09.04.1965
Neðri deild: 66. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 388 í C-deild Alþingistíðinda. (2510)

130. mál, loðdýrarækt

Jónas G. Rafnar:

Herra forseti. Eins og fram hefur verið tekið í nál. hv. 5. þm. Vesturl., hefur það verið deilumál meðal almennings í landinu og þá ekki síður hér á hæstv. Alþingi, hvort leyfa beri hér minkaeldi. Ég bjóst því ekki við því, að hv. landbn. mundi verða sammála um að mæla með frv., svo sem komið hefur á daginn og ég veit einnig, að hér í hv. þd. eru mjög skiptar skoðanir um mál þetta.

Frv. var sent nokkrum aðilum til umsagnar, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Búnaðarfélagi Íslands og veiðistjóra. Það má segja, að umsagnir þessara aðila hafi yfirleitt allar verið jákvæðar, og það atriði eitt út af fyrir sig sýnir, að afstaðan til þessa máls hefur töluvert breytzt frá því, að minkaeldi var bannað hér á landi með lögum.

Hv. 5. landsk. þm. og einnig hv. 5. þm. Vesturl. fundu að því, að frv. hefði ekki verið sent fleiri aðilum til umsagnar, þ. á m. að það hefði ekki verið sent náttúruverndarráði. Ég geri ráð fyrir því, að við flm. hefðum ekkert á móti því, að frv. væri sent til náttúruverndarráðs, en mundum þá óska þess mjög eindregið, að svar bærist frá ráðinu innan mjög skamms tíma, þar sem ekki eru margir dagar eftir af Alþingi.

Ég viðurkenni, að ég harma að sjálfsögðu engu síður en hv. 5. þm. Vesturl. allt það tjón, sem villiminkurinn hefur valdið hér á landi. Það er mjög tilfinnanlegt og ég vil segja, að það á enn eftir að verða allmikið. Hins vegar erum við flm. á þeirri skoðun, að minkaeldi undir ströngu eftirliti muni ekki á nokkurn hátt leiða til aukinnar minkaplágu, ef svo mætti að orði komast.

Í þessu sambandi verður að hafa þá staðreynd ríkt í huga, að villiminkur lifir góðu lífi hér víða um land og engar horfur eru á því, að honum verði útrýmt í náinni framtíð. Ég vil þá einnig taka fram eins og aðrir hv. þm., sem talað hafa í máli þessu, að ég er enginn sérfræðingur á þessu sviði og ég vildi leyfa mér að vitna til álits veiðistjóra, Sveins Einarssonar, sem birtist í dagblaðinu Vísi, að því er ég held 28. jan. s.l. Þar er haft eftir honum m.a. eftirfarandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Útbúnaður á minkabúrum mun nú víða orðinn það vandaður, að ekki ætti að vera hætta á, að dýrin sleppi úr haldi. Þó má gera ráð fyrir, að það geti komið fyrir og því ráðlegast, ef til kemur, að byrja í þeim landshlutum, þar sem villiminkurinn er fyrir.“

Enn fremur segir veiðistjóri: „Minkur, sem sleppur úr haldi, kann sig ekki fyrstu dagana úti í náttúrunni, og er því tiltölulega auðvelt að granda honum.“

Þetta vil ég undirstrika. Minkar, sem kæmust bæði út úr búrunum og undan veiðimönnunum, væru því það fáir, að engu máli skiptir upp á heildartölu villiminka í landinu. Undir þessa skoðun veiðistjóra hafa og fleiri kunnáttumenn tekið, sem telja bannið hreinustu fjarstæðu, eins og nú er háttað.

Á það hefur verið bent, að rekstraráætlanir fylgdu ekki frv. og af þeim ástæðum væri ekki hægt að fullyrða neitt um, hvort minkaeldi gæfi nokkuð í aðra hönd. Þar sem þessi atvinnugrein hefur verið bönnuð hér á landi um langt skeið, hafa flm. í þessu efni leyft sér að vísa til reynslu annarra þjóða og þá einkum til frænda okkar á Norðurlöndum.

Á árinu 1940 nam heildarframleiðsla Dana, Finna, Norðmanna og Svía um 110 þús. skinnum. En árið 1960 var framleiðslan komin upp í 3,5 millj. skinn. Og ég held, að ég fari rétt með, að á s.l. ári hafi framleiðslan verið eitthvað innan við 5 millj. skinna í þessum fjórum löndum. Ég spyr nú: Kemur nokkrum manni til hugar, að þessar þjóðir, sem allar saman eru kunnar að hagsýni, hefðu farið út í það að auka svo þessa atvinnugrein eins og tölur þessar sanna, ef hún gæfi ekki vel af sér? Enda má þar á benda, að á s.l. ári fluttu Danir einir út minkaskinn að heildarverðmæti um 1.000 millj. ísl. kr.

Í þessu sambandi verður einnig að hafa það í huga, að fóðuröflun er hér á landi miklu auðveldari og kostnaðar minni en í þeim löndum, sem ég minntist á áðan. Þannig má ætla, að minkarækt ætti einmitt hér á landi að gefa af sér meira, en víðast hvar annars staðar.

Í mörgum sjávarþorpum, sem á ýmsum tímum eiga við atvinnuleysi að etja, ætti þessi atvinnugrein einmitt að geta orðið veruleg lyftistöng.

Hv. 5. landsk. þm. taldi, að viss hætta fælist í því, að tízkan hverju sinni réði eftirspurn eftir minkaskinnum. Þetta er hverju orði sannara, að tízkan er breytileg. En þá gildir það ekki síður um aðrar framleiðsluvörur. Að undanförnu hafa verið uppi hugleiðingar um það að auka stórlega ullariðnaðinn hér á landi og fara að flytja út fullunnar íslenzkar ullarvörur í stórum stíl til útlanda. En það má benda á, að einnig á þessu sviði ræður tízkan. Það hlýtur að ráða miklu um framtíð þessarar atvinnugreinar, hvernig tízkan hagar sér og hvort það kemur til með að verða veruleg eftirspurn eftir íslenzkum peysum og öðrum ullarfatnaði, þegar til kemur. Og sama má segja um fjöldamarga aðra framleiðslu, að hún er hverju sinni háð duttlungum tízkunnar. Hins vegar liggur það fyrir sem staðreynd, að eftirspurn eftir minkaskinnum hefur stórlega farið vaxandi. Ég held það megi segja, að hún hafi síðan árið 1940 meira en sexfaldazt í öllum heiminum. Og það bendir til þess, að það geti varla verið veruleg hætta í því fólgin, þó að við Íslendingar hæfum þessa atvinnugrein hérna hjá okkur.

Eftir upplýsingum, sem ég hef fengið, munu fyrst í stað hafa einungis verið flutt hingað inn dýr af lélegum stofni, meðan minkaeldi var hér leyfilegt og þessi dýr gáfu af sér lítinn arð. En síðan var ráðin á þessu mjög mikil bót og það var vandað til þessa innflutnings, enda kom á daginn, að bæði á árunum 1949 og 1950 fékkst alveg sérstaklega gott verð fyrir íslenzk minkaskinn á bandarískum markaði, sem er sennilega vandlátasti markaðurinn á þessu sviði eins og flestum öðrum.

Í stuttu máli teljum við flm. frv., að eftirfarandi rök séu fyrir flutningi þess: Í fyrsta lagi: Hérlendis eru mjög góð skilyrði til minkaeldis og miðað við reynslu annarra þjóða má hafa af því verulegar og tiltölulega öruggar tekjur. Þessi atvinnurekstur, ef til kæmi, yrði traustur viðskiptavinur fiskiðjuvera og sláturhúsa og gæti stuðlað að aukinni atvinnu, þar sem hennar er sérstaklega þörf. Í öðru lagi : Með ströngu eftirliti á að vera unnt að ganga þannig frá minkabúrunum, að sáralitlar líkur séu til þess, að dýrin sleppi út. Í þriðja lagi: Villiminkur er þegar til í landinu og verður að öllum líkindum ekki upprættur. Það skiptir því ekki máli, þótt eitt og eitt dýr kunni að sleppa úr vörzlu. Þrátt fyrir það verður að leggja ríka áherzlu á örugga gæzlu og hegna fyrir vanrækslu í þeim efnum. Og svo að lokum í fjórða lagi: Eins og stendur höfum við Íslendingar einungis skaða og óhagræði af minknum, sem þegar hefur setzt hér að og veldur tjóni, en njótum ekki þess hagnaðar, sem minkaeldi veitir nágrannaþjóðum okkar, þótt skilyrði séu hér betri, en víðast hvar annars staðar á byggðu bóli.

Ég leyfi mér svo að lokum að þakka hv. landbn. fyrir afgreiðslu hennar á frv. og vona, að það verði samþykkt.