02.11.1964
Neðri deild: 9. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 255 í C-deild Alþingistíðinda. (2400)
26. mál, vinnuvernd o.fl.
Flm. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Þetta frv. var frumflutt á síðasta Alþingi, en hvort tveggja er, að frv. er nýsmíði í íslenzkri löggjöf að mestu leyti og kom tiltölulega seint fram á síðasta Alþingi og má því heita eðlilegt, að það hlyti ekki afgreiðslu á síðasta þingi. En nú hefur hv. þm. gefizt tóm til að hugleiða efni þess og væri þess meiri von, að frv. næði fram að ganga á þessu þingi.
Ég hef tekið það fram í grg., að sitthvað af nýmælum þeim, sem í frv. felast, kunni að orka tvímælis og hef lýst því yfir og endurtek það hér með, að ég er að sjálfsögðu fús til allra viðræðna og nákvæmari athugunar á slíkum efnisatriðum og meira að segja til viðtals um breyt. á efnisatriðum frv. Hins vegar tel ég svo mikla þörf á, að almenn vinnuverndarlöggjöf hér á landi verði sett, að ég legg á það áherzlu, að hv. alþm. kryfji þetta mál til mergjar og séu viðbúnir þess á öðru þingi, nú þegar það er flutt, að afgreiða það sem lög.
Í vorsamningunum milli Alþýðusambands Íslands, vinnuveitendasamtakanna og ríkisstj. var gefið fyrirheit um það, að á þessu þingi yrði afgreidd vinnuverndarlöggjöf og má því segja, að það sé samningsatriði milli verkalýðssamtakanna og ríkisstj., að slík löggjöf verði sett. Hitt skal ég fram taka, að það var ekki um það samið, að það verði nákvæmlega þetta frv., sem verði gert að lögum, heldur var gert ráð fyrir því, að hin svokallaða vinnutímanefnd ynni að undirbúningi málsins og hefur hún gefið út yfirlýsingu um það, að hún muni stefna að því að hafa slíkt frv. tilbúið svo snemma, að það geti hlotið afgreiðslu. Hvort það yrði nýtt frv., sem kæmi fram frá vinnutímanefnd, þá sennilega sem samkomulagsgrundvöllur eða það yrði þetta frv., sem yrði lagt til grundvallar slíks samkomulags, skal ég ósagt láta. En a.m.k. liggur það augljóst fyrir, að þetta frv. er sá lágmarksgrundvöllur, sem Alþýðusamband Íslands gæti sætt sig við, að því er snertir efni slíkrar lagasetningar sem þessarar.
Þetta frv. er allyfirgripsmikið. Það er í 8 köflum. Efni frv. felst í 7 köflum þess, 8. kaflinn er einungis um gildistöku frv. og efni kaflanna er um það, hvernig aðbúnaður skuli vera í fyrsta lagi á vinnustað, í öðru lagi ákvæði um vinnutíma og vinnutilhögun alla, í þriðja lagi sérstök ákvæði um vinnu kvenna. Og þá er næsti kafli sérstök ákvæði um vinnuvernd barna og unglinga. Í sambandi við hann er kannske ástæða til að minna á það, að í frv., sem gerð var grein fyrir hér í hv. d. fyrir nokkrum dögum, var kafli um vinnuvernd barna og unglinga. Það var í frv.- bálkinum um barnavernd, sem fyrst og fremst fjallar um siðferðileg vandamál ungmenna og eftirlit og vernd frá ríkisvaldsins hendi í sambandi við slík vandamál, en að engu leyti um vinnutíma barna eða þátttöku þeirra í atvinnulífinu. Það var líka tekið fram af höfundum þessa frv., sem var milliþn., að þeim væri það kunnugt, að erlendis væru slík lagaákvæði ekki í almennri barnaverndarlöggjöf, heldur í almennri löggjöf um vinnuvernd og töldu það réttilega orka tvímælis. Ég tel, að slík lagaákvæði sem þar voru eigi heima í löggjöf sem þessari, sem hér um ræðir, en alls ekki í hinni almennu barnaverndarlöggjöf. Þau ákvæði eru allt annars eðlis og sú löggjöf fjallar ekki um vandamál barna og unglinga í sambandi við þátttöku þeirra í hinu almenna atvinnulífi.
Næsti kaflinn í þessu frv. er svo um greiðslu vinnulauna. Um þau efni eru ákvæði í gildandi löggjöf og eru aðeins ákvæði þessa kafla nokkru fyllri og þær viðbætur, sem eru frá gildandi löggjöf, aðallega byggðar á reynslu hins vinnandi fólks í sambandi við greiðslu vinnulauna, um meðferð þeirra mála, sem betur mætti fara.
Þá er sjötti kaflinn um uppsagnarfresti, sjöundi kaflinn um refsiákvæði vegna brota á þessari löggjöf og að lokum sá áttundi um gildistöku laganna.
Ég veit ekki, hvort það hefur nokkra verulega þýðingu að flytja langt mál til skýringar þessu frv. Ég gerði nokkuð rækilega grein fyrir því á síðasta þingi og hygg, að örlög málsins velti miklu fremur á því, hvernig afstöðu þingmenn taka til þeirra hugmynda, sem í frv. felast við nákvæma skoðun og athugun á því og í öðru lagi ef til vill því, hvaða samkomulag kann að verða gert hér í þinginu um framgang löggjafar í einhverri mynd um almenna vinnuvernd og önnur þau atriði, sem í þessu frv. felast.
Herra forseti. Ég læt máli mínu lokið og legg til, að frv. verði, þegar þessari umr. lýkur, vísað til hv. heilbr.- og félmn.