01.03.1965
Neðri deild: 48. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 172 í C-deild Alþingistíðinda. (2349)

131. mál, eignaréttur og afnotaréttur fasteigna

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég get vel skilið, að hv. þm. þyki full ástæða til varúðar í því sambandi, að lagaákvæði séu nægilega sterk til að hindra óeðlileg áhrif útlendinga hér á landi, bæði í sambandi við eignar- og afnotarétt og einnig atvinnurekstrarréttindi þeirra. Það getur verið álítamál, hvort á að gera það skilyrði í l., að aukinn meiri hl. þurfi að vera í höndum Íslendinga, til þess að hlutafélög megi starfa hér, eins og hv. 1. þm. Austf. vék að og eins og hann réttilega benti á að er gert í sumum Norðurlandanna, að vísu ekki Danmörku, og það er atriði, sem mér finnst eðlilegt að komi til athugunar í n. og vilji þingsins fái að koma fram um það, ef menn telja ástæðu til þess. Ég held nú, að hættan sé ekki eins mikil og menn vilja vera láta. Það hefur ekkert á henni borið. En ég hef engan veginn neitt við það að athuga, þó að það sé athugað og tekið til frekari skoðunar, hvort ætti að breyta frv. að þessu leyti. En ég minni á það, að ekkert ákvæði hefur verið í íslenzkum lögum um þetta fram til þessa. Nú er tekið upp það nýmæli, að meira en helmingur hlutafjár skuli vera í höndum íslenzkra ríkisborgara.

Mér er ekki heldur alveg ljóst það, sem hv. þm. vék að og las upp úr grg. með þáltill., sem framsóknarmenn fluttu hér í fyrra, um þá miklu þörf, sem sé á endurskoðun l. um atvinnurekstrarréttindi Íslendinga og ég held, að hættan sé hér miklu minni, en hann vill vera láta og það munu menn sjá, ef þeir athuga málið nánar. Með þeim ákvæðum, sem eru í þeim l., sem nú gilda, og gerð er grein fyrir í fskj., er ekki hlaupið að því fyrir útlendinga að stunda hér atvinnurekstur og það er síður en svo, að það sé ekkert verulegt aðhald í löggjöfinni, þó að hún sé kannske nokkuð á víð og dreif. Auk þess má segja, að það sé kjarninn í öllum atvinnurekstri, sem um munar, að menn geti haft eignarrétt yfir atvinnutækjum og fasteignum fyrst og fremst og það eru ákvæði þessara l., sem til þess taka. Það er ekki mjög auðvelt, held ég, að gera sér grein fyrir því, að það geti verið áhrifamikill atvinnurekstur á höndum útlendinga hér, ef þeir mega ekki eiga neinar fasteignir og hafa ekki neinn afnotarétt af fasteignum. Ég sem sagt held, að það sé í þessari grg. þáltill. gert of mikið úr því, að okkar löggjöf sé ekki nægjanlega sterk til að forðast erlend áhrif og hv. þm. hafi líka gert of mikið úr því, þó að ég engan veginn vilji hafa á móti því, að það mál verði kannað til hlítar undir meðferð málsins hér í þingi og er alveg sjálfsagt.

Hann vék svolitið að hlutafélagalögunum og í sambandi við það vil ég upplýsa, að þau eru í endurskoðun og hafa verið um lengri tíma og það hefur átt sér stað könnun á því að samræma hlutafélagalöggjöf okkar og Norðurlandanna og hafa verið tveir hæstaréttardómarar í þessu að undanförnu. Þeirri endurskoðun er ekki lokið, en það væri náttúrlega rétt að upplýsa n., sem fær málið til meðferðar, um það, hvað þeirri endurskoðun er langt komið og hvort einstök atriði hlutafélagalöggjafarinnar, sem verið er að fjalla um, eru kannske þess eðlis, að það sé rétt, að n. sé kunnugt um það, áður en slíkt frv. er afgreitt. Ég vil gjarnan hlutast til um, að hún geti fengið þær upplýsingar, sem hún þarf þar að lútandi.

Það má líka segja, að það sé nokkurt álítamál um það, hvort ráðh. á að geta veitt leyfi, eins og hann hefur mátt gera fram til þessa, þó að skilyrði l. séu ekki uppfyllt. Og því er einnig haldið í 1. gr., að þó að þau skilyrði, sem þar eru sett, séu ekki uppfyllt, geti ráðh. veitt leyfi, ef ástæða þyki til. Um þetta fjölluðum við, við undirbúning þessa frv., en það varð niðurstaða okkar, að það mundi verða nokkuð erfitt að setja takmörk fyrir þessu og þá ekki ljóst, hvernig þau ættu að vera. En komi fram hugmyndir um það undir meðferð málsins eða í n., er einnig sjálfsagt, að það sé rækilega athugað. En við sjáum það nú í löggjöf hinna Norðurlandanna, það litla sem til hennar er vitnað hér, að þetta ákvæði er þar eins og engar takmarkanir á heimild ráðh. til að veita sérstök leyfi, ef ekki eru uppfyllt hin almennu skil yrði I. Það varð því úr, að þetta ákvæði er óbreytt í frv., eins og það nú er í l. Það hefur aldrei komið til þess og ég hef ekki trú á því, að það feli í sér neina sérstaka hættu, eins og hefur verið gefið í skyn.

Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um þetta, en það, sem hv. 1. þm. Austf. benti á, eru allt atriði, sem rétt er að taka til nánari meðferðar og þá einnig um atvinnurekstrarréttindi útlendinga, ef mönnum þykir þurfa að setja strangari ákvæði, en nú þegar eru í löggjöf um það atriði.