27.04.1965
Neðri deild: 72. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í C-deild Alþingistíðinda. (2361)
190. mál, Lánasjóður sveitarfélaga
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Sveitarfélögin hafa löngum fundið til þess, að skortur væri á framkvæmdafé til ýmiss konar fjárfestingar og rekstrarfé þeim til handa, en bæði samkv. landslögum og venjum og eðli máls eru margvísleg verkefni, sem á sveitarfélögunum hvíla, — verkefni, sem krefjast bæði stofnfjár og rekstrarfjár. Þau verða að hafa með höndum margháttaðar byggingarframkvæmdir og annað, sem þeim er óhjákvæmilegt að fá lánsfé til, vegna þess að ekki er jafnan unnt að fá nægilegt fé úr sveitarsjóðum og ríkissjóði til þeirra framkvæmda. Eins er það með rekstur sveitarfélaganna, að rekstrarútgjöld þeirra falla að verulegu leyti jafnt á alla mánuði ársins, eins og það hvað snertir launagreiðslur, framfærslu og ýmislegt fleira, en tekjur sveitarfélaganna koma seint inn. Meginhluti þeirra tekna, sem sveitarstjórnir hafa, innheimtast á síðari hluta ársins. Þannig sést á yfirliti, sem Samband íslenzkra sveitarfélaga hefur látið gera fyrir árið 1963 varðandi innheimtu útsvara, aðstöðugjalda og fasteignagjalda í kaupstöðum, að á 1. ársfjórðungi innheimtust aðeins 101/2%, 2. ársfjórðungi 16%, 3. ársfjórðungi 25%, 4. ársfjórðungi rúm 48%. Ef maður tekur hina tvo helminga ársins, þá höfðu innheimzt fyrri helming ársins aðeins tæp 27%, en á síðari helming rúm 73%. Af þessu má ljóst vera, hversu brýn þörf er á rekstrarlánum þeim til handa, a.m.k. mikinn hluta ársins.
Samband íslenzkra sveitarfélaga hefur frá stofnun sinni rætt þetta mál, ég held á hverjum fundi, fulltrúafundi og þingi, sem hefur verið haldinn og gert álitsgerð um það og aðalósk og till. sambandsins hefur verið, að stofnaður yrði sérstakur sveitarfélagabanki til að annast þessi verkefni.
Vegna þess að hér er um að ræða mjög mikilvægt verkefni, sem óhjákvæmilegt er að finna lausn á, var skipuð n. manna í ágústmánuði 1963 til að rannsaka og gera till. um, á hvern hátt rekstrar- og stofnlánaþörf sveitarfélaganna verði bezt leyst. En hingað til hefur ekki verið nein sératök lánastofnun, sem hefur haft það hlutverk að veita sveitarfélögunum lán. Í þessa n. voru skipaðir þeir Jónas Guðmundsson formaður Sambands íslenzkra sveitarfélaga, formaður, ráðneytisstjórarnir í fjármála- og félmrn., Hjálmar Vilhjálmsson og Sigtryggur Klemenzson, Jón Maríasson bankastjóri Seðlabanka Íslands, Ásgrímur Hartmannsson bæjarstjóri á Ólafsfirði, Gunnlaugur Pétursson borgarritari í Reykjavík. Þessi n. ræddi ýmsar leiðir til úrlausnar þessu máli og að lokum varð alger samstaða í n. um þær till., sem þetta frv. felur í sér. En aðalefni þess er að stofna lánasjóð sveitarfélaga, sem verður sjálfstæð stofnun, sameign ríkisins og sveitarfélaganna.
Þessi sjóður hefur fyrst og fremst það hlutverk að veita sveitarfélögunum stofnlán til nauðsynlegra framkvæmda og aðstoða þau við öflun stofnlána og hafa milligöngu um töku þeirra. Í öðru lagi hefur sjóðurinn það verkefni, að annast samninga við lánastofnanir um bætt lánakjör sveitarfélaga, sem búa við óhagstæð lánakjör eða veita þeim lán til greiðslu óhagstæðra lána. Í þriðja lagi að aðstoða sveitarfélögin við útvegun nauðsynlegra rekstrarlána hjá bönkum og sparisjóðum og ábyrgjast slík lán, ef þörf krefur. Það er ekki gert ráð fyrir, að lánasjóðurinn veiti sjálfur rekstrarlán, enda er ekki gert ráð fyrir á hinn bóginn, að hann taki við innláns- eða sparifé, en hins vegar er gert ráð fyrir, að hann hafi milligöngu um það við aðrar lánastofnanir, banka og sparisjóði, að greiða fyrir rekstrarfjármálum sveitarfélaganna og þá, ef á þarf að halda, með því, að sjóðurinn gangi í ábyrgð fyrir slíkum lánum. Í fjórða lagi er það orðað svo í álíti n., að hlutverk lánasjóðsins sé að stuðla að því, að sveitarfélögin verði traustir og skilvísir lántakendur, sem ekki þurfi að setja tryggingar fyrir lánum, sem þeim eru veitt, nema sérstaklega standi á.
Það er gert ráð fyrir að afla sjóðnum tekna með þeim hætti, að ríkissjóður leggi honum til 15 millj. kr. á ári og að jöfnunarsjóður sveitarfélaga leggi fram sömu upphæð, 15 millj. á ári, þetta verði aðaltekjustofnar sjóðsins, en auk þess er gert ráð fyrir, að hann taki lántökugjald, sem sé 1% af lánsfjárhæð þeirra lána, sem sjóðurinn veitir og taki gjald vegna ábyrgða, sem hann kann að takast á hendur og á það að vera 1/2% af hverri ábyrgðarfjárhæð. Þá er gert ráð fyrir, að sjóðurinn geti gefið út skuldabréf til sölu á innlendum lánamarkaði til að afla sér fjár.
Lán úr sjóðnum til sveitarfélaganna mega vera allt að 20 árum og er gert ráð fyrir, að fjárhæð stofnlána megi vera allt að 75% af áætluðu kostnaðarverði hlutaðeigandi framkvæmda.
Það er gert ráð fyrir, að sérstök stjórn verði yfir þessum sjóði og sé hún skipuð 7 mönnum. Þeir skulu valdir þannig, að sameinað Alþingi kjósi með hlutfallskosningu 3 menn í stjórnina, fulltrúaráð Sambands íslenzkra sveitarfélaga kjósi aðra 3, ráðherra skipi einn mann, sem jafnframt sé formaður sjóðsstjórnar.
Þessi eru aðalatriðin í frv. og skal ég ekki rekja það öllu lengra, en vísa til þeirrar ýtarlegu greinargerðar, sem frv. fylgir.
Ég vænti þess, að þetta mikla hagsmuna- og nauðsynjamál sveitarfélaganna fái góðar undirtektir hjá hv. alþm., og legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.