22.10.1964
Efri deild: 5. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í B-deild Alþingistíðinda. (25)
2. mál, innheimta gjalda með viðauka
Frsm. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Í frv. þessu felst, ef samþ. verður, heimild til handa hæstv. ríkisstj. til þess að innheimta með viðauka ýmis gjöld, sem nánar eru ákveðin í frv. En löggjöf samsvarandi þeirri, sem um er að ræða, hefur, eins og flestum hv. þdm. er kunnugt, verið sett frá ári til árs um alllangt skeið að undanförnu. Frv., sem hliðstætt var þessu, var fyrir nokkrum árum allmikið ágreiningsmál hér á hv. Alþingi, en síðan hefur sú breyt. orðið á, að ýmis þau ákvæði tilsvarandi löggjafar, sem mestur ágreiningur var um, hafa verið tekin upp í önnur lög, og á síðasta þingi var, að mig minnir, enginn ágreiningur um afgreiðslu þessa frv. Eins og frv. ber með sér, er það nú orðið minna að vöxtum en þá var, þar sem ákvæði um bifreiðaskatt, skatt af hjólbörðum o.fl. hafa nú verið tekin inn í vegalögin.
Eins og nál. á þskj. 25 ber með sér, eru allir þeir nm., sem viðstaddir voru, er frv. var afgreitt, sammála um að mæla með því, að það verði samþ. óbreytt, en einn hv. nm. hefur þó, eins og fram kemur í nál., óbundnar hendur um afstöðu til málsins, en það er hv. 5. þm. Norðurl. e. En við hinir leggjum til, eins og nál. ber með sér, að það verði samþ. óbreytt.