27.04.1965
Neðri deild: 73. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 451 í C-deild Alþingistíðinda. (2583)

175. mál, bann gegn botnvörpuveiðum

Flm. (Guðlaugur Gíslason) :

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja hér á þskj. 427 frv. til l. um breyt. á 1. nr. 6 frá 17. febr. 1959, um bann gegn botnvörpuveiðum. Í 2. mgr. 1. gr. umræddra laga er heimild til handa ráðh. að veita vélbátum undanþágu frá banni gegn botnvörpuveiðum, ef um er að ræða veiðar með kampalampavörpu og leturhumarvörpu. Frv. þetta gerir ráð fyrir, að ráðh. verði einnig veitt heimild til að veita undanþágu til botnvörpuveiða með venjulegri fiskivörpu, þar sem það að dómi Fiskifélags Íslands kann að þykja henta og með þeim skilyrðum og takmörkunum, sem nauðsynlegar kunna að teljast.

Ég geri mér að sjálfsögðu alveg grein fyrir því, að vel geti verið skiptar skoðanir hér á Alþingi um, hvort tímabært sé að veita ráðh. heimild þá til undanþágu til handa vélbátum til togveiða innan fiskveiðimarkanna, sem hér er lagt til. Persónulega er ég þeirrar skoðunar, að þetta sé ekki einasta tímabært, heldur einnig nauðsynlegt. Ég tel, að við verðum að gera okkur ljóst, að í mörgum verstöðvum eru fleiri eða færri bátar, sem beinlínis skortir orðið rekstrargrundvöll miðað við þær aðstæður, sem verið hafa. Er hér átt við báta, sem of litlir eru til síldveiða að vetrinum til, en of stórir til dragnótaveiða að sumrinu til. Þótt hér sé um að ræða góð og í mörgum tilfellum nokkuð verðmikil atvinnutæki, er það staðreynd, sem ekki verður gengið fram hjá, að þessir bátar eiga, að vetrinum til sumir hverjir, mjög erfitt með að fá nægjanlegan mannafla, til þess að þeir verði gerðir út á línu- eða netaveiðar. Og auðvitað er, að línu- og netaveiðar verða ekki stundaðar með neinum árangri að sumrinu til, a.m.k. ekki við suðurströnd landsins. Sem eðlilegt er, sækja sjómenn heldur eftir skiprúmi á hinum nýju og stóru bátum, sem komið hafa til landsins á undanförnum árum. Þetta er bæði eðlilegt og mannlegt. Þar er um betri aðbúnað að ræða og í mörgum tilfellum meiri tekjuvon. Þetta verður að teljast eðlileg þróun, sem Íslendingar að mínum dómi geta glaðzt yfir. En hinu ber ekki að gleyma, að sú stökkbreyting, sem orðið hefur í byggingu íslenzka fiskiskipaflotans, skapar vandamál, sem leysa verður. Og það er eitt í þessu sambandi, sem við skulum gera okkur alveg ljóst, að það er afli hinna staðbundnu smærri báta, sem er undirstaðan undir rekstri fiskvinnslustöðvanna víðast hvar um landið. Hinir stærri bátar elta fiskinn, hvort heldur er um síld eða þorsk að ræða og landa aflanum í næstu höfn, alveg burt séð frá því, hvort um heimahöfn bátsins er að ræða eða ekki. Að sjálfsögðu er það happ fyrir hvern stað, þegar svo ber við, að fiskurinn er þar nærri og gefur það óneitanlega mikla vinnu og skapar mikla veltu, meðan það gengur yfir, þar sem hinir nýju bátar með þeim tækniútbúnaði, sem þar er um að ræða, eru mjög stórvirk og fullkomin atvinnutæki. En einmitt af þessari ástæðu, hve óvíst er, hvar bátarnir landa afla sínum, þ.e. hinir nýju og stóru bátar, í það og það skiptið, getur engin fiskvinnslustöð eingöngu byggt afkomu sína á afla þeirra. Það eru því óneitanlega hinir smærri bátar, heimabátarnir, sem róa frá heimahöfn að nóttu eða morgni til og koma aftur að landi með afla sinn næsta dag, sem fyrst og fremst treysta atvinnulífið í hverri útgerðarstöð. Það er því ekki sízt fyrir verkafólk í landi við sjávarsíðuna beint hagsmunamál, að rekstrargrundvöllur þessara báta sé gerður eins öruggur og aðstæður á hverjum stað og tíma leyfa.

En þá er spurningin: Á hvaða hátt og með hvaða hætti verður þetta gert? Ég tel, að með því að rýmka á lögunum um bann gegn togveiðum, eins og gert er ráð fyrir í frv. þessu, megi verulega tryggja rekstrargrundvöll hinna smærri báta víða um land, án þess að það þurfi nokkru tjóni að valda í sambandi við aðrar veiðar. A.m.k. við suðurströnd landsins eru allstór veiðisvæði, þar sem línu– og netaveiðar eru mjög lítið stundaðar að vetrinum til og alls ekki á öðrum tíma. Á þessum svæðum mörgum er góð aðstaða fyrir vélbáta að stunda togveiðar og segja má, að á öllu svæðinu frá Reykjanesi og austur með suðurströnd landsins séu engar veiðar stundaðar utan vetrarvertíðar nema með dragnót og síldveiðar nokkuð nú hin síðari ár. Víða á þessu svæði eru að sumrinu til góð skilyrði til togveiða, þótt hvorki veiðar með línu né í net verði þar stundaðar með nokkrum árangri.

Í sambandi við togveiðar er það að mínum dómi allt of útbreidd skoðun, að botnvarpan sé hættulegra veiðarfæri, en önnur. Má vera, að einhver rök hafi verið fyrir þessu, meðan lágmarks möskvastærð botnvörpunnar var enn 70–80 mm. En eftir að lágmarks möskvastærðin hefur verið færð upp í 110 mm, held ég, að slíku verði ekki haldið fram með neinum rökum. A.m.k. er það staðreynd, að önnur veiðarfæri, eins og t.d. þorsknótin, eru með mun minni möskvastærð eða allt niður í 60 mm, þótt hins vegar hafi nú á þessum vetri verið gefin út reglugerð um, að möskvastærð þorsknóta skuli að tveimur árum liðnum ekki vera minni en 110 mm eða hið sama og gilt hefur um botnvörpu nokkurn tíma.

Svo hagar til, a.m.k. við suðurströnd landsins, að aðalhrygningarstöðvar þorsksins munu vera á eða yfir, þar sem hraunbotn er. Með þeirri tækniþróun, sem orðið hefur í sambandi við fiskveiðarnar, er nú svo komið, að veiðarnar í þorskanet og nót fara að miklu leyti orðið fram á sjálfum hrygningarsvæðunum, þar sem fiskurinn þjappar sér mest saman á vissum tíma. Fiskifræðingar okkar hafa fram að þessu ekki talið, að nein bein hætta stafaði af þessum veiðum, a.m.k. ekki enn sem komið er og verður að sjálfsögðu að treysta umsögn þeirra. Hins vegar hagar svo til, að togveiðum á vélbátum verður ekki komið við, þar sem hraunbotn er, og eru togveiðarnar því að þessu leyti hættuminni, en veiðar í net og nót. Hin stærri togskip, togararnir, þar sem vélaaflið er margfalt á við vélaafl bátanna, munu hins vegar vera komnir á lag með að toga einnig þar, sem hraunbotn er. Ég tel að, að öllu þessu athuguðu sé orðið tímabært, að ráðh., sem með þessi mál fer, sé veitt heimild til að veita vélbátum undanþágu til togveiða innan fiskveiðimarkanna, þar sem það að áliti fiskifræðinga okkar getur talizt óhætt og þá með þeim skilyrðum og takmörkunum, sem nauðsynleg kunna að teljast. Útfærsla fiskveiðimarkanna kemur því aðeins að fullum notum, að veiðisvæðin innan þeirra séu nýtt með þeim veiðarfærum, sem á hverjum tíma og hverjum stað eru líklegust til árangurs, þó að sjálfsögðu innan þeirra marka, að ekki geti verið um ofveiði eða rányrkju að ræða. En til þess að svo megi verða, er óhjákvæmilegt að lögfesta ákvæði í sambandi við fiskveiðarnar, eins og frv. þetta gerir ráð fyrir.

Ég tel þegar orðið tímabært, að athugun fari fram á því, á hvern hátt eðlilegri nýtingu fiskimiðanna verði bezt við komið. Ég tel þetta ekki aðeins nauðsynlegt til öryggis rekstrargrundvelli vélbátanna, heldur einnig og ekki síður vegna atvinnuöryggis verkafólks við sjávarsíðuna. Hér á hinu háa Alþ. hefur að undanförnu mjög verið rætt um nauðsyn á jafnvægi í byggð landsins, og hefur mér heyrzt, að menn væru mjög sammála um þetta atriði. En frumskilyrði þess, að fólk haldi áfram að búa í dreifbýlinu er, að það sjái fram á atvinnuöryggi ekki síður þar, en í þéttbýlinu. Ég hef þá skoðun, að víða megi auka atvinnuöryggi fólksins í dreifbýlinu með meira skipulagðri og betri nýtingu fiskimiðanna. Vil ég í því sambandi vitna til árangurs af opnun veiðisvæða fyrir dragnót fyrir Norðurlandi á síðasta sumri, sem talið er að bjargað hafi atvinnulega séð nokkrum sjávarþorpum við Húnaflóa þann tíma, sem dragnæturnar eru lögum samkv. heimilaðar. Þannig gæti víða farið, ef rýmkað yrði á ákvæðum um bann gegn botnvörpuveiðum, eins og lagt er til í þessu frv. Af þeirri ástæðu er þetta frv. hér flutt.

Ég leyfi mér, herra forseti, að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. sjútvn.