16.12.1964
Efri deild: 31. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í B-deild Alþingistíðinda. (264)

106. mál, söluskattur

Ólafur Jóhannesson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð, sem ég þarf að segja.

Það er fyrst, að ég vildi taka það fram út af ummælum, sem féllu hjá hv. 4. þm. Norðurl. e., þar sem hann virtist hafa lagt þann skilning í mín orð, að ég hefði jafnvel gefið í skyn, að það hefði verið samið um þessa skattheimtu í sumar, — ég vil segja, að það er alger misskilningur á mínum orðum, og hafi ég orðað þetta óskýrt að einhverju leyti, þá var það alls ekki meining mín að gefa neitt þvílíkt í skyn, þar sem ég tók meira að segja fram alveg berlega, að ég væri sannfærður um, að ekkert slíkt hefði átt sér stað, enda liggur það nokkuð í hlutarins eðli. En það, sem ég benti á og átaldi, var uppsláttarfyrirsögn í aðalmálgagni hæstv. ríkisstj., Morgunblaðinu, þar sem hún segir frá þessu framlagða frv., þar sem það er sagt með stóru letri: „Er í samræmi við júnísamkomulagið.“ Þetta fannst ,mér ástæða til að átelja, af því að ég áleit viljandi og blekkjandi að gefa slíkt í skyn, og með því hlaut meiningin að vera sú að læða því inn hjá lesendum Morgunblaðsins, að þessi söluskattshækkun væri í samræmi við hið svokallaða júnísamkomulag. En þegar ég flutti mína ræðu hér í dag, hafði ég ekki enn séð hitt aðalmálgagn hæstv. ríkisstjórnar, aðalmálgagn hæstv. fjmrh., dagblaðið Vísi, en nú hefur það sýnt sig, að það hefur í sínum uppsláttarfyrirsögnum slegið Morgunblaðið út í þessu efni, því að þar er aðalfyrirsögnin á frásögn um þennan skatt sú: „3% kauphækkun.“ Það væri nú kannske ekki ástæða til þess að vera að vekja athygli á þessu hér, að vera að sakast um þetta, ef maður gæti litið svo á, að þarna væri aðeins um einhver mistök hjá blaðamönnum að ræða, og ef maður væri þeirrar skoðunar, sem einu sinni var sagt og skrifað, að byssurnar væru farnar að skjóta sjálfar. En það er vitað mál, að þeir eru hvor um sig, hæstv. forsrh. og hæstv. fjmrh., nokkuð strangir húsbændur á þessum heimilum sínum, blöðunum, þannig að það virðist a.m.k. ekki ólíklega ætlað, að þeir hafi haft nokkra hönd í bagga um það, hvernig sagt hefur verið frá þessu þýðingarmikla máli. Fleiri orð skal ég svo ekki hafa um það.

Ég ætla síður en svo að fara að blanda mér í þann ágreining, sem hefur komið fram hjá þeim hæstv. forsrh. og hv. 4. þm. Norðurl. e. um skilning á því samkomulagi, sem gert var í s.l. júní, um það, hvort þetta sé andstætt þeim yfirlýsingum, sem þá voru gefnar, eða ekki, þar um get ég ekkert sagt og þar læt ég þá deila.

Í annan stað vildi ég aðeins út frá því, sem hæstv. fjmrh. sagði almennt um skattana, sem hann var tiltölulega ánægður með, benda á það, að hann mótmælti því að vísu, að það hefði verið gefið nokkurt vilyrði um skattalækkanir eða afslátt á álögðum sköttum eða álögðum gjöldum nú í ár, en ég vil þó benda á það, eins og hann viðurkenndi, að ríkisstj. féllst á að skipa fjögurra manna nefnd til þess að kanna, hvort mögulegt væri að veita einhvern afslátt á álögðum gjöldum. Það má vitaskuld deila um það, hvað í slíku felist. Ég hygg, að sumir vilji skilja það á þá lund, að í því felist eitthvert vilyrði, og aðrir, eins og hæstv. fjmrh., geta kannske skilið það á annan veg. En hvað sem því líður, er hitt ljóst og verður ekki um deilt, að í útvarpsþætti sínum í ágústmánuði lýsti hæstv. fjmrh. því yfir, að skattarnir hefðu reynzt hærri en gert hafði verið ráð fyrir. Hann lýsti því einnig, að sér væri ljóst, að í framtíðinni þyrfti þar á að gera ýmsar lagfæringar, eins og t.d. þá, sem hann nefndi sérstaklega hér áðan, að það þyrfti að taka upp það skipulag, að skattar væru dregnir frá tekjum jafnóðum, og enn fremur það, að hækka þyrfti persónufrádrátt, í þriðja lagi það, að taka þyrfti upp umreikningsreglu, og í fjórða lagi það, að bæta þyrfti skattaeftirlit. Ég hef ekki séð, að það liggi enn fyrir nokkrar efndir á þessum atriðum. Það má vera, að þær eigi eftir að sjá dagsins ljós og að þær verði lagðar fram síðar á þessu Alþingi, en ég verð að segja, að það hefði verið æskilegra að sjá framan í þær áður og það hefði verið viðkunnanlegra frá stjórnarinnar hálfu að sýna framan í þessar fyrirhuguðu endurbætur, sem fyrirheit hafði verið gefið um, áður en hún lagði fram frv. sitt um söluskattshækkunina.

Nú vill hæstv. fjmrh. gera lítið úr því, að álagður tekjuskattur verði hærri en reiknað hafði verið með í fjárlögum, og nefnir í því sambandi tölur. Þær tölur vil ég að sjálfsögðu ekki vefengja út af fyrir sig. En ég vil benda á það, að ég hygg, að þær gefi alls ekki fullkomlega rétta mynd, vegna þess að þrátt fyrir alla hörku hæstv. ríkisstj. í skattheimtunni var það þó gefið eftir, að þeir, sem sóttu um það að fá að draga greiðslur á sköttum, fengu það í tvo mánuði, þannig að það hlýtur að liggja í hlutarins eðli, að það dregst meira af þessum greiðslum yfir á næsta ár heldur en áður hefur verið, þannig að ég leyfi mér að vefengja það mjög, að þær tölur, sem hann nefndi í þessu sambandi, gefi raunverulega rétta mynd af ástandinu í þessum efnum, þegar öll kurl koma til grafar. Út af þeim samanburði, sem hann var með um það, hversu skattar væru nú gagnvart sköttum áður, vil ég aðeins benda á það, eins og hann reyndar tók fram, að í þeim samanburði voru útsvörin ekki tekin með, en auðvitað eru þau einn höfuðþáttur í álögum á almenning. Og þá vil ég enn og miklu frekar benda á það, að þegar þetta er borið saman með þeim hætti, sem hæstv. fjmrh. gerði, má það vissulega ekki gleymast, hversu gífurlegar breytingar hafa verið gerðar á skattheimtunni að því leyti til, að það hefur í raun og veru verið fært svo og svo mikið til úr hinum beinu sköttum yfir í hina óbeinu skatta. Þetta er alveg ómótmælanlegt, að það hefur í raun og veru verið stefna ríkisstj. að breyta sköttunum í æ ríkara mæli í óbeina skatta, og þess vegna hefði, ef ætti að gera nokkuð raunhæfan samanburð, orðið að taka til þess stórkostlega mikið tillit, því að auðvitað eru það álögur ekkert síður, sem greiddar eru í óbeinum sköttum.

Út af því, sem hæstv. fjmrh. sagði um afkomuhorfur ársins nú, og þeim tölum, sem hann þar nefndi í lok nóvembermánaðar nú, sem virtust sýna, að staðan væri allmikið lakari en á sama tíma í fyrra, tel ég alveg vafalaust, eins og hæstv. ráðh. sagði reyndar líka, að þessar tölur mundu breytast, — hann sagði: væntanlega eitthvað ríkissjóði í hag. Ég held, að þær muni breytast mjög verulega ríkissjóði í hag, og þá ályktun dreg ég af því, sem alkunna er, að þrátt fyrir það góðæri, sem hér hefur verið að mörgu leyti, hafa m.a. sívaxandi álögur, vaxandi dýrtíð o.fl. gert það að verkum, að menn hafa átt miklu erfiðara nú en áður að standa skil á álögðum opinberum gjöldum og tekjum í ríkissjóð. Ég hygg þess vegna, að þó að innheimtan hafi gengið tiltölulega vel, hljóti að vera mun meira útistandandi nú en á sama tíma á árinu áður, og t.d. gæti vel hugsazt, að slíkt ætti sér stað varðandi söluskattinn. Ég held þess vegna, að þessi mynd eigi eftir að breytast æðimikið.

En ég vil aðeins að lokum benda á í sambandi við afgreiðslu á þessu máli, sem ég hef gert mjög miklar athugasemdir við, á einmitt þá hliðina á málinu, að þetta er lagt fram hér á síðustu dögum fyrir jól, það er lagt fram þm. svo að segja að óvörum og ekki gefinn neinn kostur á því að kynna sér málavexti alla með eðlilegum hætti, áður en lagt er í 1. umr. málsins. Í því sambandi vil ég líka benda á það, sem kom fram hjá hæstv. fjmrh., að nú fyrst fyrir 3. umr. fjárlaga, þegar 1 eða 2 dagar í hæsta lagi eru til stefnu og til athugunar á fjárlögum, er gert ráð fyrir því, að fyrir fjvn. verði þá fyrst lagt fram það yfirlit yfir tekjuáætlun, sem hæstv. ráðh. drap hér á áðan. Það gefur auga leið, hvert tækifæri það er, jafnvel fyrir fjvn., til þess að setja sig að nokkru gagni inn í þetta mál, áður en fjárlög eru afgreidd, hvað þá fyrir þá þm., sem ekki eiga sæti í fjvn. Það eru þessi vinnubrögð, sem að mínum dómi eru mjög varhugaverð og ætti að leggja niður, því að fyrir þeim finnst engin afsökun. Þegar þing er kvatt saman snemma októbermánaðar og fjárlagafrv. lagt fram í upphafi þings, þá er það vitaskuld óverjandi að gefa ekki fyrr skýrslur um þessi efni og hraða allri fjárlagameðferðinni, þannig að þm. geti raunverulega fylgzt með í þessu efni. En eins og þessu er hagað nú, gildir það í raun og veru bæði um fjárlögin og þó miklu fremur um þetta frv., sem hér liggur fyrir, að þess er náttúrlega ekki kostur fyrir þm. að kynna sér til neinnar hlítar þær forsendur, sem það er talið byggjast á.