18.03.1965
Neðri deild: 56. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 448 í C-deild Alþingistíðinda. (2572)

153. mál, lögtak

Flm. (Hálfdán Sveinsson) :

Herra forseti. Frv. þetta er flutt að beiðni nokkurra forráðamanna verkalýðsfélaga. Sjúkra- og styrktarsjóðir þeir, sem hér um ræðir, eiga uppruna sinn í sáttagerð við lausn vinnudeilu hér í Reykjavík 1961. Verkamannafélagið Dagsbrún og nokkur fleiri félög sömdu um, að verkamenn skyldu greiða 1% af kaupi sínu í sjúkra- og styrktarsjóðina. Ýmis önnur félög, sem sömdu um svipað leyti, fögnuðu þessu ákvæði og sömdu þá um leið um 1% hærra útborgað kaup. Þannig voru félögin ekki á eitt sátt um stofnun þessara sjóða í byrjun, en reyndin varð sú, að innan tveggja ára höfðu velflest verkalýðsfélög tekið þetta ákvæði upp í samninga sína og nú er svo komið, að þessi þáttur í starfsemi verkalýðsfélaganna er bæði vinsæll og hagkvæmur. Enginn telur eftir að greiða 1% af launum sínum til sjóðsins. Fólkið fagnar því að geta veitt hvert öðru styrk og stuðning, þegar veikindi, slys og önnur óhöpp ber að höndum. Þetta ber að virða og viðurkenna.

Aðeins eitt veldur erfiðleikum þessarar starfsemi, en það eru vanskil fárra atvinnurekenda. Þess vegna er þetta frv. nú lagt hér fram. Það biður ekki um hærra kaup eða aukin sérréttindi verkalýðsfélögunum til handa. Það biður hv. Alþ. aðeins um aðstoð til að tryggja, að fé það, sem atvinnurekendur halda eftir af vinnulaunum fólksins og styrktarsjóðnum ber, sé greitt skilvíslega. Það telja flm., að verði bezt gert með því að lögbinda lögtaks- og fjárnámsrétt félögunum til handa við innheimtu þessara gjalda. Á s.l. sumri var gert margnefnt júnísamkomulag. Allir, sem lögðu hönd að því, höfðu af því mikinn og aukinn sóma. Fram undan er nú nýtt júnísamkomulag. Það veltur á öllu, að það takist giftusamlega ekki síður en hið fyrra. Sú ósk verkalýðsfélaganna, sem þetta frv. felur í sér, er bæði réttlát og sanngjörn. Þannig þarf júnísamkomulagið einnig að verða. Til áherzlu því, að svo verði, vænti ég, að hv. þm. samþykki þetta litla frv.

Herra forseti. Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og allshn.