11.03.1965
Neðri deild: 53. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 367 í C-deild Alþingistíðinda. (2496)
129. mál, áburðarverksmiðja
Landbrh. (Ingólfur Jónsson) :
Herra forseti. Í mörg ár hefur verið flutt frv. hér á hv. Alþ. af hv. 3. þm. Reykv., Einari Olgeirssyni, um það, að ríkið yfirtaki hlutabréf áburðarverksmiðjunnar og að áburðarverksmiðjan verði að öllu leyti eign ríkisins. Þetta frv. hefur verið rætt, en það hefur ekki komizt úr n. 1959 mun fjhn. hafa skrifað hluthöfum og leitað eftir því, hvort þeir vildu á frjálsan hátt láta hlutabréfin af hendi. Svar barst frá Sambandi ísl. samvinnufélaga, sem á stærsta hlutinn og var það neikvætt. Svar barst einnig frá nokkrum af hinum hluthöfunum og þeir töldu sig ekki á þessu stigi málsins geta svarað ákveðið um það, hvort þeir vildu af frjálsum vilja láta hlutabréfin af hendi. Nú er það ljóst með flutningi þessa frv., sem hér um ræðir, að afstaða Framsfl. hefur breytzt frá því 1959, því að þá vildu þeir ekki með frjálsum vilja láta hlutabréfin af hendi.
Það er rétt, sem hv. frsm. sagði hér áðan, að hlutabréfin í áburðarverksmiðjunni eru tiltölulega lítil upphæð miðað við það, sem verksmiðjan kostaði, þegar hún var byggð. Hún mun hafa kostað um 130 millj. kr. Og nú segir á þskj. 62, í grg., sem fylgir frv. hv. 3. þm. Reykv., að áætla megi verðmæti verksmiðjunnar í dag 350 millj. kr.
Ég tel, að það sé út af fyrir sig ekkert óeðlilegt, þótt afstaða manna til þessa máls væri nokkuð önnur nú en 1959 og það er vegna þess, að nú standa fyrir dyrum miklar breytingar á verksmiðjunni og stækkun og það er þörf á að stækka verksmiðjuna um allt að því helming. Það hlýtur að hafa mikinn kostnað í för með sér, og ef verksmiðjan á áfram að vera rekin sem hlutafélag, væri vitanlega eðlilegt, að hlutaféð væri aukið, um leið og lagt er í nýjan kostnað. Nú er ég í miklum vafa um það, að einkafjármagn sé fyrir hendi til þess að auka hlutaféð, og það gæti því verið, að aðrir hluthafar, en þeir, sem standa að SÍS og kaupfélögum innan SÍS, hefðu einnig breytt eitthvað um skoðun síðan 1959, hvað þetta snertir og þá ekki sízt vegna þess, að þeir telji sig ekki á þessu stigi hafa fjármagn til þess að auka hlutaféð. Það má gera ráð fyrir, að stækkun verksmiðjunnar kosti mikla fjárhæð. Ég hef ekki þær tölur fyrir hendi, en það hljóta að vera frekar hundruð millj., en aðeins tugir millj., og þá verð ég að viðurkenna, að það væri óeðlilegt, að hlutaféð væri ekki aukið, ef nota á áfram hlutafélagsformið við rekstur verkmiðjunnar.
Verksmiðjan hefur nú starfað á annan áratug. Hún hefur þegar sparað þjóðarbúinu mikinn erlendan gjaldeyri. Hún hefur gert landbúnaðinum örugglega mikið gagn. Og þótt stundum hafi staðið nokkur styrr um áburðarverksmiðjuna og þá sérstaklega vegna þess, að kornastærð áburðarins er ekki eins og fyrirhugað var og stundum hafi verið á það deilt, að réttar vélar eða tegund verksmiðju hafi ekki verið valin í upphafi, tel ég, að það sé engum til góðs að vera nú að deila um það. Ég tel miklu frekar, að það sé nauðsynlegt, að menn taki höndum saman til þess að gera þetta fyrirtæki vel úr garði, stækka það þannig, að það geti a.m.k. fullnægt áburðarþörfinni innanlands og búa þannig um hnútana, að um það megi verða friður. Og ef ekki er einkafjármagn fyrir hendi til þess að auka hlutaféð, er vitanlega ekki um annað að gera, en breyta l. þannig, að áburðarverksmiðjan verði ríkisfyrirtæki og að vissu leyti er hún ríkisfyrirtæki í dag, þar sem ríkið á meiri hl. af hlutafénu og meiri hl. af stjórninni er kosin af hv. Alþ. Ég vil taka það fram, að ég tel, að þetta rekstrarform, sem hefur verið á verksmiðjunni, hafi alls ekki hindrað góðan rekstur verksmiðjunnar og mér dettur ekki í hug að halda, að rekstur verksmiðjunnar hefði verið betri, þótt allir 5 stjórnarnefndarmennirnir hefðu verið kosnir af Alþ. Vissulega hefur verksmiðjan haft aðhald, þar sem bannað er í lögum verksmiðjunnar að selja áburðinn á hærra verði, en kostnaðarverði. Og verðið á áburðinum hefur oftast verið lægra, en sams konar innfluttur áburður hefði kostað. Ég tel því, að þótt áburðarverksmiðjunni hafi verið falinn innflutningur á áburði og einkasala á áburði, sé það út af fyrir sig ekki ástæða til þess að breyta l., vegna þess að áburðarverksmiðjan hefur aðhald og hún hefur aðeins tekið að sér rekstur áburðareinkasölunnar, og það var upplýst hér í vetur af framkvstj. og stjórn áburðarverksmiðjunnar, að á því að breyta fyrirkomulaginu hefur sparazt allmikið fé, miklir fjármunir, enda dettur engum nú í hug að neita því, að það sé heppilegra, þetta fyrirkomulag, heldur en það, sem áður var.
Það er gert ráð fyrir því, að hlutabréfin verði innleyst eftir hlutlausu mati dómkvaddra manna, og það er varla hægt að hugsa sér eðlilegri leið en þá, sem hér er nefnd í frv., hvað þetta snertir.
Ég get sagt eitthvað svipað og hv. frsm. sagði hér áðan, að hann sagðist út af fyrir sig ekki vera sérstaklega hlynntur ríkisrekstri. Ég býst við, að ég sé miklu minna hlynntur ríkisrekstri, en þó hann. Ég tel, að það eigi alls ekki að vera ríkisrekstur, nema þar sem ekki verður öðru við komið. Ég tel, að það eigi að vera félags- og einstaklingsrekstur, þegar einkafjármagn eða félagsfjármagn ræður við það. En við höfum löngu gert okkur ljóst, að það er margt í okkar þjóðfélagi, sem ekki verður rekið undir öðru formi, en ríkisrekstri. Við getum nefnt ýmis dæmi því til staðfestingar.
Eins og ég sagði, geri ég alls ekki ráð fyrir því, að í framkvæmd breytist reksturinn nokkurn hlut til batnaðar við það, þótt allir 5 stjórnarnefndarmennirnir verði kosnir af Alþ. Það er meira að segja ekkert ósennilegt, að jafnvel sömu mennirnir verði kosnir allir 5 og núna eru í stjórn. Ekki veit ég það, en mér þætti það ekkert ósennilegt. Og í framkvæmdinni á rekstrinum verður engin breyting. En annaðhvort á fyrirtæki að vera hreint hlutafélag eða ekki hlutafélag, og ef áburðarverksmiðjan er í dag 350 millj. kr. virði, eins og hv. 3. þm. Reykv. heldur fram og svo væri verksmiðjan stækkuð og kostnaður við það væri kannske 200 millj. eða meira, en hlutaféð aðeins 10 millj., þá vil ég taka undir bæði með hv. 3. þm. Reykv. og hv. 2. þm. Sunnl., að þá er varla hægt að nefna þetta nema að nafninu til hlutafélag. Og því er ekki að neita, að undir hlutafélagsforminu hefur verið reynt að vekja tortryggni og óánægju og jafnvel að halda því fram, að þeir, sem keyptu hlutabréf þarna, hafi gert það í gróðaskyni, þeir hugsi sér að græða á rekstri verksmiðjunnar, enda þótt staðreyndirnar sýni, að flest árin, sem verksmiðjan hefur starfað, hafi ekki einu sinni verið borgaðir vextir af hlutabréfunum, hvað þá það, sem kalla mætti arð.
Hv. frsm. sagði hér áðan, að það væri nauðsynlegt að skapa aðhald og breyta l. og gera þetta að ríkisfyrirtæki til þess að skapa meira aðhald, eftir að verksmiðjan hefði einkasölu á öllum áburði í landinu. Og með því að segja, að það þurfi að skapa aukið aðhald frá því, sem verið hefur, er verið að gefa í skyn, að það séu jafnvel einhverjar smugur fyrir hluthafana til þess að hagnast á rekstri þessa nauðsynlega fyrirtækis, sem þó á lögum samkv. að selja framleiðsluna á lægsta kostnaðarverði og ekki halda meira eftir árlega við uppgjör, heldur en nauðsynlegt má teljast til afskrifta, svo að hægt sé að halda fyrirtækinu við og endurnýja þær vélar, sem verða ónýtar. Ég hygg því, að það sé það rétta að breyta þessum l., eins og nú er komi, og þá sérstaklega vegna þess að, stækkunin stendur fyrir dyrum og það virðist vera leið til þess að útiloka þá tortryggni, sem reynt hefur verið að ala á, það virðist vera leið til þess að skapa ró og frið í kringum þetta fyrirtæki, sem þarf að stækka og verða öflugra, fyrirtæki, sem ekki aðeins bændurnir njóta góðs af, heldur er og á að verða þjóðþrifafyrirtæki. Það er þess vegna, sem ég tel rétt að breyta l. og það er sjálfsagt, að þetta mál fari í n. Ég hefði haldið, að það væri rétt að láta það fara í landbn., en ég skal engan ágreining gera úr því. En það er sjálfsagt, að sérfróðir menn athugi bæði þessi frv., sem fyrir liggja, frv. hv. 3. þm. Reykv. og hv. 2. þm. Sunnl. og fleiri framsóknarmanna og athugi, hverju þarf að breyta. Frv. þeirra hv. framsóknarmanna er að mörgu leyti fyllra, en ég geri ráð fyrir, að við nákvæma athugun þurfi ýmsu að breyta og sjálfsagt er til þessarar löggjafar að vanda sem allra bezt. Rétt er það, að ef hv. þm. verða nú í aðalatriðum sammála um, að það eigi að breyta þessum l., er náttúrlega engin ástæða til þess að draga það eða fresta því. Þá væri langeðlilegast, að l. væri breytt á þessu þingi og þá er það verkefni n. að athuga bæði þessi frv. og gera þær breytingar, sem með þarf, til þess að út úr þessu komi heildarlöggjöf, sem hægt er að una við til frambúðar.