18.12.1964
Efri deild: 33. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í B-deild Alþingistíðinda. (266)
106. mál, söluskattur
Forsrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Við 1. umr. málsins lýsti hv. 4. þm. Norðurl. e. yfir því, að af hálfu samningsaðila vegna Alþýðusambandsins hefði það verið skilið svo, samkomulagið, sem gert var í júní í sumar, að ef niðurgreiðslur yrðu auknar á árinu til þess að halda verðlagi niðri, þá yrði það gert án þess að nýir skattar yrðu lagðir á þess vegna. En það er skýrt tekið fram af honum, að hann átti einungis við niðurgreiðslur á þessu ári, sem nú er að líða. Ég lýsti því þegar yfir, að af hálfu ríkisstj. hefði engin slík yfirlýsing verið gefin né teldi ég, að samningsaðilar af hálfu Alþýðusambandsins hefðu haft ástæðu til þess að skilja yfirlýsingar mínar eða annarra, sem ég vissi um, á þennan veg, heldur hefði þvert á móti af minni hálfu verið gefin yfirlýsing, sem hefði átt að aðvara þá um, að þessi þeirra skilningur fengi ekki staðizt.
Nú hef ég átt frekari viðræður við þá hv. þm., sem voru í þessum samningum af hálfu Alþýðusambandsins í sumar, þá Björn Jónsson, Eðvarð Sigurðsson og Hannibal Valdimarsson, og ég hef af þeim viðræðum fyllilega sannfærzt um, að þeir eru í góðri trú um sinn skilning, jafnframt því sem ég legg áherzlu á, að ríkisstj. telur, að sinn skilningur og sá, sem kemur fram í þessu frv., sé réttur frá hennar sjónarmiði, þ.e.a.s. hún er í góðri trú um sinn skilning. Hér hefur því orðið einhver misskilningur, og þar sem ég tel það vera höfuðnauðsyn, að hvorugur aðili hafi nokkra ástæðu til að ætla, að reynt sé að hlunnfara hann í þessu máli eða nota sér misskilning, sem á sér stað í góðri trú, þá hef ég lagt til við ríkisstj., að hún fallist á, að skattheimtan, sem hér um ræðir, verði lækkuð, þ.e.a.s. í stað 8% verði farið fram á 7 1/2% söluskatt. Það svarar nokkurn veginn til þeirrar fjárhæðar, sem hér er um deilt.
Eins og ég segi, tel ég og er sannfærður um, að báðir aðilar eru hér í góðri trú um þann skilning, sem af þeirra hálfu hefur komið fram. Ég tel, að þó að okkur greini á um lausn þess vanda, sem nú liggur fyrir og verður að leysa, sé það frumskilyrði, að menn geti áfram í góðri trú átt viðræður og unnið eftir beztu vitund að leysa þann vanda, sem fram undan er, og í þeirri sannfæringu um, að þetta viðhorf sé rétt, hef ég beitt mér fyrir þessari till. og ríkisstj. fallizt á hana, og hún mun vera lögð hér fram.
Að öðru leyti skal ég ekki á þessu stigi blanda mér í deilurnar, sem hér eru um efni málsins, en taldi rétt, að þetta kæmi fram strax í upphafi umr., svo að það deiluefni væri úr sögunni.