01.04.1965
Efri deild: 61. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í C-deild Alþingistíðinda. (2626)

169. mál, Búnaðarbanki Íslands

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Það ber vissulega að fagna því, að skilningur sé fyrir hendi hér á hinu háa Alþingi um nauðsyn þess að efla veðdeild Búnaðarbankans, því að það er rétt, sem hv. 1. flm. þessa frv. sagði, að hún er fjárvana og hefur reyndar alla tíð verið fjárvana og ekki verið þess umkomin að sinna sem skyldi sínu hlutverki. Það hefur því miður jafnan orðið svo, að veðdeildin hefur orðið út undan, þegar hefur verið um að ræða fjáröflun til stofnlánasjóða Búnaðarbankans. Er út af fyrir sig engan um það að saka, en það hefur alltaf farið svo, að fjárþörfin til framkvæmda í sveitum hefur verið svo mikil, að ekki hefur þótt fært að útvega meira fé, en svo hverju sinni, að það hefur ekki gert betur eða naumast að uppfylla þær þarfir, sem þar hafa verið fyrir hendi.

Nú er það vissulega álitamál, hvort það hafi átt að fylgja þeirri stefnu, sem gert hefur verið, að láta alltaf hinar nýju framkvæmdir sitja fyrir og veðdeildina verða út undan. En þetta hefur verið svo og má e.t.v. segja, að það sé ekki annað, en gildir um aðra atvinnuvegi þjóðarinnar, að yfirleitt eru stofnsjóðir þeirra við það miðaðir, að þar sé um nýframkvæmdir að ræða, en ekki lánað til eldri framkvæmda eða yfirfærslu eigna milli aðila. Gildir þar sama varðandi sjávarútveg og iðnað eins og landbúnað. En það er hárrétt, sem hv. 1. flm. sagði, að þetta er mikið vandamál, sem hér er við að fást og það ber brýna nauðsyn til að reyna að tryggja veðdeildinni með einhverjum hætti fé til þess að leysa þennan vanda.

Nú er það að vísu svo með margar jarðir, að það er ekki hægt að lána út á þær veðdeildarlán, vegna þess að það hvíla á þeim það miklar skuldir miðað við matsverð þeirra og það má e.t.v. segja, að með hverju árinu sem líður verði fleiri og fleiri jarðir, sem verða undir þá sök seldar, að það sé ekki hægt að lána viðbótarlán við stofnlán nema a.m.k. að mjög takmörkuðu leyti. En engu að síður er þó almenna reglan sú, að við eignayfirfærslu jarða er nauðsynlegt og skilyrði fyrir hendi, til þess að veita viðbótarlán í sambandi við yfirfærslu eignanna. Og það er vissulega rétt, að það er mjög erfitt um vik, þegar menn hafa bundið allt fé sitt í jörðum, að hafa ekki neina aðstöðu til þess að ná þeim fjármunum að einhverju leyti út aftur, þó að hins vegar við verðum að gera okkur alveg fulla grein fyrir því, að það á við hér eins og víða um lönd, að það er erfitt að taka út úr landbúnaðinum mikið fé við eignayfirfærslu frá einni kynslóð til annarrar og af því leiðir, að lán í þessu sambandi hljóta alltaf að vera takmörkunum bundin og eiga að vera takmörkunum bundin, því að það mun að sjálfsögðu einnig leiða til þess, að það hækkar jarðaverð, ef allt of auðvelt er um lánveitingar til þess að yfirfæra eignirnar frá einum aðila til annars.

Þegar lögin um stofnlánadeild landbúnaðarins voru sett, var gert ráð fyrir heimild í þeim um, að stofnlánadeildin keypti bankavaxtabréf veðdeildarinnar. Þessi heimild var notuð árið 1963 að því marki, að stofnlánadeildin lánaði veðdeildinni 5 millj. kr. Í fyrra var gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun stofnlánadeildarinnar að lána veðdeildinni allt að 10 millj. kr., eins og lögin gera ráð fyrir. Reyndin varð hins vegar sú, að stofnlánadeildin gat ekki lánað veðdeildinni einn eyri og varð það þess valdandi, eins og hv. 1. flm. hér réttilega sagði, að það hefur komið hnútur á lánveitingar veðdeildarinnar og enn þá liggja óafgreiddar allmargar umsóknir frá s.1. ári. Nú í ár hefur einnig verið gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun stofnlánadeildar að lána 10 millj. kr. til veðdeildarinnar. Hvort það tekst, skal ekkert um sagt á þessu stigi málsins. En ástæðan til þess, að það tókst ekki í fyrra, var sú, að framkvæmdir bænda þrátt fyrir vissan niðurskurð, sem framkvæmdur var af Búnaðarbankanum, urðu svo geysimiklar, að þess var enginn kostur, að stofnlánadeildin gæti látið af hendi þetta fé til veðdeildarinnar, því að eins og hv. þdm. er kunnugt, er svo fyrir mælt í stofnlánadeildarlögum, að þessi kaup stofnlánadeildar á bankavaxtabréfum veðdeildarinnar skuli því aðeins fara fram, að stofnlánadeildin hafi nægilegt fé til að sinna öðrum hlutverkum sínum ár hvert. Hvort þetta sem sagt reynist auðið í ár, skal ekki um sagt, vegna þess að enn liggur ekki ljóst fyrir, hvort framkvæmdir bænda, sem bankinn mun samþykkja, verða það miklar, að það fé, sem stofnlánadeildin hefur til ráðstöfunar í ár, nægir til þess í senn að anna þeirri lánsfjárþörf til nýrra framkvæmda, sem þar um verður að ræða og enn fremur að inna af hendi þessa lánveitingu til veðdeildarinnar.

Ég vil taka undir það með hv. frsm., að þess væri vissulega mikil þörf, ef hægt væri með einhverjum hætti að auðvelda betur starfsemi veðdeildar bankans. Ég skal ekki á þessu stigi málsins dæma neitt um þær till., sem hér eru fram bornar. Það er vissulega alltaf tiltölulega einfalt mál að leggja til, að ríkissjóður leggi fram fé til eins og annars. Hvort það reynist auðið, skal ég ekkert um segja. Og það hefur ekki verið svo, að ríkissjóður hafi á neinum tíma nema af greiðsluafgangi sínum eitt og eitt ár lagt veðdeildinni til nokkurt fé, þ.e.a.s. ekki neitt ákveðið framlag í fjárl. Það er vissulega athugandi, hvort það væri rétt að gera það eða ekki, þótt ég sé í nokkrum vafa um, að það verði auðið að fá fram svo hátt framlag sem hér er um að ræða. En tíminn mun væntanlega leiða það í ljós.

Varðandi aftur hitt atriðið, að gera ráð fyrir lántökum til veðdeildarinnar í þessu sambandi, þá er það góðra gjalda vert. En mér sýnast þær till. ekki vera alls kostar mjög raunhæfar, ekki hvað sízt hvað snertir sölu bankavaxtabréfa þeirra, sem gert er ráð fyrir að gefa út. Ég fæ ekki séð með nokkru móti, hvernig nokkur banki eða nokkur lánastofnun mundi kaupa þau bréf, eins og gert er ráð fyrir að kjörin verði á þeim, því að það er gert ráð fyrir, að þau beri sömu vexti, skilst mér og útlánsvextir veðdeildarinnar verða á hverjum tíma. Og það gefur auga leið, miðað við þá útlánsvexti, sem hér er gert ráð fyrir, að verði ekki almenn vaxtalækkun, sem ég held að engum detti í hug að verði neitt í námunda við það, þótt einhver vaxtalækkun yrði, þá er ekki sjáanlegt, að neinn aðili mundi kaupa þessi bréf og ég tel varhugavert að gefa vonir um fyrirgreiðslu, sem ekki er raunsæ.

Þá tel ég í annan stað ákaflega hæpið að gera ráð fyrir því í lögum að fara að skylda Seðlabanka Íslands til þess að veita tiltekin lán og með tilteknum vaxtakjörum. Ég held, að það sé ákaflega hættulegt að fara út á þá braut, að Alþingi fari að skylda bankastofnanir, hvort sem er Seðlabankinn eða aðrir, til þess að veita slík lán og ég hef ekki trú á, að það yrði raunhæft. Það er þegar til heimild í l. fyrir fjáröflun til veðdeildar Búnaðarbankans í mjög svipuðu formi, þó að það sé ekki nema lítið brot af því fé, sem hér er um að ræða. En það eru lög, sem sett voru fyrir allmörgum árum um það, að Landsbanki Íslands skyldi á hverju ári lána visst fé til veðdeildar Búnaðarbankans. Úr þessu hefur aldrei orðið og reyndist aldrei auðið að framkvæma þessi lög, því að ég hygg, að Landsbankinn hafi strax þvertekið fyrir það, hvað sem öllum lögum liði. Og ég hef ekki mikla trú á því, að það sé heppileg braut að leggja inn á að fara að ákveða það, að bankar landsins skuli með lögþvingun frá Alþ. lána fé í eitt eða annað á þennan hátt.

Það getur hins vegar vel verið, að það sé hægt að ná samkomulagi og samningum við Seðlabankann um einhver lán til veðdeildarinnar með eðlilegum hætti og það er auðvitað sjálfsagt að kanna það, ef hægt er að byggja veðdeildina upp á þann veg, að hún fái undir slíkum lántökum risið og ekki sé óeðlilegur vaxtamismunur, sem þar verði um að ræða.

Því er ekki að leyna, að eins og sakir standa núna, er veðdeild Búnaðarbankans ákaflega illa sett, vegna þess m.a., að á hana voru lagðar þær kvaðir að veita svokölluð lausaskuldalán bænda, sem námu um 65 millj. kr. Og öll vanskil á þessum lánum, sem alltaf eru töluverð, því að því er ekki að leyna, að þetta eru varasömustu lánin, sem Búnaðarbankinn hefur lánað til landbúnaðarins, — öll vanskil á þessum lánum hvíla að sjálfsögðu mjög þungt á veðdeildinni og auk þess er veðdeildin að því leyti illa sett, að henni var á sínum tíma ætlað að taka við sparifé eða skyldusparnaði, sem safnaðist í sveitum og lána það út með sínum venjulegu kjörum, en hins vegar verður að borga af þessum skyldusparnaði vísitöluuppbætur og þetta hefur leitt til þess, að veðdeildin á hverju ári verður fyrir stóráföllum af því að hafa þetta fé til umráða. Á síðasta þingi var gert ráð fyrir því, að þessu yrði hætt og fé þetta yrði látið renna til stofnlánadeildar landbúnaðarins, sem vissulega hefur miklu betri aðstöðu til þess að standa undir kvöðum í þessu sambandi og kemur þá að sjálfsögðu til álíta, hvernig eigi að nota það fé. Það hefur ekki enn þá verið afgert, en er gert ráð fyrir því, að það verði endurlánað með einhverjum hætti með vísitölutryggingu. Öðruvísi er ekki hægt að taka við slíku fé.

Þó að ég bendi hér á nokkur atriði í þessu frv., sem mér sýnist orka nokkurs tvímælis, hvort geti talizt raunhæf eða ekki, tel ég það allvirðingarvert, að fram komi hugmyndir um að efla veðdeild Búnaðarbankann, og vil láta í ljós þá skoðun á þessu stigi, að það sé mjög æskilegt, að leitað verði allra raunhæfra úrræða í því skyni og vænti þess, að allir hv. þdm. vilji ljá lið sitt til þess.