29.04.1965
Neðri deild: 75. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 410 í C-deild Alþingistíðinda. (2524)
130. mál, loðdýrarækt
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Ég vil mjög taka undir þá ósk, sem hér hefur komið fram og síðast frá hv. 5. þm. Vesturl., að þessari 2. umr. verði ekki lokið, fyrr en þær umsagnir, sem væntanlegar eru um frv. skv. beiðni landbn., liggja fyrir. Og ég vona fastlega, að hæstv. forseti taki þessa ósk til greina, að 2. umr. verði ekki lokið að þessu sinni.