08.02.1965
Neðri deild: 39. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í C-deild Alþingistíðinda. (2484)

115. mál, sala Vindheims í Neskaupstað

Flm. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Frv. þetta er flutt eftir beiðni bæjarstjórnar Neskaupstaðar. Það fjallar um að heimila ríkisstj. að selja bæjarsjóði Neskaupstaðar jörðina Vindheim í Neskaupstað. Þessi jörð er í Neskaupstað, við botn Norðfjarðar norðanverðan, sem sagt innan lögsagnarumdæmis Neskaupstaðar.

Ég vil benda á, að það eru mjög mörg fordæmi fyrir því, að kaup af þessu tagi hafi átt sér stað og virðist eðlilegt, að kaupstaðurinn eigi bæjarlandið. Ég vænti, að það þurfi ekki að hafa lengri formála fyrir þessu máli, það er mjög einfalt, en sting upp á, að því verði vísað til n. að lokinni þessari umr., en legg það í vald hæstv. forseta, til hvaða n. það skuli fara.