25.11.1964
Sameinað þing: 14. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í D-deild Alþingistíðinda. (2658)

21. mál, aðstoð við þróunarlöndin

Flm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja á þskj. 21 till. til þál. um að skora á ríkisstj. að láta framkvæma athugun á því, á hvern hátt Ísland geti tekið virkari þátt, en nú er, í því að veita aðstoð hinum svokölluðu þróunarlöndum og leggja niðurstöður þeirrar athugunar fyrir hv. Alþingi, þegar henni er lokið.

Ég hygg, hvað sem öðru líður, að enginn ágreiningur geti verið um, að það sé rétt, sem haldið er fram í grg. minni fyrir þátill., að efnahagsvandamál þróunarlandanna eru eitthvert mesta vandamálið, sem mannkynið á nú við að etja. Útrýming hinnar sáru fátæktar, sem allur þorri fólks í þessum löndum á við að búa, hlýtur að vera eitthvert mikilvægasta mannúðarmál, sem nú er til úrlausnar. En málið hefur einnig sína stjórnmálahlið, því að á sama hátt og allt of ójöfn tekjuskipting milli þjóðfélagsstétta veldur jafnan ókyrrð og átökum innan einstakra þjóðfélaga, getur allt of mikill lífskjaramunur stofnað í hættu friðsamlegri sambúð þjóða. En þessi hlið málsins veit ég að er hv. þm. yfirleitt kunn og ég sé ekki ástæðu til að ræða hana nánar.

En síðan till. þessi kom fram, hef ég hitt allmarga, fáeina innan þings, en fleiri þó utan, sem dregið hafa nokkuð í efa, að ástæða væri til þess fyrir okkur Íslendinga að láta þetta mál til okkar taka umfram það, sem leiðir af þátttöku okkar í starfi Sameinuðu þjóðanna og öðru alþjóðlegu samstarfi. Ég tel því rétt að fylgja till. þessari úr hlaði með því að ræða í sem stytztu máli þau meginsjónarmið, sem ég hef orðið var við, að því er snertir þessa hlið málsins.

Sumir hafa í fyrsta lagi spurt sem svo: Hvað er átt við með þróunarlöndum og hlýtur ekki Ísland einmitt að teljast til þeirra? Nú er að vísu ekki til neinn einhlítur og óumdeildur mælikvarði á það, hvað sé þróunarland. En eins og getur í grg. minni fyrir þátill., þá er langalgengast að miða í því efni við raunverulegar þjóðartekjur á mann, og þó að aftur megi þá deila um það, hvaða mark skuli miða við, þegar meta skal, hvort tiltekið land sé þróunarland eða ekki, þá kemur ekki til greina undir neinum kringumstæðum að telja land, þar sem raunverulegar þjóðartekjur á mann eru svo háar sem hér á landi, til þróunarlanda. Það er auðvitað rétt, að hér á landi er margt ógert og mikil þörf uppbyggingar og tækniframfara. En í þeirri merkingu eru öll lönd heimsbyggðarinnar þróunarlönd. Verðmæti þjóðarframleiðslu á mann mun nú nema hér á landi milli 1.600 og 1.700 dollurum á ári, en það er um það bil þrefalt verðmæti þjóðarframleiðslu í þeim þróunarlöndum, þar sem hún er mest. En er Ísland ekki aðili að Sameinuðu þjóðunum og ýmsum alþjóðastofnunum, sem reka hjálparstarfsemi fyrir þróunarlöndin? Svo er að vísu og greiða Íslendingar til þeirrar starfsemi í samræmi við þær reglur, sem í gildi eru á hverjum tíma um framlög hverrar einstakrar þjóðar til slíkrar starfsemi. Þannig er t.d. í fjárlagafrv. því, er lagt hefur verið fyrir þetta þing, gert ráð fyrir 600 þús. kr. framlagi vegna tækniaðstoðar á vegum Sameinuðu þjóðanna og sama framlagi var gert ráð fyrir á fjárlögum fyrir yfirstandandi ár. En minnst af þeirri efnahagsaðstoð, sem þróunarlöndunum er veitt, er þó á vegum þessara alþjóðastofnana, enda skiljanlega takmörk fyrir því, hvað mikil framlög fást til slíkrar starfsemi, ef hin einstöku lönd, sem leggja fé fram í þessu skyni, geta ekki haft nein áhrif á ráðstöfun þeirra, þannig að mest af þeirri aðstoð, sem þróunarlöndunum er veitt, er í þeirri mynd, að einstök ríki skipuleggja starfsemi á þessum sviðum hvert á sinn kostnað.

Eins og við má búast, hafa Bandaríkin verið stórtækust allra einstakra landa á þessu sviði, enda eru þjóðartekjur á mann þar hærri, en í nokkru landi öðru eða nær tvöfaldar á við þjóðartekjur Íslendinga, þó að munur lífskjara þar og hér sé ekki svo mikill sem nemur mun á þjóðartekjum vegna hás verðlags í Bandaríkjunum. Auk stórfelldra framlaga til efnahagsaðstoðar í þágu þróunarlandanna er þar í landi fjöldi stofnana og sérfræðinga, sem annast rannsóknir á því, hversu hjálp þessa megi veita, þannig að hún komi að sem mestum notum. En þó að það sé þannig, að Bandaríkin séu það land jarðarinnar, sem hefur hæstar þjóðartekjur á mann, mun þó marga hv. þm. vafalaust reka minni til þess, að í nýafstöðnum forsetakosningum í Bandaríkjunum var eitt af þeim málum, sem ofarlega voru á baugi í kosningabaráttunni, hvað miklum fjármunum Bandaríkin ættu að verja til útrýmingar fátækt þar í landi og í öðru lagi má minna á það, að a.m.k. til skamms tíma, ef ekki enn í dag hafa ýmis einstök ríki og landssvæði í Bandaríkjunum verið talin vanþróuð. En þessar staðreyndir sýna, hve víðtækt það vandamál er, sem hér er um að ræða, þannig að það er jafnvel fyrir hendi í hinum auðugustu löndum.

En það eru ekki eingöngu lönd, sem eiga við svipaða auðlegð að búa og Bandaríkin, sem lagt hafa mikið af mörkum í þessu skyni. Eins og getið er um í grg. minni fyrir þessari þáltill., hafa öll Norðurlöndin með höndum umfangs mikla starfsemi á þessu sviði. En að undantekinni Svíþjóð eru þjóðartekjur á íbúa þó ekki hærri á hinum Norðurlöndunum, en hér á landi. Þær eru svipaðar og hér í Danmörku og Noregi, en talsvert lægri í Finnlandi, enda verð ég að játa, að ég þekki minnst til þess, hvernig aðstoð við þróunarlöndin er hagað þar, en veit þó, að hún er töluverð. Sem dæmi um það, hversu t.d. Danir telja sér skylt að taka þessi mál föstum tökum, má nefna það, að vorið 1962 hitti ég í Kaupmannahöfn skólabróður minn frá námsárum mínum í Kaupmannahöfn, Poul Nyboe Andersen, prófessor við danska verzlunarháskólann og formann Sambands dönsku samvinnufélaganna, en prófessor Nyboe Andersen er einn af kunnustu hagfræðingum Dana. Sagði hann mér þá frá því, að hann hefði nýlega verið skipaður formaður í nefnd, er gera átti tillögur um skipulagningu aðstoðar Dana við þróunarlöndin, og var gert ráð fyrir því, að nefnd þessi ætti að starfa í 1–2 ár. Hafði þess jafnframt verið óskað, að prófessor Nyboe Andersen léti af báðum þeim störfum, sem hann þá gegndi, prófessorsstarfinu og formennsku í sambandi dönsku samvinnufélaganna, meðan á athuguninni stæði, þannig að hann gæti óskiptur helgað sig því starfi, sem þarna var um að ræða.

En það eru ekki eingöngu þjóðir, sem búa við svipuð og betri lífskjör en Íslendingar, sem taka þátt í aðstoð við þróunarlöndin. Þess munu ófá dæmi, að þau þróunarlönd, sem lengra eru komin á þróunarbrautinni, veiti aðstoð þeim þróunarlöndum, sem skemmra eru komin. Það má einnig nefna, að þjóðir eins og t.d. Japanir og Rússar veita mikla efnahagsaðstoð til þróunarlanda og munu hinir fyrrnefndu, eða Japanir, þó ekki hafa náð 500 dollara árstekjum á íbúa eða því marki. sem samkv. áður sögðu er algengast að miða við, þegar ákvarða skal, hvort ákveðið land skuli teljast þróunarland eða ekki. Og þjóðartekjur Rússa munu ekki vera mikið yfir þessu marki.

Með hliðsjón af því, sem nú hefur verið sagt, er það skoðun mín, að meira tómlætis hafi gætt af hálfu okkar Íslendinga í þessu mikilvæga alþjóðlega mannúðar- og menningarmáli, en æskilegt er og því er till. sú, er hér liggur fyrir, fram borin, því að siðferðileg skylda einstakra þjóða til að láta mál þetta til sín taka hlýtur að verða háð efnahag, ekki fólksfjölda. Það er eðlilegt, að gerðar séu í þessu efni meiri kröfur, t.d. til Svía og Svisslendinga, en jafnfjölmennra negra- eða indíánaríkja. Það er óvefengjanleg staðreynd, að Íslendingar eru í hópi þeirra 10% íbúa jarðarinnar, sem hæstar tekjur hafa. Ég tel okkur því siðferðilega skylt að athuga það, hvað hugsanlegt er, að við getum gert í þessu efni. Það er auðvitað hugsanlegt, þó að það sé að vísu að mínu áliti ekki líklegt, að niðurstaða slíkrar athugunar yrði neikvæð. en jafnvel þótt svo væri, teldi ég engu síður rétt, að slík athugun yrði gerð, því að þá gætum við a.m.k. haft betri samvizku á eftir.

Þó að ég fari ekki út í það sem neinu nemur að ræða, með hverju móti er hugsanlegt, að þátttaka okkar í aðstoð við þróunarlöndin geti orðið, þá tel ég þó rétt að benda á það, að fleira kemur til greina í því efni, en fjárframlög til einhverra ákveðinna framkvæmda í þessum löndum. Hvað slík fjárframlög snertir, er mér ljóst, að varla getur þar verið um að ræða framlög af okkar hálfu, sem um munar. En það er fleira, en fjármagnsskortur, sem hamlar efnahagslegri þróun þessara landa. Fáfræði almennings og öðru fremur skortur á verkkunnáttu eru ekki síður meðal mikilvægustu orsaka þess, að lönd þessi hafa dregizt aftur úr í efnahagslegu tilliti. Þegar ég tala um skort á verkkunnáttu, á ég ekki fyrst og fremst við skort á hámenntuðum sérfræðingum. Á því sviði erum við vissulega ekki heldur aflögufærir. Ég á við hitt, að almenn verkkunnátta í þessum löndum er gjarnan öldum á eftir því, sem er hér á landi og í nágrannalöndum vorum. Verkkunnátta, sem hér er almenn, gæti því, ef hún næði til þessara þjóða, gerbylt lífskjörum þeirra. Slíkri kunnáttu gætum við bæði miðlað þessum þjóðum með því að senda menn til þessara landa í því skyni að kenna það, sem að gagni mætti koma þar, eða taka á móti fólki frá þróunarlöndunum til verklegs náms eða annars, sem að gagni mætti koma. Ég tel rétt einmitt í þessu sambandi að geta þess, sem ýmsum hv. þm. er kunnugt um, að það hafa að vísu nokkrir íslenzkir sérfræðingar starfað í þessum löndum á vegum Sameinuðu þjóðanna eða einstakra stofnana þeirra, svo sem alþjóðlegu matvælastofnunarinnar, en ég tel, að það geti ekki talizt aðstoð Íslands við þessi lönd, vegna þess að menn þessir eru algerlega kostaðir af þeim alþjóðlegu stofnunum, sem hlut eiga að máli. Hins vegar getur auðvitað þekking þessara manna, þegar þeir hafa horfið heim frá þessum störfum, verið okkur mikilvæg einmitt í sambandi við ráðstafanir, sem við kynnum að gera í þessum efnum. En fyrir utan þetta kemur einnig til greina margs konar leiðbeiningastarfsemi á öðrum sviðum, svo sem heilbrigðismála, kennslu og uppeldismála o.s.frv. Slík leiðbeiningastarfsemi gæti komið þessum löndum að miklum notum, en þarf ekki að kosta ýkjamikið þau lönd eða það land, sem hana getur látið í té. En hins má þó auðvitað ekki ganga dulinn, að þó að hjálpin væri eingöngu í þeirri mynd, sem nú hefur verið nefnd, kostar hún alltaf eitthvað, þannig að ef ekki kemur til greina að láta neina fjármuni af hendi rakna í þessu skyni, þá er að mínu áliti út í bláinn að ræða þetta mál frekar.

Aðstoð við þróunarlöndin er, eins og ég sagði áðan, fyrst og fremst menningar- og mannúðarmál, þannig að komi til greina að veita slíka hjálp, verður það að vera í þeim tilgangi einum að gera gott án bakþanka um viðskipti við þessar þjóðir síðar eða fjárhagslegan ávinning í einni eða annarri mynd. Nú er það vissulega svo, sem flestum hv. þm. mun kunnugt um, að við höfum allmikil viðskipti við sum þessara þróunarlanda. Skylt er auðvitað og nauðsynlegt að vinna að því að efla slík viðskipti, leita nýrra markaða o.s.frv., enda hafa á undanförnum þingum verið uppi hér á hv. Alþingi ýmsar till. um ráðstafanir í þeim efnum. Það er allt saman að mínu áliti mikilvægt og góðra gjalda vert, en því má ekki blanda saman við það málefni, sem hér er um að ræða.

En þrátt fyrir þetta má þó á það benda, að slík starfsemi kemur ekki einvörðungu að gagni þeim þjóðum, sem hennar njóta, heldur einnig þeim, er hana láta í té. Það er ekki vafi á því, að sú þekking og reynsla, sem fengizt hefur í sambandi við þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið til þess að efla hagvöxt í þróunarlöndunum, hefur komið að miklu gagni í sambandi við ráðstafanir, sem gera hefur þurft til þess að efla hagvöxt í þeim löndum, sem aðstoðina hafa veitt. Tel ég m.a. ekki vafa á því, að þetta hefur haft sín áhrif á það, hvaða markmiðum hefur þótt æskilegt að keppa að í efnahagsmálum, þannig að þar sem sá hugsunarháttur var ríkjandi fyrir stríð, að nægilegt væri að tryggja jafnvægi í efnahagsmálum, eins og það hefur verið kallað, er nú jafnhliða og ekki síður lögð áherzla á það að efla hagvöxtinn. Og þó að Ísland sé ekki þróunarland, þá eru efnahagsvandamál smáríkja. hvort sem þjóðartekjur þar eru meiri eða minni, á ýmsan hátt skyld efnahagsvandamálum þróunarlandanna. Má þar nefna sem dæmi skort á sérfræðingum, of einhliða uppbyggingu atvinnuveganna o. fl., þannig að þó að það geti verið lærdómsríkt fyrir hvaða land sem er að kynnast vandamálum þróunarlandanna og taka þátt í að leysa þau, þá á það af þessari ástæðu ekki sízt við um smáríkin eins og okkar land.

Þá má og nefna það, að enda þótt umrædda aðstoð beri, eins og ég sagði, að veita án bakþanka um markaðsöflun og þess háttar, þá höfum við á alþjóðlegum vettvangi margvísleg viðskipti við þróunarlöndin, þannig að velvilji þeirra getur orðið okkur mikils virði. En þátttaka í aðstoð við þau er líklegri til að glæða þann velvilja, en kaupsýsluviðskipti einvörðungu, án þess að á nokkurn hátt skuli reynt að gera lítið úr mikilvægi hinna síðar nefndu. Ég er líka ekki fjarri því, að það kynni að sumu leyti að hafa bætandi áhrif á hugsunarhátt margra Íslendinga að kynnast því, hvað raunveruleg fátækt er, því að þótt fátækt sé vissulega vandamál einnig hér á landi og þjóðartekjum og þjóðarauði sé nokkuð misskipt, þá eru þau vandamál þó smávaxin í samanburði við hliðstæð vandamál þróunarlandanna og felst það þó ekki í þessum orðum, að ekki beri að vinna að lausn þessara vandamála einnig hér. En eins og hv. þm. yfirleitt mun vera kunnugt, hafa opinberar skýrslur lengst af, allt frá því seinni heimsstyrjöldinni lauk, borið það með sér, að hagvöxtur hefur ekki verið eins ör hér á landi og í öðrum Vestur–Evrópulöndum. Til þess liggja auðvitað margar ástæður, sem ég sé ekki ástæðu til að rekja í sambandi við þetta mál, en eitt af fleiru, sem hindrað hefur, að hagvöxtur undanfarinna ára hafi verið svo mikill sem efni hefðu annars staðið til, er óraunhæf kröfugerð margs konar hagsmunahópa hér á landi á hendur þjóðarheildinni. Meiri almenn þekking á hinu alþjóðlega vandamáli fátæktarinnar gæti í senn að mínu áliti átt þátt í því að draga úr þessari orsök hægari efnahagsþróunar hér á landi, en ella þyrfti að vera, jafnframt því sem sú þekking gæti komið að haldi við lausn slíkra vandamála, bæði að því er snertir einstakar þjóðfélagsstéttir og landshluta, sem kunna að hafa dregizt meira aftur úr en æskilegt má telja.

Ég hef af ásettu ráði ekki gert um það ákveðnar till., á hvern hátt sú athugun skuli fara fram, sem þáltill. mín leggur til að gerð verði. Það yrði eitt af viðfangsefnum þeirrar hv. n., sem mál þetta fær til meðferðar, að ræða það. Til greina hefði getað komið að leggja til, að kosin væri í þetta þingkjörin nefnd og vissulega tel ég málið nægilega mikilvægt til þess, að sú leið yrði farin. En það vill bara oft verða þannig með slíkar nefndir, að þær verða afkasta litlar, þó að auðvitað sé það komið undir þeim mönnum, sem í þær veljast. Ég mundi því telja, að ekki mundi síður vænlegt til árangurs, að t.d. þau ráðuneyti, sem telja má helzt að mál þessi heyri undir, fælu einhverjum af starfsmönnum sínum eða öðrum, sem ætla mætti að hefðu einhverja þekkingu á þessum málum, að framkvæma athugunina. En það atriði, á hvern hátt þessi athugun verður gerð, er látið opið í till., eins og hún er borin fram.

Ég hef einnig velt því nokkuð fyrir mér, af því að það getur verið álitamál, hvaða þn. ætti að fá þetta mál til meðferðar. Í fljótu bragði kynni að virðast, að eðlilegt væri að vísa málinu til hv. utanrmn., því að utanríkismál er þetta að vissu leyti. Þó hef ég nú litið svo á, að hlutverk hv. utanrmn. sé fyrst og fremst að fjalla um þau mál, sem snerta stjórnmálaleg viðskipti við aðrar þjóðir, en þetta mál er ekki þess eðlis. Þess vegna hefur það nú orðið niðurstaða mín, þó að ég telji það í sjálfu sér ekki neitt atriði, að eðlilegast væri, þegar öllu væri á botninn hvolft, að hv. allshn. fengi málið til meðferðar.

Herra forseti. Ég legg svo til, að umr. verði frestað og málinu vísað til hv. allshn.