30.04.1965
Neðri deild: 77. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í C-deild Alþingistíðinda. (2369)

198. mál, verðtrygging fjárskuldbindinga

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Hér er um ákaflega víðtækt mál að ræða, sem hefur stórkostleg áhrif á allt efnahagskerfið og þjóðarbúskapinn og er nýmæli. Vil ég nú mega vænta þess, þó að hæstv. ráðh. segði það ekki beint, að það geti ekki verið ætlunin að gera tilraun til að afgreiða þetta mál á hv. Alþ. á örfáum dögum, sem eftir eru af þinghaldinu í þetta sinn, eftir því sem manni skilst. Það er ekki einu sinni orðinn tími nú til þess að lesa nál., sem snjóar að og nýjum málum rignir frá hæstv. ríkisstj., þannig að það kemur nálega eitt nýtt mál á dag. Og manni er sagt að stærstu málin séu ókomin enn, en þinginu eigi að ljúka umfram alla muni fyrir 15. maí.

Við þessi skilyrði er vitanlega óhugsandi að afgreiða stórfelld eða flókin nýmæli eins og hér er um að ræða og vil ég mega skilja orð hæstv. viðskmrh. þannig, að þetta frv. sé lagt fram til þess, að umr. geti átt sér stað um þau þýðingarmiklu atriði, sem það fjallar um, menn geti svo velt því fyrir sér og haft tóm til að bera saman bækur sínar, áður en til úrslita ætti að draga á hv. Alþ. Í þessu frv. eru t.d. æðimörg atriði, sem ýmsir í þessum sal hafa vafalaust velt fyrir sér áratugum saman, án þess að hafa komizt að niðurstöðu um þau. Því er það áreiðanlega ekki til of mikils mælzt, að menn fái góðan tíma til að komast til botns í þessu.

Það er ekki neitt áhlaupaverk að átta sig á því, hvað í þessu máli raunverulega felst eða hvað af því getur leitt eða hvernig bregðast skuli við öllum þeim nýju viðhorfum, sem blasa víð, þegar málið er skoðað. Ég ætla að eyða hér örfáum mínútum til að bregða upp dálitilli mynd af því viðfangsefni, sem þetta frv. færir okkur. Ég ætla ekki að ræða hér almennt um verðbólgumálin, sleppi því alveg og þess í stað nota þessar mínútur til að bregða upp nokkrum atriðum, sem í hugann koma, þegar menn renna augunum yfir þetta í flýti, en öðruvísi hefur ekki verið hægt að athuga málið.

Ég álít, að þetta mál eigi heima í víðtækri endurskoðun, sem þyrfti að framkvæma á efnahagskerfínu, því að sannleikurinn er sá, að það er náttúrlega engin ein ráðstöfun, eins og hæstv. ráðh. raunar kom inn á, sem getur læknað þau vandkvæði, sem við eigum við að búa, heldur yrðu margar ráðstafanir að koma til, sem yrðu að tengjast saman. Ég mundi því telja mjög vel til fallið, að mál eins og þetta t.d. hefði verið skoðað í mþn., sem starfaði til næsta Alþingis. En það er önnur saga og mætti athuga þá hugmynd í n., ef mönnum sýndist hún þess virði, að hún væri skoðuð. En sannast að segja eru mál eins og þessi þannig vaxin, að menn þurfa að bera sig saman um þau, áður en þau koma til úrslitameðferðar á hv. Alþ., og þyrfti að breyta málsmeðferð hér mjög, eins og ég hef oft bent á um vissar tegundir mála og þetta er ein slík málategund, m.a. með því að hafa samráð fyrir fram við stjórnarandstöðuna varðandi undirbúning þeirra.

Ég skal víkja að því fyrst, að við í Framsfl. höfum haft ákaflega mikinn áhuga á því, að hægt væri að taka upp verðtryggingu sparifjár til þess að koma í veg fyrir verðrýrnun þess. Hefur það þá vakað fyrir okkur að auka frjálsan sparnað, því að það er eitt versta böl í sambandi við verðbólguna, hve sparifé almennings rýrnar, fé þeirra, sem verður að treysta á að leggi af frjálsum vilja sparifé inn í efnahagskerfið. Það hefur svo dregið úr löngun manna til að fara af fullri ráðdeild með fjármuni, ýtt undir óheilbrigða fjárfestingu að ýmsu leyti og alls konar eyðslu. Menn hafa ekki haft trú á því að geyma sparifé sitt af ótta við, að það rýrnaði í verði. Við höfum hvað eftir annað vakið máls á verðtryggingu, og oft hefur þetta verið skoðað, en aldrei hefur orðið úr því, að verulegar ráðstafanir hafi verið gerðar í þessa átt.

Eitt af því, sem ég vil sérstaklega benda á nú í sambandi við þetta frv., er einmitt það, að ég óttast, að eftir þeim leiðum, sem frv. gerir ráð fyrir, verði mjög skammt komizt í þá átt að verðtryggja sparifé og frjálsan sparnað almennings. Ef menn treysta sér ekki til þess að vísitölubinda útlán til skemmri tíma en þriggja ára, sýnist mér meginhlutinn af öllum útlánaviðskiptum bankanna verði utan við þetta verðtryggingakerfi og þar með mikill hluti eða kannske nálega allt sparifé landsmanna, þetta nýja kerfi geti því ekki orðið að liði við að koma verðtryggingu á spariféð. Nú má vera, að það verði lengra hægt að komast í þessu efni, en mig grunar og mundi það koma í ljós, ef skýrslur væru lagðar fram eða áætlanir, hversu mikið af sparifénu gæti fengið vernd með þeim ákvæðum, sem ráðgerð eru í frv. En ekkert slíkt er að finna í grg. málsins, engar upplýsingar eða bendingar um það, að hve miklu liði þessi stefna varðandi verðtryggingu útlána og sparifjár gæti komið við að verðtryggja sjálft spariféð.

Ég hef alltaf litið þannig á, að verðtryggingin á frjálsum sparnaði almennings væri aðalatriðið í þessu máli. Ég hef aldrei litið á það sem keppikefli að koma vísitölubindingu á allar skuldir manna, t.d. lán til langs tíma. Ég hef alltaf viljað nálgast þetta mál þannig, að verðtryggingin á sparifé almennings, til að örva hinn frjálsa sparnað, væri aðalatriðið og innleiða svo að sjálfsögðu þá vísitölubindingu á lánum á móti, sem nauðsynleg er, til þess að þetta verði framkvæmanlegt, en mjög vafasamt hvort það ætti að vera þar umfram. Ég óttast sem sé, að ekki meira athuguðu máli, að ekki verði langt hægt að komast í þessu efni eftir þeirri leið, sem gert er ráð fyrir í frv. Má þó vera, að hægt sé að komast lengra, en mig grunar og kemur það þá fram við rannsókn á þessu máli, sem hlýtur að verða að fara fram. M.a. hlýtur að verða að fá til afnota fyrir hv. Alþ. og n., sem fjallar um málið, þær álitsgerðir, sem hljóta að liggja hér á bak við frá trúnaðarmönnum Seðlabankans og öðrum, sem hafa fjallað um þetta. Það hljóta að vera merkar og umfangsmiklar álitsgerðir og rannsóknir, sem farið hafa fram, sem liggja til grundvallar þeim uppástungum, sem gerðar eru í frv. Það er nálega ómögulegt að átta sig á því til nokkurrar hlítar, hvað í málinu felst í veigamestu þáttum þess, nema eiga aðgang að þessum upplýsingum.

Ef meiningin er að halda þannig á málinu, sem mér skildist nú hálft um hálft og hef líka hlerað, að það verði lagt fram núna, til þess að umr. geti átt sér stað og menn áttað sig á því eitthvað og síðan verði unnið að því áfram, þá mundi ég telja það mjög mikils virði, að nefndin, sem fær þetta mál, fengi þessar rannsóknir, skýrslur og álítsgerðir til afnota fyrir þm. milli þinga og fyrir flokkana.

En það er fleira í þessu frv. en þessi þáttur, sem ég hef nú farið um nokkrum orðum. Í frv. er heimild til þess í 6. gr. að setja vísitölubindingu á lánveitingar úr öllum opinberum fjárfestingarlánastofnunum, að því leyti sem þær starfa með verðtryggðu fé eða starfa með eigin fé. Ég gæti ímyndað mér, að yrði þetta samþ., yrði það ofan á í langflestum eða öllum opinberum fjárfestingarlánastofnunum, að þær sæktu um þetta til Seðlabankans og sennilega fengjust leyfi til að vísitölubinda nálega öll þvílík útlán, því að í þessum sjóðum er nú að mjög miklu leyti starfað með eigin fé, þ.e.a.s. með þjóðfélagsins fé, það fé, sem ríkið hefur lagt þessum stofnunum. Mundi þá afleiðingin af þessu frv. verða sú í framkvæmd, að ríkið eða það opinbera fengi sína fjármuni tryggða með vísitölubundnum útlánum, þó að sparifjáreigendur fengju sáralitla verðtryggingu á sinn sparnað. Ég mundi telja, að afleiðingin yrði þá líka sú, eins og ég sagði áðan, að meginhlutinn af öllum fjárfestingarlánum í landinu yrði með vísitölubindingu.

Það er engin smávegisákvörðun, sem þarna er um að tefla. Þetta er mjög byltingarkennd ráðstöfun í efnahagsmálum og mér þykir ástæða til, að menn velti því fyrir sér, hvernig þetta mundi geta orðið í framkvæmdinni, áður en menn taka afstöðu til þess. Heimildin er sem sagt um að innleiða vísitölubindingu á þau lán, sem lánuð eru úr opinberum fjárfestingarstofnunum af eigin fé þeirra, sem í flestum tilfellum er, eins og ég sagði áðan, þjóðfélagsins fé, lagt fram til þessara stofnana.

Þá er það lagt á vald þessara stofnana, fjárfestingarlánastofnana og Seðlabankans, að ákveða, hvernig þessar vísitöluklásúlur skuli vera. En til þess að benda á, hvað hér er um mikinn vanda að ræða og hversu vandlega þarf að skoða þetta mál, vil ég benda mönnum á 4. gr., a-liðinn, þar sem stendur, með leyfi hæstv. forseta: „Verðtrygging skal yfirleitt miðuð við vísitölu framfærslukostnaðar, eins og hún er reiknuð á hverjum tíma. Seðlabankanum skal þó heimilt að leyfa, að verðtrygging sé miðuð við aðra vísitölu eða við breytingar tiltekins vöruverðs, enda sé sú viðmiðun betri mælikvarði á greiðslugetu þess aðila, sem tekst á hendur verðtryggða skuldbindingu.“ M.ö.o.: það er gert ráð fyrir að leggja það á vald þeirra, sem stjórna þessum fjárfestingarlánasjóðum og Seðlabankans að ganga frá því, hvernig þessar vísitölur verða byggðar upp, hvernig verðtryggingunni er háttað, hvort miðað er við þá almennu framfærsluvísitölu eða hvort miðað er við eitthvað allt annað. Og þetta sýnir enn, að þeir, sem hafa samið þetta mál, hafa fundið, hve hér var um vandasamt efni að ræða og erfitt að setja eina allsherjarreglu, grípa þá til þess að heimila þessum stofnunum að ráðstafa þessum málum eftir sínum geðþótta.

Það er ákaflega stórt skref, sem hv. Alþ. stigur, ef það felur stjórnum fjárfestingarlánastofnana og stjórn Seðlabankans að gera ákvarðanir af þessu tagi, t.d. að ráða því, hver skuli vera sú vísitala, sem breyta skuli lánum til sjávarútvegsins, til landbúnaðarins o.s.frv. Ég get ímyndað mér, að það, sem þarna er um að ræða, sé sú hugsun, að ekki eigi allir jafnþægilegt með að standa undir lánum af þessu tagi og þess vegna verði að mismuna í þessu tilliti. Og þá sjáum við, að það yrðu þessar stofnanir, sem hefðu valdið til þess að mismuna atvinnuvegunum t.d. Hér er því um stórfellt grundvallaratriði að ræða í lánapólitíkinni og raunar í öllum þjóðarbúskapnum og ég á ákaflega erfitt með að ímynda mér, að það geti komið til mála, ef á að fara út á þá braut að kveða á um þessa hluti, að þeir geti orðið ákveðnir annars staðar, en á Alþingi.

Svo kemur sú spurning inn í þetta, hvað það er að innleiða vísitölubindingu á fjárfestingarlánunum til að verðtryggja það fé, sem ríkissjóður eða ríkið á í fjárfestingarlánasjóðunum. Ekki er það gert til að verðtryggja sparifé almennings.

Hvernig verkar þetta svo á dýrtíðina í landinu og verðgildi peninganna? Er alveg víst, að þetta verki til að gera verðbólguvandamálið léttara viðfangs? Er það alveg víst? Getur ekki komið til mála, að það þurfi að skoða ýmsa fleti á þeim málum? Ég er alls ekki viss um, að svo verði, nema þá ráðstöfun af þessu tagi sé liður í heilli keðju, sem framkvæmd væri og mætti gera sér von um, að stöðvaði verðbólguþróunina. En sé þetta gert eitt út af fyrir sig, getur stafað af því margvíslegur vandi til að glíma við.

Ég vil taka dæmi um íbúðalán. Ef menn þurfa að greiða af íbúðalánunum samkvæmt vísitölu og það mistekst að halda verðbólgunni í skefjum, vaxa vitanlega þær greiðslur, sem menn þurfa að inna af höndum af íbúðalánunum og þá vaxa þær kaupkröfur, sem menn gera á hendur atvinnuvegunum og þetta verkar að sjálfsögðu dýrtíðaraukandi og til þess að auka hraðann á dýrtíðarhjólinu.

Alveg eins er með landbúnaðarlánin. Það er ákaflega þýðingarmikið undirstöðuatriði, hvaða lánakjör eru í landbúnaðinum, vaxtakjör og lánakjör. Ef innleidd er vísitölubinding á landbúnaðarlánunum, fjárfestingarlánunum til landbúnaðarins og mistekst að halda dýrtíðinni í skefjum, ekki gerðar aðrar nægilega sterkar ráðstafanir til að koma á nýrri skipan, þá aukast verðkröfur landbúnaðarins. Þá þarf að hækka verðlagið á landbúnaðarafurðunum, þegar lánavísitalan hækkar og menn þurfa að greiða hærri fjárhæðir af lánunum.

Svo gætum við tekið sjávarútveginn. Ef það mistekst að halda dýrtíðinni í skefjum og búið er að setja vísitölubindingu á sjávarútvegslánin, verður erfiðari afkoma bátanna og frystihúsanna og verðkröfur þeirra vaxa og ef illa gengur með efnahagskerfið að öðru leyti, vaxa kröfur þessarar atvinnugreinar um að fá uppbætur og aðrar fyrirgreiðslur.

Á þessu sjáum við glöggt, hvað þetta er allt saman gersamlega samantvinnað og því þarf þetta að skoðast í heild og íhuga það gaumgæfilega, hvaða áhrif það hefur á stöðu atvinnuveganna í þjóðfélaginu og verðlagsmálin, ef farið væri inn á þá braut að vísitölubinda nálega öll stofnlán til atvinnurekstrarins og til íbúðabygginga.

Ég legg áherzlu á, að þetta, sem ég hef verið að ræða varðandi fjárfestingarsjóðina og lán úr þeim til langs tíma og vísitölubindingu þeirra, á ekkert skylt við ráðstafanir til að tryggja sparifé almennings og gerir ekkert aðgengilegra fyrir menn að safna í sparisjóði og auka þar með það fjármagn, sem er til útlána og umráða í landinu, í staðinn fyrir að eyða fénu. Það er allt annar þáttur í þessu máli. Og ég óttast, að í þeim mikilsverðasta þætti þessa máls verði lítið ágengt samkv. þessu frv., aftur á móti verði afleiðingar þess mjög víðtækar í sambandi við ákvæðin um að taka upp vísitölubindingu á nálega öllum fjárfestingarlánum. En sú mundi verða afleiðingin, ef þær stofnanir, sem hér eru nefndar í 6. gr., fjárfestingarlánastofnanirnar og Seðlabankinn, ættu að fá þessi mál í sínar hendur.

Færi það þannig, yrði útkoman sú, að ríkið eða þjóðfélagið, sem á þessa opinberu fjárfestingarsjóði, mundi tryggja sig, tryggja sína peninga, en aftur á móti yrðu sparifjáreigendur alveg afskiptir og kæmi lítið öryggi eða trygging fyrir þá. Og ef til vill gæti farið svo illa, ef ekki tækist vel með dýrtíðarmálin og verðbólgumálin yfirleitt, að hagur sparifjáreigenda versnaði, þ.e.a.s. verðrýrnun á sparifé yrði meiri en ella, eftir að búið væri að setja þetta vísitöluhjól á fjárfestingarlánin.

Nú má vera, að það geti farið svo, að við nánari athugun komi í ljós, að ýmislegt af þeim kvíða, sem setur að manni í sambandi við fyrstu skoðun á þessu máli, sé kannske ekki eins ástæðu mikið og manni virðist í fljótu bragði. En mér fannst alveg lífsnauðsyn að vekja athygli hv. þm., sem sennilega fæstir hafa haft tækifæri til að kynna sér þetta mál meira en við, sem erum í stjórnarandstöðunni, á því, sem hér er á ferð, þannig að menn skoðuðu þetta gaumgæfilega frá öllum hliðum.

Eitt er það líka, sem er mjög nauðsynlegt í sambandi við þetta mál, ef lagt yrði út á þá braut að innleiða vísitölubindingu á nálega öllum fjárfestingarlánum í landinu, en það er að tryggja í sömu löggjöfinni, að vextir lækkuðu stórlega um leið, en ekki eiga það undir sól og regni, hvað yrði um vextina í sambandi við meðferð þessara mála hjá öðrum stofnunum en Alþ., þegar til kæmi. Þetta er atriði, sem líka er ástæða til að minnast á.

Ég vil svo ekki, af því að mér er kunnugt, hve mikil nauðsyn er á að þoka hér áfram ýmsum málum, lengja mál mitt um þetta meira, þó að það væri margt fleira, sem ástæða væri til að segja. En ég vildi vekja athygli á þessum atriðum og vona, að samkomulag verði um, að þetta mál fái ýtarlega skoðun. Og sérstaklega vil ég enn beina því til nefndarinnar, sem fær málið, að hún fái frá Seðlabankanum og þeim, sem fjallað hafa um þetta, þær skýrslur, rannsóknir og álitsgerðir, sem hljóta að liggja að baki málinu og fái þær núna á þessu þingi, áður en þinginu slítur, til þess að menn geti fengið aðgang að og áttað sig á þessu flókna og mjög þýðingarmikla máli.

En ég vil láta það verða mín síðustu orð, að ég álít, að jafnhliða því, sem þarf að skoða mjög vel þessi ákvæði, sem þarna er stungið upp á varðandi fjárfestingarlánin, þarf ekki síður að einbeita sér að því að athuga, hvort ekki væri hægt að gera víðtækari ráðstafanir, en þarna er gert ráð fyrir, til að tryggja sparifé almennings og ýta þar með undir hinn almenna frjálsa sparnað. Það ríður ekki á því umfram allt að tryggja fjárfestingarsjóðina, sem ríkið byggir upp að verulegu leyti með sínum framlögum, heldur hinu, að tryggja þann almenna sparifjáreiganda gegn tjóni og örva þann frjálsa sparnað í landinu, sem við eigum svo mikið undir.