29.04.1965
Neðri deild: 75. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 406 í C-deild Alþingistíðinda. (2521)

130. mál, loðdýrarækt

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Ég á sæti í þeirri nefnd, sem fjallaði um þetta mál, en af sérstökum ástæðum gat ég ekki verið á lokafundi n., þegar málið var afgr. og þykir mér því rétt með örfáum orðum að gera grein fyrir afstöðu minni til málsins, því að hún er sú, að ég mun greiða atkv. á móti þessu frv.

Rökin, sem færð eru fram fyrir því, að við eigum að taka upp minkaeldi, eru þau, að þetta geti verið ábatavænlegt, ef vel tekst til og skal ég ekki neita því, þó að reynsla af minkaeldi hér áður fyrr, leiddi ekki til neins stórgróða, þvert á móti mun mikið hafa tapazt á þessum búrekstri, og er sú reynsla ekki til uppörvunar, ekki einu sinni að því, er þessa hliðina snertir.

Rökin, sem menn færa á móti því að taka upp minkaeldi aftur, eru aftur sú skaðsemi, sem hlotizt hefur af innflutningi minka hér áður fyrr og ótti manna við, að reynslan kynni að verða svipuð, ef minkaeldi væri tekið upp á ný. Og í viðbót við villiminkinn, sem nú með ærnum kostnaði er haldið nokkuð í skefjum, yrði þessi plága enn þá alvarlegri.

Menn vitna til erlendrar reynslu um, að það sé hægt að verjast þessum vágesti og hafa af honum gróða. Ég vil í sambandi við það segja, að það er ekki alveg einhlítt að vitna til annarra landa, að því er þetta snertir. Okkar land er nokkuð sérstætt. Það er stórt og mikill hluti þess óbyggður og þar að auki er mikill hluti af yfirborði þess þakinn hraunum, sem eru alveg sérstaklega til þess fallin að vera felustaður fyrir slík rándýr sem þessi og þannig miklu erfiðara hér á landi um útrýmingu þessara dýra, en t.d. í Noregi.

Ég bendi enn fremur á það einkenni á náttúru Íslands, að hér er mikið af fiskivötnum, margur lækurinn er fullur af silungi, mörg áin er full af silungi og laxi og að því er þessi náttúrugæði snertir, þá er minkurinn hættulegur skaðvaldur, auk þess sem hann gerir usla í fuglalífi í landinu.

Ég játa, að það væri að vissu leyti ánægjulegt, að hægt væri að taka upp, eins og aðrar þjóðir gera, slíka búgrein sem þessa, en til þess þarf að beita vísindalegum vinnubrögðum, til þess að fyrsta flokks minkaskinn fáist og haga eldinu skv. vísindalegum reglum. Ég veit ekki, hvort Íslendingar hafa nokkuð tileinkað sér þau fræði, og í annan stað er hálfgerð skömm að því, að ekki skuli vera hægt að treysta þjóðinni fyrir því að gæta allra varúðarreglna, sem við þarf, til þess að reka slíkan búskap með sæmd. En því miður, trassaskapur Íslendinga vekur mér ugg um það, að mönnum sé ekki treystandi til þess að gæta þeirra varúðarráðstafana, sem hér þarf við að hafa.

Annað kemur og til. Það var ekki eingöngu fyrir illan aðbúnað að minkabúum, sem minkar losnuðu og fóru út um hvippinn og hvappinn. Það kom fyrir, að hin vönduðustu minkabú, þar sem einskis hafði verið látið ófreistað til þess að byggja þau þannig, að þau væru örugg geymsla fyrir dýrin, fóru líka og dýrin sluppu. Ég þekki t.d. til þess, að eitt minkabú á Vestfjörðum splundraðist við það, að á það féll snjóflóð. Það hafði í sjálfu sér verið talið alveg fullnægjandi örugglega byggt. En þannig geta náttúruhamfarir komið og orðið til þess, að jafnvel tugir dýra sleppi í einu. Vatnsflóð, alveg eins og snjóflóð og skriðuföll, geta fallið á þann stað, þar sem minkabúinu hefur verið valinn staður og mætti þá segja, að þau slyppu ekki fyrir handvömm, heldur vegna þess, að ekki hafi verið rannsakað nægilega um staðsetningu slíks bús.

Þannig tel ég margvíslegar hættur vera á því, að minkurinn sleppi og verði hér enn alvarlegri landplága, en hann hefur verið. En um gróðahliðina tel ég borna von. Ég greiði því atkvæði á móti frv. á þessu stigi.