03.05.1965
Neðri deild: 79. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í C-deild Alþingistíðinda. (2529)
130. mál, loðdýrarækt
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Frv. til l. um loðdýrarækt, sem hér liggur fyrir, var á sínum tíma til athugunar hjá hv. landbn., sem hefur fyrir nokkru skilað áliti um það. Með áliti meiri hl. n. fylgir umsögn frá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og enn fremur er þar prentuð ályktun, sem búnaðarþing gerði um þetta frv. í vetur. En ég tel eðlilegt af hv. n. að leita eftir áliti fleiri aðila um þetta frv. Ég vil minna á það, að til eru lög frá 1956 um náttúruvernd og í 5. gr. þeirra segir, að áður en leyfi er veitt til innflutnings á lifandi dýrum, skuli leita umsagnar náttúruverndarráðs. Nú veit ég ekki, hvort hv. n. hefur gert þetta. Ég veit ekki til þess, að umsögn frá því ráði liggi hér fyrir um þetta mál. Ég hef ekki orðið þess var. Hins vegar fengum við þm. nú rétt fyrir síðustu helgi bréf frá náttúrugripasafni, sem dagsett er 28. apríl og ég tel, að það væri fyllsta ástæða fyrir þdm. að kynna sér efni þess bréfs, áður en þeir taka afstöðu til þessa frv.
Í ályktun búnaðarþings er á það bent, að búnaðarþing telji, að ekki komi til mála að leyfa loðdýraeldi almennt. Síðar í ályktuninni segir þó, að hins vegar gæti komið til mála að leyfa minkaeldi til skinnaframleiðslu, en þó því aðeins að sýnt væri, að verulegur fjárhagslegur ávinningur yrði af því fyrir þjóðina í heild. Þetta segir búnaðarþing. Hér hefur alls ekki verið sýnt fram á það af flutningsmönnum þessa máls eða öðrum, að það mundi verða verulegur fjárhagslegur ávinningur af því fyrir þjóðina að taka nú aftur að leyfa minkaeldi. Landsmenn hafa nokkra reynslu af loðdýrarækt, því er ekki að neita. Fyrir fullum 30 árum voru allmargir menn víða um sveitir, sem settu á stofn refabú. Ég hygg, að þeir, sem byrjuðu á þessum atvinnurekstri, hafi haft af því nokkrar tekjur, á meðan þeir höfðu markað fyrir dýr innanlands til granna sinna og annarra, sem vildu fara út í þennan atvinnurekstur. En svo kom að því náttúrlega, að sá markaður fylltist. Þeir gátu ekki endalaust selt dýr hér innanlands með það fyrir augum, að þau yrðu alin í refabúum og þegar svo var komið að atvinnureksturinn þurfti að byggjast á því að selja refaskinn til útlanda, þá var draumurinn búinn. Upp úr því var lítið að hafa og þá lagðist þessi atvinnuvegur niður. Ég held einnig, að það megi segja um minkaræktina, sem hér var á tímabili, að menn hafi ekki spunnið silki af þeim atvinnurekstri. Nú er talað um, að minkaskinn séu í háu verði í nágrannalöndum. Ég er ekki kunnugur því, en ég vil benda á það, að þessi vara er tízkuvarningur og tízkan er duttlungafull í henni veröld. Því getur vel svo farið, að konur, sem vilja ganga vel til fara og vilja nú um þessar mundir skreyta sig með minkaskinnum, finni upp á því að breyta til, áður en langt um liður og velji sér einhver önnur efni í kápur en minkaskinn. Ég held, að það sé farsælla fyrir okkur að miða okkar framleiðslu við nauðsynjavörur og þá fyrst og fremst matvælaframleiðslu, því að alltaf er þörf fyrir matvæli. Og ég minnist þess, að ég hef lesið um það í blöðum ekki fyrir löngu, að íslenzkur maður hafi fundið upp nýja aðferð við að framleiða manneldisvörur úr fiskúrgangi frá frystihúsum og hann muni hafa sótt um einkaleyfi á þessari uppfinningu sinni. Ég held, að menn ættu að gefa þessu máli gaum. Þarna gæti vel opnazt möguleiki til þess að fá markað fyrir vöru frá fiskfrystihúsunum, betri markað, en nú er fyrir þennan úrgang. Það væri skemmtilegra, ef hægt væri að hagnýta hann á þann hátt.
Eins og kunnugt er, var minkaeldi bannað hér fyrir 10–15 árum með lögum frá Alþ. Og ef ég man rétt, þá var mikill meiri hluti þm. í þessari hv. d., sem stóð að þeirri lagasetningu. Og ég hef ekki heyrt nein frambærileg rök fyrir því, að nú eigi að breyta til og leyfa minkaeldi aftur. Ég held, að nú þurfi fyrst og fremst að gera gangskör að því að útrýma til fulls þessu skæða rándýri, en ekki að flytja fleiri slík til landsins.
Hér liggur fyrir í þessu máli brtt. á þskj. 463 frá hv. 5. þm. Norðurl. v. og hv. 4. þm. Reykn. Þeir leggja þar til, að áður en leyfi er veitt til minkaeldis, eigi ríkisstj. að senda hæfan mann til Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar til þess að kynna sér allt, sem við kemur minkaeldi og minkarækt og fyrst að fenginni jákvæðri greinargerð frá þeim manni, sem bendir til þess, að minkaeldi hér á landi muni reynast arðbær atvinnuvegur, þá sé landbrh. heimilt að veita leyfi til að reisa og reka allt að 20 minkabú. Þarna er á það bent í þessari brtt. eins og í ályktun frá búnaðarþingi, að það vanti enn upplýsingar um, hvort það muni verða eitthvað upp úr því að hafa að taka hér upp minkaeldi og mér finnst rökrétt afleiðing af því, sem kemur fram í þeirra brtt. og einnig í ályktun búnaðarþings, að það sé rétt að fresta nú afgreiðslu þessa frv., a.m.k. að fresta því að samþ. það. Þess vegna tel ég það rétt fyrir hv. d. að samþ. þá till., sem komið hefur fram frá minni hl. hv. landbn., að vísa málinu til ríkisstj. Það held ég, að sé réttasta meðferðin á þessu frv.