27.04.1965
Neðri deild: 73. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 456 í C-deild Alþingistíðinda. (2585)

175. mál, bann gegn botnvörpuveiðum

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég held það blandist engum hugur um, að það er eitt stærsta þjóðmál Íslendinga, hvernig tekst til með fiskstofninn umhverfis landið og hagnýtingu hans. En ég held, að það hljóti að vera fleiri en ég, sem finna það á sér, að við vitum ekki nógu vel, hvar við stöndum varðandi veiðarnar og ástand fiskstofnsins. Í þessum efnum er ýmislegt að gerast, sem gefur fulla ástæðu til þess, að þau mál verði skoðuð gaumgæfilega ofan í kjölinn, eins og síðasti ræðumaður kom inn á. Ég vil nefna þrjú dæmi, sem sýna þessa nauðsyn.

Það er fyrst varðandi dragnótina og notkun hennar, en það hefur mjög lengi verið mikið ágreiningsmál, hvernig nota skuli dragnót við Íslandsstrendur og að hverju leyti skuli leyfa að nota það veiðarfæri. Um þetta gilda flóknar reglur, en í höfuðdráttum eru þær þannig, að það þarf samþykki sveitarstjórna, til þess að hægt sé að veita leyfi til að veiða með dragnótinni innan landhelginnar. Þegar horfið var að því síðast, að taka upp þennan hátt á dragnótaveiðunum til þess að greiða fyrir þeim, því að það hefur orðið í framkvæmdinni, að þetta hefur greitt fyrir dragnótaveiðunum víða, þá var greinilega tekið fram, að þetta skyldi verða framkvæmt undir vísindalegu eftirliti fiskifræðinganna og þeirra stofnana, sem um þau mál fjalla, hér hjá okkur. Það væri ætlazt til þess, að menn þreifuðu sig áfram í þessum efnum undir vísindalegu eftirliti og síðan ætti, hvenær sem ástæða þætti til, að gera það upp, hvernig til hefði tekizt og draga ályktanir af því varðandi framhaldið. Nú eru skiptar skoðanir um það, hvernig til hafi tekizt. Sumir eru allvel ánægðir með það, en aðrir sjá ýmsar blikur í lofti varðandi það, að of nærri hafi verið gengið stofninum á vissum svæðum a.m.k.

Fyrir nokkru kom svo fram fyrirspurn hér á hv. Alþ. varðandi reynsluna af notkun dragnótarinnar og hæstv. sjútvmrh. svaraði þeirri fsp. með skýrslu frá fiskideildinni, forstöðumanni fiskideildar. Það kom greinilega fram í þeirri skýrslu, að forstöðumaðurinn taldi, að sú stofnun hefði ekki haft bolmagn til þess að framkvæma það eftirlit með dragnótaveiðunum, sem þyrfti að vera og gæti þess vegna ekki gefið vitnisburð um þetta efni að óbreyttum aðstæðum. Það reyndist sem sagt ekki hægt að fá vitnisburð um það frá þessari stofnun, þegar um það var spurt, hvernig ástatt væri um þessi mál. En þó var lögð á það höfuðáherzla,þegar nýju dragnótalögin voru sett, að framkvæmd þeirra ætti að vera undir vísindalegu eftirliti og því gætu menn ætíð fylgzt með því, hvað væri að ske. Engin hætta gæti verið á ferðum, því að það væri hægt að fá vitnisburði, þegar á þyrfti að halda, um þessi efni. En það reyndist ekki hægt, þegar til átti að taka og ég er hálfhræddur um, að þetta hafi ekkert breytzt enn að neinu ráði. Og það kom þá fram, að þetta var talið stafa af því, að fiskideildin hefði ekki yfir nægilegu fjármagni að ráða og ekki þeim tækjum, sem hún þyrfti að hafa til þess að geta látið fara fram nógu öflugar rannsóknir og veiðitilraunir, svo að unnt væri að draga fullnægjandi ályktanir.

Hér er því sannarlega um vandamál að ræða, sem mun, að því er ég bezt veit, vera óleyst enn. Ég nefni þetta sem eitt dæmi um, að þannig er ástatt um þessi mál, að þau þurfa sannarlega heildarathugunar við.

Annað dæmi, sem ég nefni, er um nótina, þ.e. þorskveiðar með nót. Það þarf áreiðanlega að athuga þau efni mun betur, en enn þá hefur verið hægt og það nýja viðhorf, sem skapazt hefur vegna þorskveiða í nót, útheimtir endurskoðun þessara mála. Bæði þarf að leggja í það fé og fyrirhöfn að komast að niðurstöðu um, hvort þarna er hætta á ferðum, eins og sumir halda eða ekki og það má enga fjármuni spara í því sambandi, vegna þess að hér er um undirstöðuna í okkar þjóðarbúskap að ræða, aðalundirstöðuna.

Þriðja dæmið, sem ég vil nefna, eru hinar stöðugu kröfur togaraeigenda um aukin réttindi til að veiða innan landhelginnar. Það eru uppi háværar raddir frá togaraeigendum um að fá að veiða innan landhelginnar. Og þetta hefur t.d. gengið svo langt, að ég hef séð það frá einstökum togaramönnum, að þeir telja alveg sjálfsagt, að togurunum verði leyft að veiða innan landhelginnar nálega upp í landsteina, t.d. fyrir Austurlandi og á heimamiðum Austfirðinga.

Ég vil einlæglega vona, að hæstv. ríkisstj. geri ekki neinar breytingar á þeim reglum, sem um þessi mál gilda nú, nema að viðhöfðu fullu samráði við heimafólk eða a.m.k. fulltrúa hinna einstöku byggðarlaga í landinu, því að hér er um þvílík málefni að ræða. Ég vil einnig einlæglega vona, að hæstv. ríkisstj. geri engar breytingar á þessum málum, án þess að undan fari gaumgæfileg heildarathugun á þeim, reynt verði að líta yfir þau í heild og komast að niðurstöðu um, hvað skynsamlegast er að gera, en verði ekki hlaupið til og gerðar einstakar ráðstafanir til breytinga frá því, sem nú er, án þess að slík athugun fari fram. Ég vil skjóta því fram eða stinga upp á því, að það verði sett milliþn. í þessi mál, sem verði skipuð sérfræðingum og alþingismönnum. Hér er um eitthvert allra stærsta málefni þjóðarinnar að tefla. Það er mjög þýðingarmikið, að á öllum stigum slíkra mála og ekki sízt þeim fyrstu komi fram bæði þau sérfræðilegu sjónarmið og eins önnur sjónarmið, sem alþm. mundu setja fram við slíka allsherjarathugun.

Ég hygg, að verkefni slíkrar n. ætti að vera eitthvað líkt því, sem hv. 5. Austf. minntist á, sem sagt allsherjar athugun á því, hvernig við eigum að hagnýta okkar fiskimið og einnig úttekt á því, hvernig við stöndum varðandi veiðarnar og fiskstofninn og hvað við þurfum að gera umfram það, sem nú þegar er gert, til þess að við fáum á hverjum tíma alla þá vitneskju um, hvernig ástatt er í þessum efnum, sem hugsanlegt er að öðlast.

Í þessu sambandi er t.d. fullkomin ástæða til að minna á, að enn þá er ekki búið að kaupa eða láta byggja fiskirannsóknarskipið, sem lengi hefur staðið til að eignast og tel ég miður farið, að slíkt hefur dregizt á langinn og þyrfti að auka skriðinn á því máli og öðrum hliðstæðum málum, sem gætu orðið að liði í þessu efni. Mér finnst ekki, að þessi mál þyrftu að verða flokkspólitísk mál á nokkurn hátt, þótt þau séu stór í sniðunum. En hér koma vitanlega mörg sjónarmið til greina, staðbundin sjónarmið sum og almenn önnur.

Menn þurfa að leggja vinnu í að ná tökum á þessum málum, því að það er enginn vafi á, að einmitt núna, erum við staddir á tímamótum í þessu tilliti. Við höfum nú þegar dálitla reynslu af þeirri nýju friðun, sem náðst hefur með stækkun landhelginnar. Ég segi dálitla reynslu, en það er tími kominn til þess samt að gera sér grein fyrir henni fullkomlega.

Af því, sem ég hef nú sagt, leiðir svo það, að ég vil eindregið vara við því og leggjast gegn því, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, verði samþ. og vil taka undir þær áskoranir, sem hafa komið fram til hv. flm. að fallast á, að þau atriði, sem þar koma til greina, verði skoðuð, ásamt öðrum í sambandi við þetta víðtæka mál.

Ég gæti ímyndað mér, að hv. flm. flytji þetta mál fyrst og fremst til að styðja fingrinum fast á þennan blett, sem hann styður á, til þess að vekja þannig athygli á því, að hér þarf heildarendurskoðunar við, þetta muni fremur vera tilgangurinn með frv. en að honum finnist endilega, að það, sem hann stingur upp á í þessu frv., sé heppileg lausn. Ég held sem sé, að flestir hljóti að verða sammála um, þegar skoðað er niður í kjölinn, að það eru stórkostlegir ágallar á því að lögleiða, að ráðherra hafi heimild til að veita leyfi fyrir togveiðum alveg inn í landsteina hvar sem er við strendur landsins. Það gæti enginn verið óhultur um grunnmið sín, ef þetta væri lögleitt og af því hlytist — ég vil segja nálega styrjaldarástand í landinu, þar sem margir herjuðu á hæstv. ráðh., sem ekki væri öfundsverður af sínu hlutverki og aðrir héldu svo uppi hernaði vegna þeirra ranginda, sem þeir teldu sig hafa orðið fyrir.

Ég held, að þetta mundi reynast með öllu óframkvæmanlegt og ég vona, að menn verði sammála um að leggja ekki út í þetta. Auk þess hefur verið á það bent, að við höfum fram að þessu friðað algerlega innan fjögurra mílnanna, friðað það alveg fyrir botnvörpunni.

Ég vil svo benda á t.d., að ég mundi ekki telja ná nokkurri átt, annað en að málefni eins og það, sem hér er fjallað um, kæmi til meðferðar hjá stofnun eins og fiskiþingi, áður en ráðizt væri í stórræði þeirrar tegundar, sem hér er ráðgert. Flyt ég þetta fram til ábendingar um, hve hér er um mikilvægt efni að ræða og málefni, sem þarf að fá sérstaklega vandaðan undirbúning. Þarf að halda þannig á, að ekki sé komið aftan að neinum, en fyllstu sanngirni og gætni allrar gætt í sambandi við undirbúninginn.

Ég skal láta þetta nægja um frv. Ég vildi nota þetta tækifæri til að koma á framfæri þessum athugasemdum og bendingum. Frá mínu sjónarmiði standa þessi málefni núna þannig, að það er full ástæða til að vera nokkuð órólegur út af þeim. Við stöndum tvímælalaust á tímamótum í þessu efni og það þarf að hafa margra beztu manna ráð til þess að ráða fram úr þeim vanda, sem liggur fyrir. Það ætti ekki að þurfa að láta stefnuágreining um stjórnmál almennt koma í veg fyrir, að settur yrði hópur manna til að skoða þessi efni í heild.