27.04.1965
Neðri deild: 73. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 462 í C-deild Alþingistíðinda. (2592)

176. mál, virkjun Svartár í Skagafirði

Einar Ingimundarson:

Herra forseti. Á þskj. 432 flytja allir þeir þm. úr Norðurl. v., sem sæti eiga í Nd. Alþ., frv. til l. um virkjun Svartár í Skagafirði. Auk þess er frv. þetta flutt í samráði við þá hv. 3. þm. Norðurl. v., Ólaf Jóhannesson, og hv. 9. landsk. þm., Jón Þorsteinsson, en þeir eiga báðir sæti í Ed. Alþ. Fyrsti flm. þessa frv., hv. 2. þm. Norðurl. v., Gunnar Gíslason, er nú fjarverandi, og bað hann mig um að mæla nokkur orð fyrir frv. við 1. umr. þess.

Frv. um sama efni var flutt á síðasta þingi, en hlaut þá ekki afgreiðslu. Var það þá eins og nú flutt eftir eindregnum tilmælum sýslunefndar Skagafjarðarsýslu og bæjarstjórnar Sauðárkrókskaupstaðar. Í grg. með frv. í fyrra var ýtarleg lýsing á þeim athugunum, sem gerðar höfðu verið fram að því, vegna hugsanlegrar virkjunar Svartár í Skagafirði, og í framsöguræðu sinni fyrir frv. í fyrra rakti hv. 2. þm. Norðurl. v. mjög skilmerkilega sögu þessa virkjunarmáls, en fyrstu athuganir sérfræðinga hófust um eða upp úr 1920. Vísa ég um þessi atriði að mestu til grg. með frv. í fyrra og framsöguræðu hv. 1. flm. þá, sem ég áður gat um.

Á síðasta ári hafa enn farið fram athuganir, sérstaklega að því er varðar stíflugerð við Reykjafoss í Svartá. Á grundvelli þeirra nýju upplýsinga, sem nú liggja fyrir, hafa þeir Steingrímur Jónsson fyrrv. rafmagnsstjóri og Ásgeir Sæmundsson iðnfræðingur samið nýja álitsgerð um virkjun Reykjafoss í Svartá og er álitsgerð þeirra prentuð sem fskj. I með frv. þessu. Sem fskj. II með frv. er birtur kostnaðarsamanburður á virkjun Svartár og línu frá Laxá í Þingeyjarsýslu til Skagafjarðar, miðaður við tímabilið 1968–1979, sem Knútur Otterstedt rafveitustjóri á Akureyri hefur gert. Mun ég ekki rekja einstaka liði þessarar álitsgerðar og kostnaðarsamanburðar, en vil þó geta þess, að raforkumálaskrifstofan vinnur nú að gerð kostnaðarsamanburðar á virkjun í Svartá og hugsanlegri línulagningu frá Laxá í Þingeyjarsýslu til Norðvesturlands.

Ég legg svo til, herra forseti að, að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.