22.12.1964
Sameinað þing: 22. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í D-deild Alþingistíðinda. (2632)
109. mál, frestun á fundum Alþingis
Forsrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Í samráði við þingflokka hefur verið ákveðið að fresta fundum Alþingis frá því í dag 22. des., þangað til 1. febr. á næsta ári, og er þessi till, til þál. til staðfestingar því. Þess skal getið, að ef sérstakar ástæður þykja til eða hentara þykir vegna starfa þingsins fyrri hluta næsta árs að kalla saman þingið fyrir 1. febr., mun svo verða gert með hæfilegum fyrirvara.