvitað er algert ósamræmi í þeim tveimur staðhæfingum hv. formanns Framsfl., að ófullnægð eftirspurn eftir lánsfé hafi aldrei verið meiri en nú, að segja þetta í öðru orðinu, en leggja síðan í hinu orðinu til, að vextir séu stórlækkaðir, því að ráðið til þess að bæta úr því, ef um mjög mikla og ófullnægða eftirspurn eftir lánsfé er að ræða, getur auðvitað ekki verið að lækka vexti, því að það hlýtur að verða til þess að auka eftirspurnina eftir lánsfé. Ef hann raunverulega trúir því, að það sé um mjög alvarlega ófullnægða eftirspurn eftir lánsfé að ræða og það sé mjög verulegur vandi í íslenzkum efnahagsmálum nú, getur hv. þm. varla meint í alvöru, að rétta ráðið við því sé að lækka innlánsvexti og draga þannig úr sparifjármynduninni og lækka útlánsvexti og auka þar með eftirspurnina eftir lánsfénu. (EystJ: Viljið þið þá ekki hækka vextina enn þá?) Nei, það er allt annað mál. Auðvitað eru því takmörk sett, hversu skynsamlegt getur talizt að hafa vexti háa. Það þarf auðvitað ekki nánari skýringar. En vextir eiga að vera svo háir, eins og ég sagði áðan, þeir eiga að hafa hæð, sem gerir það eins kleift og mögulegt er að hafa skömmtun lánsfjár litla. Ég tel, að þegar 1960 hafi verið fundin sú vaxtahæð, sem er atvinnuvegunum ekki ofviða, en er sparifjáreigendum samt sem áður mikil hvatning til þess að auka sparnað sinn.

Eins og háttað er í íslenzkum efnahagsmálum, hefur engum dottið í hug, hvorki mér né vitanlega nokkrum öðrum, að hægt sé að koma á jafnvægi á milli myndunar sparifjár og bankaútlána með vaxtapólitíkinni einni saman. Og það er auðvitað alger útúrsnúningur út úr ummælum mínum um þetta efni og þeirri stefnu, sem ríkisstj. og Seðlabanki hafa fylgt, að leggja þann skilning í orð okkar eða stefnu okkar, að við teljum, að ætti að koma á algeru jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir lánsfé með vaxtahæðinni einni saman. Það hef ég aldrei sagt í þeim miklu umr., sem ég hef þó tekið þátt í, um þessi mál og það hef ég engan stuðningsmann núv. ríkisstj. heyrt segja, svo að það eru algerlega rangtúlkaðar okkar skoðanir, ef þeim er gefin sú merking. Það, sem gera þarf í þessum málum nú, er ekki, eins og ástandið er, að lækka vexti að óbreyttri tilhögun lána, heldur að athuga möguleika á því að vísitölutryggja útlán til langs tíma og athuga þá vaxtalækkun í því sambandi, þ.e.a.s., vaxtalækkun á vísitölubundnum lánum. Það er þetta, sem ríkisstj. hefur verið að athuga undanfarið og er enn að athuga og hefur þegar tekið ákvörðun um að því er snertir húsnæðismálalánin, sem vextir hafa verið lækkaðir á um helming, samtímis því sem þau lán hafa verið vísitölutryggð. Ríkisstj. telur það vera hina skynsamlegustu stefnu í þessum málum að athuga mjög gaumgæfilega, hvort ekki er hægt að útvikka einmitt þetta kerfi, þessa tilhögun á útlánum, að gera lán til langs tíma háð verðlagsbreytingum og þá um leið að lækka vexti á slíkum lánum, m.ö.o.: þeir, sem þá áhættu taka á sig að þurfa að endurgreiða sín lán, sem þeir fá til lengri tíma, með jafnverðmiklum krónum, þeir fá þá áhættu bætta og með fullkomnum rétti með því móti, að þeir njóta þá lægri vaxta. Ríkisstj. hefur þegar sýnt það í sínum aðgerðum varðandi húsnæðismálalánin, að hún telur þessa stefnu vera skynsamlega og hún mun athuga, hvort ekki er hægt að færa hana út til fleiri sviða.

Hv. þm. gerði mikið úr því, að vextirnir, eins og þeir eru nú, séu mikill baggi á framleiðsluatvinnuvegunum og þá væntanlega ekki sízt útflutningsatvinnuvegunum. Ef það er athugað, hversu mikið sjávarútvegurinn mundi spara við það, að þetta frv. yrði samþ., þ.e. að vextir yrðu lækkaðir niður í það, sem þeir voru 1959, kemur í ljós, að sjávarútvegurinn mundi spara í vaxtagjöldum 40 millj. kr., meira að segja rétt innan við 40 millj. kr., en það er um 1% af heildarkostnaði sjávarútvegsins. Af þessum einföldu tölum sést, hvílík reginfjarstæða það er, að munurinn á þeirri vaxtahæð, sem nú er og þeirri vaxtahæð, sem mundi vera, þótt þetta frv. yrði samþ., hafi einhverja úrslitaþýðingu fyrir afkomu sjávarútvegsins. 40 millj. kr. fram eða til baka hafa engin úrslitaáhrif fyrir afkomu sjávarútvegsins. Hins vegar mundi vaxtalækkun auðvitað bitna á öllum þeim, sem eiga spariféð og ef athuguð er heildarupphæð sparifjárins í bönkum og sparisjóðum nú og reiknað út, hversu mikið vaxtatekjur sparifjáreigenda af heildarsparifénu mundu nema, kemur í ljós, að á einu ári mundu sparifjáreigendur í heild missa um 110 millj. kr. vaxtatekjur. Þetta frv. þýðir því í raun og veru að svipta sparifjáreigendur 110 millj. kr. vaxtatekjum á heilu ári, en sjávarútvegurinn mundi ekki spara við þessa vaxtalækkun nema 40 millj. kr. eða því sem næst 1% af sínum heildarframleiðslukostnaði. Þetta tekur af öll tvímæli um, hversu fjarri það er, að þessi vaxtamál hafi þá þýðingu, sem þau eru mjög oft talin hafa í áróðri hv. stjórnarandstæðinga og þá sérstaklega áróðri hv. Framsfl.

Þá vil ég að síðustu fara örfáum orðum um þá staðhæfingu hv. þm. í ræðu sinni áðan, að hin svokallaða innstæðubinding í Seðlabankanum hafi verið skaðleg, en eitt atriði frv. er, að lagt er til, að slíkri innstæðubindingu sé hætt. Ég vil í því sambandi aðeins undirstrika, að tilgangur innstæðubindingarinnar í Seðlabankanum var og er að gera Seðlabankanum kleift að halda áfram útlánum sínum til sjávarútvegs og landbúnaðar samfara því, sem honum er þá gert kleift og hefur verið gert kleift að mynda gjaldeyrisvarasjóð. En þrátt fyrir það, að Seðlabankinn hefur á undanförnum árum getað myndað gjaldeyrisvarasjóð, sem nú 1. okt. nemur hvorki meira né minna en 1.548 millj. kr., — það er síðasta talan, sem til er um gjaldeyrisvarasjóðinn, hann nemur 1.548 millj. kr., — samtímis því, sem Seðlabankinn hefur getað byggt upp þennan gjaldeyrisvarasjóð, hefur hann getað haldið áfram stofnútlánum sínum til sjávarútvegs og landbúnaðar og meira að segja aukið þau heldur. Endurkeyptir víxlar af sjávarútvegi og landbúnaði námu í ársbyrjun 1960 857 millj. kr., en 1. okt., þ.e. 1. þ. m., námu þessi lán Seðlabankans til sjávarútvegs og landbúnaðar 913 millj. kr. Þau voru m.ö.o. 1. þ. m. 56 millj. kr. hærri en þau voru í ársbyrjun 1960 og þetta hefur tekizt, ekki aðeins að halda þessum útlánum Seðlabankans, heldur jafnframt auka þau samtímis því,

sem Seðlabankinn hefur myndað 1.548 millj. kr. gjaldeyrisvarasjóð. Þetta hefði auðvitað ekki tekizt nema með því móti, að Seðlabankinn hefði fengið nokkra hlutdeild í sparifjármyndun landsmanna, eins og tilgangur hinnar svonefndu innstæðubindingar raunverulega var.

Svo var það að síðustu sú staðhæfing hv. þm. í ræðu hans áðan, að erlend lán þjóðarinnar væru nú miklu hærri, en þau hefðu nokkurn tíma áður verið og hærri, en þau voru í ársbyrjun 1960, þegar núv. ríkisstj. tók við völdum. Það er rétt, að heildarskuldir þjóðarinnar erlendis eru nú meiri en þær voru þá. En upphæð heildarskulda þjóðarinnar gagnvart öðrum löndum er ekki það, sem mestu máli skiptir, þegar um það er dæmt, hvort land sé óeðlilega skuldugt erlendis eða ekki. Enginn hefur mér vitanlega nokkurn tíma haldið því fram, að heildarupphæð erlendra skulda út af fyrir sig sé mælikvarði á það, hvort fjárhagur þjóðar sé heilbrigður eða óheilbrigður. Það, sem máli skiptir varðandi erlendar skuldir þjóðar er, með hvaða kjörum þær eru fengnar og með hvaða gjaldfresti hin erlendu lán eru fengin. Það, sem var alvarlegt í ársbyrjun 1960 var, að skuldir þjóðarinnar þá voru bæði með erfiðum kjörum og þó fyrst og fremst, að lán hafa verið tekin til mjög stutts tíma. Það, sem var alvarlegast við ástand þjóðarinnar gagnvart útlöndum í ársbyrjun 1960 var, að mjög verulegur hluti af erlendum skuldbindingum þjóðarinnar var til aðeins nokkurra ára, þannig að samanlögð tala vaxta og afborgana af þessum lánum var orðin alveg óeðlilegur hluti af gjaldeyristekjum þjóðarinnar, var fyrirsjáanlegt að færi upp í um 11% af heildargjaldeyristekjum þjóðarinnar og þegar þannig er ástatt, að þjóð þarf að nota meira en 1/10 hluta af sínum heildargjaldeyristekjum til þess eins að borga vexti og afborganir af erlendum skuldum, þá er voðinn vís og það var þessi voði, sem við gerðum okkur ljóst að var fyrir hendi í ársbyrjun 1960. Þessu hefur tekizt að gerbreyta. Samsetning þeirra erlendu skulda, sem Íslendingar eru nú í gagnvart öðrum þjóðum, er orðin gerólík því, sem var í ársbyrjun 1960 og mjög verulegur hluti, miklu, miklu stærri hluti, en þá er nú til mjög langs tíma og þess vegna er það engan veginn merki um óheilbrigt fjármálaástand, þó að erlendar skuldir þjóðarinnar séu nú hærri, en þær voru í ársbyrjun 1960. Það, sem máli skiptir, er, að kjörin eru betri, en þau voru þá og gjaldfresturinn er mun lengri en þá var og þess vegna er það tvímælalaust rétt staðhæfing, að einnig á þessu sviði hafi efnahagsstefnu núv. ríkisstj. tekizt að láta gott af sér leiða.