12.11.1964
Neðri deild: 14. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 275 í C-deild Alþingistíðinda. (2412)

44. mál, menntaskóli Vestfirðinga

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Það var út af ræðu hv. 5. þm. Vestf., sem mig langar til að segja hér aðeins örfá orð. En ég tek það fram, að það verður mjög lítið, sem ég segi hér að þessu sinni, vegna þess að á dagskrá fundarins í dag er annað frv. um menntaskóla, sem ég er 1. flm. að,og vonast ég til þess, að mér gefist þar tækifæri til að tala meira um þessi mál.

Ég get vel skilið áhuga hv. 5. þm. Vestf. á því, að Vestfirðingar fái menntaskóla og ég get metið hans rökfasta og harða málflutning því til stuðnings og ég get tekið undir flest þau rök, sem hann hafði þar fram að færa, svo og aðrir þeir, sem hér hafa talað. En mér hefði fundizt viðkunnanlegra, að hann hefði treyst sér til þess að fylgja þessu réttlætismáli sinu úr hlaði án þess að láta uppi dylgjur til annarra og brigzlyrði og það þá helzt til þeirra, sem málinu eru hlynntir. Hann sagði, hv. 5. þm. Vestf., Hannibal Valdimarsson, að þeir menn, sem flyttu nú frv. til l. um byggingu menntaskóla í Reykjavík, sýndu vafasaman stuðning við þetta dreif býlismál. En ég vil fullvissa hann um það, að ég er hlynntur því, að Vestfirðingar fái menntaskóla og í því frv., sem ég hef flutt hér, er einmitt sérstaklega tekið fram af okkur flm., að það sé það, sem við viljum.

Hann sagði, að við reyndum að blekkja landslýðinn með því að segja í frv., að menntaskólar skuli vera fjórir, tveir í Reykjavík, einn á Akureyri og einn á Laugarvatni. Þessi uppsetning er ekki gerð til þess að blekkja einn eða neinn. Hún er aðeins gerð til þess, að því er varðar Menntaskólann í Reykjavik, að fá því máli framgengt með l. frá Alþingi, að menntaskólar í Reykjavík skuli verða tveir,og ég get ekki séð, að við hefðum getað komið þessari ósk á framfæri með öðru móti. Verzlunarskólinn og Kennaraskólinn starfa samkv. sérstökum lögum og heimildum og hafa leyfi til þess að brautskrá stúdenta og gera það, brautskrá nokkra stúdenta á ári. Þeir hafa náttúrlega fyrst og fremst annað aðalhlutverk, sem er að mennta fólk í verzlunarfræðum og undirbúa það undir kennarastarf. Við þurftum ekki, sem stöndum að þessu frv. hér, að flytja frv. til lagabreytinga, til þess að þessir skólar fái heimild til að brautskrá stúdenta, þeir hafa hana þegar. Við þurftum að flytja frv. til að fá að fjölga menntaskólunum í Reykjavík upp í tvo, vegna þess að í menntaskólalögunum segir, að hér skuli vera einn menntaskóli. Og ég kannast ekki við það, að þessi málflutningur sé til þess gerður að blekkja landslýðinn á því, að hér sé ekki nema einn skóli, sem hafi heimild til að brautskrá stúdenta. Ef einhver fær það út úr þessum málflutningi, þá er það misskilningur, það var aldrei tilætlunin.

Það er almennt viðurkennt, að Menntaskólinn í Reykjavik býr við ófullnægjandi húsakost og hann heldur áfram að gera það, enda þótt sú viðbygging, sem nú er verið að gera á menntaskólalóðinni, komist í notkun. Og það er enn fremur viðurkennt, að menntaskólinn í Reykjavik er of stór. Það er almenn skoðun skólamanna, að betri nýting verði að náminu í minni skólum heldur en svona stórum. Menntaskólinn í Reykjavik telur nú á 10. hundrað nemendur og ég gæti flutt fram mjög sterk rök fyrir því frá skólamönnum landsins, að þessi skóli sé of stór. En ég þarf þess ekki hér, vegna þess að það var rétt áðan gert af hv. 5. þm. Vestf. og það svo vel, að ég treysti mér ekki til að bæta um það. Hann sagði það alveg réttilega, þegar hann talaði fyrir sínu málí um menntaskóla á Vestfjörðum, að það væri einmitt spor til þess að fá betri menntaskólamenntun, en nú er að mynda þar skóla, sem ekki yrði mjög stór og taldi það fram máli sínu til stuðnings, að þar mundu verða 100–300 nemendur, sem væri miklu betri skóli en þegar nemendur væru 900–1000. Og ég er honum alveg hjartanlega sammála og þetta eru aðalrökin fyrir því, að það frv., sem ég stend hér að, er flutt.

Ég tel, að það hafi ekki verið hægt að fara fram á lagaheimild fyrir því að byggja annan menntaskóla í Reykjavík, sem nauðsynlegt er, bæði til þess að taka við einhverri fjölgun og eins til þess að minnka þann menntaskóla, sem fyrir hendi er, með öðrum hætti en að orða greinina eins og hér er gert. Ef við værum, flm.

frv., eingöngu að hugsa um það, að fleiri nemendur kæmust að, þá hefðum við náttúrlega alveg eins getað flutt frv. um það, að menntaskólanum yrði fenginn meiri húsakostur, en hann hefur nú, ef við værum ánægðir með það fyrirkomulag, að hann héldi áfram að stækka. Það er auðvitað hægt að byggja við Menntaskólann í Reykjavík þannig, að hann geti tekið 1500–2000 nemendur. En við, sem stöndum að þessu frv., sem ég hér tala fyrir, erum ekki þeirrar skoðunar, að það sé heppilega leiðin, heldur hitt, að byggja annan menntaskóla, þannig að þeir verði í hæfilegri stærð og geti veitt þá beztu kennslu, sem hv. 5. þm. Vestf. lýsti réttilega hér áðan.

Hitt er svo annað mál, sem ég skal koma að síðar, þegar að mínu frv. kemur, að það er mjög mikil nauðsyn á því að fjölga menntaskólum í landinu og ég tel sjálfsagt, að þeim sé dreift. Það er staðreynd, að við verðum að byggja framtíðar þjóðarheill okkar í vaxandi mæli á langskólamenntun, til þess að við getum tekið vísindi og tækni í þjónustu okkar á þann hátt, sem okkur er nauðsynlegt til þess að geta verið sjálfstæð þjóð. Hér fara of fáir í langskólanám eða í menntaskólanám og færri, en gerist með nágrannaþjóðum okkar og þessu þurfum við að breyta, ef við ætlum að halda til jafns við aðrar þjóðir í þeirri samkeppni, sem nú á sér stað í heiminum og ef við eigum að geta tryggt þegnum okkar sambærileg lífskjör við það, sem aðrir njóta. Og ég tek alveg undir það, sem hv. 5. þm. Vestf. sagði og margir aðrir hér, að ég tel sjálfsagt, að inn á þá braut sé farið að dreifa menntaskólunum, til þess að ná því æskilega jafnvægi í byggð landsins, sem allir nú virðast vera sammála um að nauðsynlegt sé. Það breytir ekki hinu, að Reykvíkingar eiga að mínum dómi rétt á því að njóta einnig þeirra beztu kjara í menntamálum, sem hægt er og til þess að svo geti orðið, hef ég leyft mér að flytja hér frv. um það, að menntaskólarnir hér í Reykjavík verði tveir, en ekki til þess að koma í veg fyrir, að Vestfirðingar fái menntaskóla eða til þess að blekkja landslýð í því efni, að Verzlunarskólinn og Kennaraskólinn hafi ekki heimild til að brautskrá stúdenta.