01.04.1965
Efri deild: 61. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 492 í C-deild Alþingistíðinda. (2625)
169. mál, Búnaðarbanki Íslands
Flm. (Páll Þorsteinsson) :
Frv. það, sem hér er til 1. umr., er flutt af öllum þm. Framsfl., sem sæti eiga í þessari hv. deild.
Landbúnaðurinn er einn af aðalatvinnuvegum þjóðarinnar. Ef litið er á framleiðslumagn annars vegar og hins vegar á grundvallarverð til bænda samkv. síðasta verðlagsgrundvelli, hefur framleiðsluverðmæti landbúnaðarins í heild á s.l. ári numið rúml. 1.880 millj. kr. og ætla má, miðað við verðlag og áætlað framleiðslumagn þessa árs, að heildarverðmæti landbúnaðarins verði þá ekki undir 2 milljörðum kr.
Samkv. jarðatali eða yfirliti yfir lögbýli í landinu, sem landnámsstjóri hefur gert með aðstoð hreppstjóra, hvers í sínum hreppi, voru á s.1. ári byggðar lögbýlisjarðir á landinu 5.438, en auk þess eru eyðijarðir 451, sem taldar eru hæfar til búskapar með nútíma búskaparháttum. Hér er því um að ræða lögbýlisjarðir tæplega 6.000 að tölu.
Það er álit flm. þessa frv., að með löggjöf og af hálfu ríkisvaldsins eigi að stuðla að því, svo sem kostur er, að sem minnst röskun verði á búsetu fólks í sveitum. En þótt löggjöfin sé við það miðuð, hljóta árlega að verða eigenda- og ábúendaskipti á allmörgum jörðum á landinu. Það er talið að dómi kunnugra manna á þessu sviði, að ábúendaskipti verði árlega á 200-300 jörðum á landinu. Að sjálfsögðu ganga þær ekki allar kaupum og sölum, því að margar þeirra eru í leiguábúð, bæði jarðir, sem ríkið á og ýmsir aðrir aðilar. En samt sem áður verður að gera ráð fyrir því, að alltaf séu allmargar jarðir á landinu, sem árlega ganga kaupum og sölum, og stefna þarf að því, að unga kynslóðin geti tekið við af þeim eldri, þegar þeir verða fyrir aldurs sakir eða af öðrum ástæðum að hætta sínum atvinnurekstri. Það er mjög varhugaverð þróun, sem nú á sér stað í vaxandi mæli, að fésterkir einstaklingar kaupi hlunnindajarðir fyrst og fremst eða eingöngu vegna hlunnindanna, hagnýti þau, en nytji jarðirnar að öðru leyti lítið eða ekki, en á sama tíma, sem þróunin stefnir í þessa átt, er ungu fólki, sem hefur hug á að hefja búskap, örðugt eða jafnvel ókleift að komast yfir jarðnæði, af því að lán til jarðakaupa eru alls kostar ófullnægjandi.
Það ber brýna nauðsyn til þess að dómi okkar flm., að með löggjöf sé lagður grundvöllur að fullnægjandi lánastarfsemi á þessu viðskiptasviði, og að því er stefnt með þessu frv. Því meiri framkvæmdir sem gerðar eru í sveitunum, þeim mun meira fjármagn er bundið í fasteignum og búi hvers bónda. Þróun atvinnuvegar að þessu leyti er óhjákvæmileg og hún má ekki stöðvast. En hún torveldar að vissu leyti eðlileg eigendaskipti á jörðum, nema tryggt sé, að lánsstofnun hlaupi undir bagga með því að veita lán með góðum kjörum þeim, er kaupa jarðir.
Það er hlutverk veðdeildar Búnaðarbankans að veita lán í þessu skyni. En því miður hefur veðdeildina lengi skort tilfinnanlega fjármagn til þess að fullnægja þörfinni eða sinna þessu verkefni, svo sem löggjöfin hefur í öndverðu ætlazt til. Í viðskiptum í þjóðfélaginu verður ekki hjá því komizt, að lánastarfsemi eigi sér stað og í því betra formi sem slík lánastarfsemi er, þeim mun greiðari eru viðskiptin. Nú er unnið að því á hv. Alþingi að setja nýja löggjöf um íbúðalán í kaupstöðum og kauptúnum. Þar er stefnt að því að lánaðir verði allt að 2/3 hlutar af kostnaðarverði íbúðar og þó eigi minna en 280 þús. kr. á hverja íbúð. Hér liggur einnig fyrir til afgreiðslu frv. frá hæstv. ríkisstj. um verkamannabústaði. Þar er kveðið svo á, að lána megi allt að 90% af kostnaðarverði íbúðar, en þó ekki yfir 450 þús. kr. á hverja íbúð. Samkv. gildandi l. eru veitt lán til nýrra fiskiskipa, sem smíðuð eru erlendis, er nema 2/3 hluta kostnaðarins eða kaupverðs skipsins, en til skipa, sem smíðuð eru innanlands, er heimilt að veita lán allt að 75% kostnaðarverðs. Stofnlánadeild landbúnaðarins veitir lán til íbúðarhúsa í sveitum og enn fremur vegna útihúsa, ræktunar og ýmissa annarra framkvæmda á sveitabýlunum. En þegar jarðir ganga kaupum og sölum, þá er, eins og ég hef áður tekið fram, sú aðstoð, sem veðdeild Búnaðarbankans veitir, alls kostar ófullnægjandi. Þessi þáttur hefur á undanförnum árum orðið út undan við endurskoðun löggjafarinnar um lánastarfsemi á mörgum sviðum.
Afleiðingin er sú, að þeir, sem þurfa að skipta um atvinnu eða af öðrum ástæðum verða að hverfa frá búskap og vilja selja fasteignir sínar, eiga oft erfitt með að fá kaupendur að þessum eignum og verða þá oft að ganga frá fasteign sinni með þeim kjörum, sem eru þeim mjög óhagstæð, þar sem oft er búið að leggja mikla vinnu og mikla fjármuni til endurbóta á jörðunum. En á sama tíma skortir ungu kynslóðina bolmagn til þess að komast yfir jarðnæði og geta komið fótum undir sjálfstæðan atvinnurekstur í sveitunum. Þó að einstakir menn kaupi hlunnindajarðir vegna hlunnindanna fyrst og fremst, eins og ég áðan gat um, þá standa þeir ekki eins föstum fótum í sveitarfélögunum og þeir, sem stunda þar atvinnurekstur við búskap. Menn, sem þannig eru ekki nema að nokkru leyti bundnir við fasteignina, sem þeir hafa til umráða, eru því í raun og veru ekki jafngildir þegnar í sveitarfélögunum og þeir, sem þar leggja fram að fullu og öllu starfskrafta sína og hafa þar til ávöxtunar þær eignir eða þau verðmæti, sem þeir eiga. Við þetta bíða því sveitarfélögin sjálf hnekki, auk þess hvað það er óhagkvæmt einstaklingunum.
Eins og háttað hefur verið fjármagni því, sem veðdeild Búnaðarbankans hefur haft til umráða, þá ætla ég, að hámarkslán til jarðakaupa hafi numið um 100 þús. kr. og þó tæplega eða jafnvel ekki verið hægt að fullnægja eftirspurn lána á þessu sviði. Með þessu frv. er lagt til, að veðdeildin megi lána allt að 70% virðingarverðs fasteigna, ef um lán vegna jarðakaupa er að ræða, en um önnur lán, sem veðdeildin veitir, eru ekki með þessu frv. gerðar breytingar frá því, sem nú er ákveðið í lögum. En ef veitt er jarðakaupalán út á jörð, sem veðsett er til tryggingar lánum úr stofnlánadeild landbúnaðarins, sem veitt hafa verið til byggingar eða ræktunar á jörðinni, þá er gert ráð fyrir því, að framkvæmd verði hagað þannig, að veðdeildarlán megi lækka miðað við hlutfall virðingarverðs fasteignarinnar um þá fjárhæð, sem nemur stofnlánadeildarlánum, er á jörðinni hvíla, þegar sala fer fram. Þá er gert ráð fyrir því í frv., að veðdeildin fái heimild til að gefa út nýjan flokk bankavaxtabréfa og heimilt sé að greiða allt að 40% lánsfjárhæðarinnar í bankavaxtabréfum, er út verða gefin samkv. ákvæðum þessa frv., ef að lögum verður. Afborgunum og endurgreiðslum lána, sem greidd eru í bankavaxtabréfum, skal varið til innlausnar bréfanna. Enn fremur er kveðið svo á í frv., að lán til jarðakaupa skuli verða afborgunarlaus fyrstu 2 árin og þau skuli ekki bera hærri vexti en 4%.
Til þess að veðdeildinni verði kleift að inna af hendi þær skyldur, sem á hana eru lagðar með þessu frv. og ég var að lýsa, er hér lagt til, að fé veðdeildarinnar verði aukið að miklum mun frá því, sem verið hefur, þannig að hún fái í tekjur árlegt framlag úr ríkissjóði, 20 millj. kr. Enn fremur, að hún haldi þeim tekjustofni, sem hún hefur nú samkv. stofnlánadeildarl., þar sem heimilað er, að af því fé, sem stofnlánadeildin fær til umráða, renni til veðdeildar allt að 10 millj. kr. árlega. Enn fremur, að veðdeildin haldi þeim tekjustofni, sem henni er ákveðinn í lögum um skatt á stóreignir, svo og vaxtatekjur. Til viðbótar þessu eru í frv. ákvæði um það, að Seðlabanka Íslands skuli skylt, ef ríkisstj. óskar þess, að lána veðdeild Búnaðarbankans nauðsynlega fjárupphæð vegna starfsemi hennar, allt að 100 millj. kr., gegn 5% vöxtum. Þessi lánsheimild yrði þá notuð, eftir því sem þörf krefði, þegar veðdeildin væri farin að lána í samræmi við þær reglur, sem í frv. þessu greinir.
Þegar gerðar eru áætlanir t.d. um íbúðabyggingar í landinu, en um það er einmitt fjallað nú á þessu þingi, verður að taka tillit til fjölda þeirra íbúða, sem byggja þarf, annars vegar og hins vegar þess kostnaðar, sem íbúðabyggingum fylgir. Með sívaxandi verðbólgu, eins og verið hefur að undanförnu og enginn virðist sjá fyrir endann á, er erfitt að gera fullnægjandi kostnaðaráætlanir, vegna þess að allar tölur breytast ört. Þetta hlýtur vitanlega að koma fram í sambandi við lán til jarðakaupa eins og á öðrum sviðum. En á hinn bóginn er þess að gæta, að fjöldi lögbýla í landinu vex ekki. Þar er nokkurn veginn um fasta tölu að ræða, eða eins og ég gat um í upphafi máls míns tæplega 6.000 jarðir, sem til greina geta komið og það er ekki rétt að dómi okkar flm. að gera ráð fyrir því, að miklar sveiflur verði á þessu viðskiptasviði í kaupum og sölum jarðeigna í landinu. Af því leiðir, að það má með meira öryggi gera sér grein fyrir fjárþörfinni á þessu sviði, en t.d. í íbúðabyggingum, þar sem fjöldi íbúðanna, sem byggðar eru ár hvert, þarf að aukast í samræmi við stóraukna fólksfjölgun, einkum í þéttbýlinu.
Við teljum því, að með þeim reglum, sem settar eru í þessu frv., muni verða vel séð fyrir fjármagni veðdeildarinnar, svo að hún geti af þeim sökum staðið við þær skuldbindingar, sem henni yrðu lagðar á herðar, ef þetta frv. verður lögfest og að sjálfsögðu yrði þá gripið til þess að fá lánið frá Seðlabankanum, eftir því sem þörf krefði hverju sinni. En ekki þarf að gera ráð fyrir, að það þyrfti að taka allt lánið þegar í öndverðu. Og vegna þess, hve tala lögbýlisjarða í landinu er fast bundin og ekki þarf að gera ráð fyrir mikilli hækkun á þeirri tölu, þá verður það fjármagn, sem veðdeildin fær skv. þessu frv., væntanlega nægilegt, þegar það er komið í veltu á þessu sviði og ætti að geta notazt aftur til nýrra lána og ekki þurfa á auknu lánsfé að halda, þegar þetta fjármagn fer aftur að skila sér til veðdeildarinnar sem afborganir af veittum lánum.
Ég hef þá farið nokkrum orðum um þetta mál í heild og aðalatriði þessa frv. og tel ekki ástæðu til að fjölyrða meira um það nú við þessa 1. umr., nema sérstakt tilefni gefist til.
Ég legg svo til, herra forseti, að þegar þessari umr. lýkur, verði málinu vísað til 2. umr. og hv. fjhn.