22.10.1964
Neðri deild: 5. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í C-deild Alþingistíðinda. (2376)

18. mál, bygging leiguhúsnæðis

Flm. (Einar Olgeirsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt hv. 2. og 5. landsk. þm. að flytja hér frv. til l. um byggingu leiguhúsnæðis. Tilgangur þessa frv. er að tryggja, að ríkisstj. hafi heimild til þess að byggja allt að 500 íbúðum á næsta ári og hún megi taka að láni allt að 200 millj. kr. til að gera þetta og hún megi ýmist í samráði við bæjarstjórnir eða húsnæðismálastjórn ráðstafa þessum íbúðum þannig, að þetta leiguhúsnæði sé leigt út með þeim ákvæðum, sem í frv. segir.

Orsökin til þess, að við flytjum þetta frv., er, að það er bæði í Reykjavik og víðar tilfinnanlegur skortur á leiguhúsnæði. Ástandið í landinu er þannig, að einkaframtakið svokallaða bætir alls ekki úr þessum vandræðum. Ég veit vart til þess nú, að þeir, sem byggingar stunda, byggi til að leigja út, þannig að hér standa menn frammi fyrir algerum skorti oft og tíðum á því að geta fengið þak yfir höfuðið. Og afleiðing af þessum skorti er, að það er okurverð á leiguhúsnæði nú, bæði í Reykjavík og víðar á landinu. Íbúðir eru leigðar t.d. í Reykjavík á allt að 5 þús. kr. á mánuði og þó nokkuð þar yfir. Og þegar menn athuga, að laun verkamanna fyrir 8 stunda vinnudag eru kannske 70–80 þús. kr. á ári, þá geta menn gert sér í hugarlund, hvernig það muni eiga að vera að borga 60 þús. kr. á ári fyrir leiguhúsnæði. Þarna stendur þjóðfélagið frammi fyrir vandræðum, sem hið opinbera verður að leysa. Þetta er ófært ástand, sem þjóðfélagið getur ekki látið viðgangast og það er enginn annar aðili, sem getur leyst þetta, heldur en hið opinbera sjálft, ríki og bæir. Við tökum það fram. Alþb.-menn, í grg. fyrir þessu frv., að þetta sé þó aðeins hjálp í neyð. Höfuðatriði í okkar stefnu í þessum málum er að gera mönnum mögulegt að byggja sjálfir og eignast sjálfir íbúðarhúsnæði. Í grg. stendur, með leyfi hæstv. forseta:

Till. þær, sem felast í þessu frv., eiga því ekkert skylt við varanlega framtíðarlausn á húsnæðisvandamálunum. Slík framtíðarlausn þyrfti að vera byggð á félagslegu átaki almennings, er ríkið aðstoðaði með því að veita lán, er nemi helzt 75–90% byggingarkostnaðar, til langs tíma, 60–80 ára og með lágum vöxtum, 2–4%, enda þyrfti þá að vera tryggt stöðugt verðgildi krónunnar og útrýming alls brasks með íbúðir. Till. um framtíðarlausn húsnæðismála munu þm. Alþb. leggja fram óháð þessu frv.“

Við lögðum sérstaka áherzlu á það, um leið og við fluttum þetta mál, að framtíðarlausn okkar á þessum málum væri önnur og hana höfum við markað oft áður hér á þingi og munum líka gera nú. Hana markaði Sósfl. í gamla daga og Alþfl. raunar líka 1948, þegar þeir fengu fram einhverja róttækustu húsnæðismálalöggjöf, sem samþ. hefur verið og var framkvæmd í 1–2 ár, áður en hún var síðan afnumin 1948, þannig að það ætti ekki að þurfa neitt að efast um, hver sé höfuðstefnan í þessum málum. Ég segi þetta vegna þess, að í morgun er í Morgunhlaðinu leiðari nr. 2 undir fyrirsögninni „Eigin íbúðir eða leiguíbúðir“, þar sem gerð er alveg sérstaklega merkileg tilraun — eða ómerkileg, mundu menn kannske segja, til þess að rangfæra þessa stefnu. Og leiðaranum lýkur með þessum orðum, með leyfi hæstv. forseta:

„Þess vegna er það auðvitað í fullu samræmi við þeirra stefnu, þ.e. hinna vondu kommúnista, — „að reyna að hindra það, að menn eignist íbúðarhúsnæði og láta ríkið eitt standa í húsbyggingum.“

Ég nefni þetta sem dæmi, af því að farið er að lesa að morgninum í útvarpið leiðara úr blöðum, að það er hart, að það skuli vera til ritstjórar, sem leggja það í vana sinn að ljúga vísvitandi til þess að koma lygunum í útvarp. Og það er vert, að menn athugi alvarlega, hvað menn eru að gera með slíkum hlutum. Þær till., sem hér liggja fyrir, hafa veruleg áhrif á, hvað kemur til með að gerast í framtíðinni og svo verður um fleiri till., sem við flytjum, Alþb.–þm., og það er þess vegna rétt, að bæði Alþingi og ríkisstj. athugi mjög vel, hvað þeir gera í sambandi við þau frv., sem við nú flytjum. Við vitum ósköp vel, þótt við viljum hafa það sem höfuðstefnu að gera mönnum kleift að byggja eigin íbúðir, að með þeim aðbúnaði, sem menn hafa til slíks enn sem komið er, vantar mikið á, að öllum sé það fært. Og það er ekki við því að búast, að ung hjón, sem eru að byrja að búa, geti gert sér það kleift að byggja íbúðir upp á kannske 5, 6, 7, 8 hundruð þús. kr., eins og nú er almennt orðinn kostnaður á sumum íbúðum, og það þýðir, að menn verða að geta komizt í leiguíbúðir, a.m.k. um nokkurt skeið á ævinni. Það er enn fremur vitanlegt, að margt fólk er það efnalítið, að það hefur yfirleitt ekki efni á slíku. Og stórar fjölskyldur eru í vandræðum yfirleitt að fá inni, t.d. í Reykjavík, barnafjölskyldur og gamalt fólk, þarf líka á því að halda, að slíkar íbúðir geti verið því opnar eins og leiguíbúðirnar. Þess vegna er ekki til neins að halda því fram, að þó að maður vilji stefna að því að koma upp íbúðarhúsnæði þannig, að menn eigi það sjálfir, getur það ekki verið eina og algilda stefnan, eins og ástandið er nú í þjóðfélaginu og eins og kjörin eru til þess að eignast eigin íbúðir. Þess vegna er alveg óhjákvæmilegt, að leiguíbúðum sé komið upp um leið og það gerir enginn annar, en hið opinbera.

Við leggjum áherzlu á það í þessu frv., að þetta verði að gerast á tæknilega hagnýtan máta, tökum fram, hvað það þurfi að byggja margar, t.d. hér í Reykjavík skuli bjóða út a.m.k. 100 íbúðir í einu, þær séu með svipaðri gerð, 2–3 herbergja, því að á þeim er mestur skorturinn. og það er vitanlegt, að aðferðirnar við að byggja yfirleitt, sérstaklega hér í Reykjavik, eru algerlega óþolandi frá því sjónarmiði, hvað það er dýrt og óskipulagt og það byggja varla nokkrar þjóðir á sama máta og við gerum. Og við eigum að geta byggt miklu ódýrar, en nú er gert og þess vegna eru sérstök ákvæði í þessu frv., einmitt til þess að hið opinbera með sínum afskiptum af þessu tryggi slíkt og í samræmi við það, að hið opinbera á að geta gert það, setjum við það ákvæði í frv., að leigan skuli vera 8% af verði íbúðanna. Við reiknum þá með því, að ríkið útvegi sér sjálft lán, t.d. 2–3%. Ríkið ræður því sjálft, hvernig það lætur Seðlabankann lána sér eða aðra slíka og jafnvel þeir sjóðir. sem það vildi fá lán hjá, þyrftu ekki að græða nema lítið á þeim. Við álítum, að það sé hægt með slíku móti að tryggja, að leiga í slíkum íbúðum, sem komnar væru upp, ætti að vera ekki nema helmingur af því, sem nú er algengt í þessum íbúðum, sem mjög dýrt eru leigðar, helmingi lægri ætti hún að geta verið en okurleigan, sem nú tíðkast.

Ég álít, að það beri að athuga mjög alvarlega svona till. og vil sérstaklega beina því til hæstv. ríkisstj. að taka þessi mál til alvarlegrar athugunar, ekki sízt í sambandi við þær vinnudeilur, sem búast má við á næsta vori. Afgreiðsla þessa máls verður viss prófsteinn á ábyrgðartilfinningu Alþingis um, hvað menn vilja gera í sambandi við lausn þeirra vinnudeilna, sem yfir vofa í júní næsta ár og við skulum gera okkur það ljóst, að yfirleitt með þau frv., sem við komum til með að flytja hér í vetur um ýmsar endurbætur fyrir almenning, er það allt saman þáttur í því að reyna að gera þessar vinnudeilur auðleystari.

Verkalýðssamtökin sýndu það í júnísamkomulaginu í vor, að þau vilja meta aðgerðir, t.d. í húsnæðismálum, sem kjarabót. Húsnæðisútgjöldin eru nú einhver tilfinnanlegustu útgjöld launþegafjölskyldu, hvort sem það eru útgjöld til eigin húsnæðis eða útgjöld til leigu. Ekki sízt er það svo fyrir unga fólkið. Stórlækkun á útgjöldunum til húsnæðis er því ákaflega þýðingarmikil sem þáttur í lausn á þeim vinnudeilum, sem verða næsta vor. Eins og menn muna, sömdu verkalýðsfélögin í júní síðasta ár um vopnahlé til eins árs. Það, hvað gerist í þessu eins árs vopnahléi, ræður áreiðanlega úrslítum um, hvað gerist næsta vor. Þegar kemur að vinnudeilum, segja venjulega flestir, að þeir vilji fá friðsamlega lausn og þeir vilji ekki láta koma til verkfalla. Ég vil taka fram það álít mitt, að það, hvað gert er í vetur hér á Alþingi, hefur að mínu áliti úrslitaáhrif á, hvað gerist í vor. Ef róttæk umbótalöggjöf, eins og við þm. Alþb. höfum flutt og flytjum nú aftur og munum bæta nýjum við, — ef róttæk umbótalöggjöf verður samþ., léttir það alla samninga í vor, því að verkalýðssamtökin hafa sýnt það, að þau taka mikið tillit til þess, hvaða endurbætur er hægt að knýja fram eða fá framkvæmdar á Alþingi.

Það er að vísu ekki neitt nýtt, að verkalýðssamtökin geri slíkt. Það hefur viðgengizt í yfir 20 ár, að þau jafnvel svo að segja setji lög með verkföllum, að það sé samið um þá hluti í verkföllum eða vinnudeilum, sem síðan verða lög. Svo var um orlofslögin, þegar þau voru samþ. Svo var um atvinnuleysistryggingasjóðinn, þegar honum var komið á. Svo var um 12 tíma hvíldartíma á togurum o.fl. Þetta er rétt fyrir alla þm., hvort sem þeir eru með ríkisstj. eða í stjórnarandstöðu,að hafa í huga.

Ég verð að segja það, að asnaspörk eins og þau í leiðara Morgunblaðsins í morgun sýna ákaflega vel það skilningsleysi, sem er til í röðum ofstækismanna í stjórnarflokkunum og það ofstæki er alveg þveröfugt við þann skilning, sem hæstv. ríkisstj. sýndi í vor. Og ég býst líka við, að það samkomulag, sem hæstv. ríkisstj., verkalýðssamtökin og atvinnurekendur gerðu þá, hafi ekki verið að skapi þeirra ofstækismanna, sem láta til sín heyra á svipaðan hátt og er gert í þessum leiðara Morgunblaðsins í morgun.

Ég vil, herra forseti, leggja til að, að lokinni þessari umr. sé þessu frv. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn. Það á að vera hlutverk þessa þings að leysa þannig lífskjaramál verkalýðs og launafólks, að samningar næsta vor verði því auðleystari. Það er hægt á þessu þingi og það er einmitt tíminn á þessu þingi til að framkvæma þær endurbætur, sem geti skapað áframhaldandi frið og komið í veg fyrir vinnudeilur. Ef Alþingi vanrækir þá skyldu sína að afgreiða slíkar endurbætur, stofnar það til harðvítugra vinnudeilna. Það er vitanlegt, að verkalýðurinn muni ekki sætta sig við annað en stórfelldar lífskjarabætur, á hvern hátt sem þær verða, því að hann á rétt á þeim. Afstaðan til þessa frv. eins og fleiri frv., sem við komum til með að flytja, verður þess vegna prófsteinn á vilja og getu Alþingis til að leysa þau vandamál, sem launafólkið í landinu, verkafólkið og alþýðan yfirleitt, á við að búa og um leið eru vandamál þjóðarinnar í heild.