25.11.1964
Sameinað þing: 14. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í D-deild Alþingistíðinda. (2660)

21. mál, aðstoð við þróunarlöndin

Ingvar Gíslason:

Herra forseti. Mig langar að segja aðeins örfá orð frá mínu brjósti um þetta mál.

Með till. þessari er hreyft athyglisverðu máli, sem ég man ekki til að hafi verið rætt sérstaklega á Alþingi fyrr en nú, en það eru þau margvíslegu vandamál, sem nýsjálfstæðar þjóðir og fyrrverandi nýlendur eiga við að stríða. Nú er það svo, að þessi mál eru mjög ofarlega á baugi hvarvetna þar, sem rætt er um alþjóðamál, svo sem hjá Sameinuðu þjóðunum og innan annarra alþjóðlegra samtaka, þ. á m. samvinnuhreyfingarinnar, verkalýðshreyfingarinnar og ýmissa stjórnmála- og menningarlegra alþjóðasamtaka. Ómurinn af þessum umr. hefur endrum og eins náð til Íslands, þó að fremur hafi það verið áhugamál einstaklinga, en samtaka, að kynna sér málefni þróunarlandanna og taka afstöðu til þess, sem þar er að gerast. Einnig er vel skiljanlegt, þótt Íslendingar hafi verið seinir á sér til beinnar þátttöku í aðstoðinni við hin svonefndu þróunarlönd, því að sannast sagna erum við lítt aflögufærir um fé og mannafla, sem að notum kynni að verða, því að Ísland er um sumt lítið betur á vegi statt en þróunarlöndin, einkum að því leyti, hve hér er mikill skortur á tæknimenntuðu fólki til forustu- og aðstoðarstarfa í hinum ýmsu greinum atvinnulífs.

Við, sem sæti eigum í fjvn., höfum nú nýlega átt mjög ýtarleg viðtöl við ýmsa forstöðumenn rannsóknarstofnana í þágu atvinnuveganna, svo sem framkvæmdastjóra rannsóknaráðs, deildarstjórana í atvinnudeild háskólans og forstjóra rannsóknarstofu Fiskifélags Íslands, fiskimálastjóra, búnaðarmálastjóra og ýmsa fleiri. Niðurstaðan af þessum viðtölum virðist mér vera sú, að allar umræddar stofnanir líði svo fyrir skort á fé og starfsfólki, að þær skili vart nema hálfum afköstum og rannsóknarverkefni, t.d. í fiskifræði, hrúgist upp, án þess að hægt sé að vinna úr þeim vegna þess mikla skorts nauðsynlegrar aðstoðar og fjár, sem orkar lamandi á afköst þessara stofnana. Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum staðreyndum, þegar það málefni, sem till. fjallar um, er til umr. Tillgr. er hins vegar svo hógværlega orðuð, að þar er ekki um neinar sérstakar ábendingar eða fyrirmæli að ræða, um það, í hverju aðstoð Íslendinga við þróunarlöndin ætti að vera, heldur aðeins gert ráð fyrir, að ríkisstj. láti fara fram athugun á því, með hverju móti Ísland geti tekið virkari þátt í að velta þróunarlöndunum aðstoð til eflingar efnahagslegum framförum.

Ég felli mig vel við þetta hógværa orðalag út af fyrir sig, en hins vegar hefði ég talið eðlilegra, að kosin hefði verið sérstök nefnd, t.d. eftir tilnefningu þingflokkanna, sem hefði með þetta málefni að gera. Ríkisstj. gæti skipað einn mann til þess að tryggja meiri hl. sinn í n. Hér er að vísu um formsatriði að ræða, en frá lýðræðislegu og þinglegu sjónarmiði er nefndarskipun í þeim vanda, sem ég hef lýst, eðlilegri, þar sem hér er um að ræða nýtt málefni, sem litið eða ekkert hefur verið rætt hér á landi og alls ekki vandalaust að taka afstöðu til.

Í till., eins og hún er orðuð, er rætt um aðstoð til eflingar efnahagslegum framförum í þróunarlöndunum. Sé orðið „efnhagslegur“ skilið í mjög víðri merkingu, er ekkert við það að athuga, en sé hér einvörðungu átt við efnahagslega aðstoð í þrengri skilningi, þá vildi ég leyfa mér að stinga aðeins við fótum. Flm. till. hefur réttilega bent á hinar lágu meðaltekjur á íbúa í þróunarlöndunum, og hann hefur rætt um efnahagsvandamál þessara landa í því sambandi, sem rétt er, og þó að ég sé enginn sérfræðingur í málefnum þróunarlandanna og viti áreiðanlega miklu minna, en margir aðrir, t.d. hv. flm., um þetta mál, þá hef ég þó reynt að fylgjast dálítið með þróuninni í þessum löndum, eins og fleiri, í gegnum almennar fréttir og frásagnir, sem birzt hafa í blöðum og bókum. Ég hef líka átt þess kost, eins og margir aðrir, að ræða við menn, sem tilheyra þróunarþjóðunum og það er að mínu viti lærdómsríkara, en flest annað. Af þeim þekkingarmolum, sem fallið hafa á mitt borð, hef ég fengið það á tilfinninguna, að vandamál þróunarlandanna séu svo margþætt, að erfitt sé að ákveða, hvar þörfin sé brýnust og hvar byrja skuli, þegar um úrlausn margra verkefna er að ræða. Þá hef ég einhvern veginn fengið það inn í mig, að erlend uppbyggingaraðstoð í þróunarlöndunum sé ærið oft byggð á miklum þekkingarskorti og skilningsleysi á háttum og högum þessa fólks, sem verið er að aðstoða. Það virðist oftast gengið út frá þeirri forsendu, að nauðsynlegt sé að ryðjast inn í þessi lönd með mikið fjármagn og stóriðjuframkvæmdir til þess að efla framleiðsluna, eins og það er kallað og auka útflutning og hafa sem allra mestan hraða á iðnvæðingu. Hins vegar er lítill gaumur gefinn þeirri megin staðreynd, að þjóðir þær, sem þessi lönd byggja, skortir í mörgum tilfellum frumskilyrði þess, sem iðnvæðingin verður að byggjast á sem er menntun og helzt borgarmenning. Þær þjóðir sem hér um ræðir, hafa svo að segja alla tíð byggt afkomu sína á landbúnaði og kröfur þeirra um góð lífskjör eru að heita má aðeins þær að hafa matbjörg og húsaskjól og frið. Meginhluti smábændanna og leiguliðanna í Afríku og Asíu og — mætti kannske bæta við — rómönsku Ameríku á sér aðeins eina ósk og það er, að hver um sig hafi til umráða hæfilega stóra jörð, þar sem hann getur framfleytt sér og fjölskyldu sinni á þeim afurðum, sem jörðin gefur af sér. Aðstæður í þessum löndum eru nefnilega svo frumstæðar, að menn eru ekki öruggir með að hafa til hnífs og skeiðar, nema þeir hafi jarðnæði og aðstöðu til þess að framleiða sinn eigin mat. Það, sem fólkið því biður um á þessu stigi þjóðfélagsþróunar, er ekki skjót iðnbylting, heldur aðeins réttlát skipting jarðeigna og trygging gegn arðráni og matarskorti. Sé hægt að fullnægja þessum frumþörfum, þá kemur af sjálfu sér að efla menntun og andlega menningu einstaklinga og þjóðarheildar. Og því meir sem þekkingunni fleygir fram, því fremur aukast möguleikarnir á því, að hægt sé að fjölga atvinnugreinum og koma af stað iðnþróun stig af stigi. Vandamál þróunarlandanna eru engan veginn sambærileg við vandamál Evrópumanna og Bandaríkjamanna. Þar er engu saman að jafna. Við þekkjum það af mannkynssögunni, að þær þjóðir, sem lengst eru komnar í menningar- og tækniþróun, hafa gengið í gegnum ótal þróunarstig, sem ná yfir margar kynslóðir og margar aldir í ýmsum tilfellum. Það er því ofætlun, ef við krefjumst þess af hinum svo nefndu þróunarþjóðum, að þær stökkvi í einu stökki á örfáum árum út úr myrkri fornaldar eða miðalda það, sem tók aðrar þjóðir aldir og áratugi.

Það, sem ég hef sagt, má ekki líta á sem vantrú á getu og gáfur þróunarþjóðanna. Ég er sannfærður um, að þessar þjóðir standa að gáfum og eðlisgreind jafnfætis öðrum þjóðum, sem lengra eru komnar í menntun og verklegri þekkingu, enda hafa þeir tiltölulega fáu einstaklingar, sem notið hafa menntunar, m.a. í háskólum víða um heim, sýnt það með námsárangri sínum og þátttöku í félagsstörfum, að þeir eru engir eftirbátar annarra um andlega hæfileika. Enda mættum við gjarnan vita það, að þó að þessar þjóðir séu í þeim skilningi frumstæðar, að atvinnulífið er fábreytt og verkleg kunnátta lítil og menning með öðrum hætti, en tíðkast í Evrópu, þá er mikil firra að halda því fram, að þær séu menningarlausar eða villiþjóðir. Margar þessara þjóða eiga sér einmitt mjög merkilega menningarleifð, sem geymd er í sögum, í myndlist, tónlist, dönsum og sérstakri siðfræði og ýmsum þjóðsiðum og raunar í hreinum bókmenntum og vísindum, margar hverjar. Hugmyndir okkar hafa oftast byggzt á hleypidómum og villandi frásögnum Englendinga eða Frakka og annarra nýlenduherra, sem lengstum hafa bætt skilningsleysi og menningarhroka ofan á arðrán sitt í nýlendunum í skjóli betri tækni og vopnabúnaðar.

Upp úr síðari heimsstyrjöldinni fara viðhorfin gagnvart nýlenduþjóðunum að breytast, og hver þjóðin af annarri hefur hlotið sjálfstæði og innlenda stjórn. Það hefur þó alltaf bryddað á þeirri skoðun, að margar þessara þjóða hefðu hvorki menningar- né stjórnmálaþroska til þess að ráða sér sjálfar og það mun víst rétt vera, að stjórnmálaástandi er víða sorglega áfátt í nýsjálfstæðum löndum. Og lýðræði í eiginlegum skilningi hefur ekki fest rætur í þessum löndum og margir valdhafar hafa gerzt sekir um glæpsamlega valdníðslu og spillingu og þverbrotið allar reglur réttarríkis. En slík ósköp hafa víðar orðið, þ. á m. meðal menningarþjóða í Evrópu, og eru því ekkert einsdæmi, og ekkert verður af þeim ráðið, hvað framtíðin ber í skauti sínu. Ég fyrir mitt leyti er þeirrar trúar, að þessar þjóðir eigi framtíðina fyrir sér og fyrst og fremst framtíðina. Í því sambandi er mest um vert, að þær efli sig sjálfar með þroskandi viðfangsefnum og fái frið til þess að marka sér stefnu, sem er í samræmi við eigin þarfir og þjóðmenningu. Flestum þessara þjóða er það höfuðnauðsyn að bægja hungrinu frá dyrum sínum og að efla þá atvinnuvegi innanlands, sem líklegastir eru til þess, að svo megi verða. Þar er nýskipan landbúnaðarins efst á blaði. Ýmsir halda, að það sé hægt að slökkva hungrið með innfluttu gjafakorni og öðrum matvælum lengra að komnum, en það er misskilningur. Allar þjóðir eru vanafastar í mataræði og deyja fremur úr hungri, en að leggja sér þá fæðu til munns, sem þeim er ókunn og ógeðfelld. Við þekkjum það, Íslendingar, af okkar eigin sögu, að fólk leið heldur heilagt hungur, en að leggja sér til munns mat, sem það taldi vanhelgan og því bauð við. En jafnframt því sem hungrið er gert útlægt, þarf að byggja upp menntakerfi og koma upp viðhlítandi heilbrigðisþjónustu. Þegar þessu markmiði uppbyggingar er náð, er fyrst kominn grundvöllur undir verulega iðnvæðingu og tilflutninga fólks úr þorpum í borgir, svo að nokkru nemi. Ýmsir vel menntir og hugsandi menn úr Afríku- og Asíulöndum, sem ég hef haft persónuleg kynni af, hafa lýst fyrir mér þeim ægilegu harmsögum, sem gerzt hafa í löndum þeirra, þegar fákunnandi og staðfestulaust sveitafólk hefur hrakizt úr heimabyggðum sínum, að vísu frá hraklegum kjörum, í borgirnar, þar sem það gerði sér gyllivonir um atvinnu, en fékk ekki annað hlutskipti en sult eða beinan hungurdauða á götum framandi borga. Þetta hefur gerzt í löndum, sem notið hafa efnahagsaðstoðar flestra stórvelda um margra ára skeið. Efnahagsaðstoðin hefur venjulega byrjað á öfugum enda. Milljörðum dollara og rúblna er fleygt í alls konar risamannvirki, stórvirkjanir og stóriðjuver, sem að sjálfsögðu eru myndarleg á að líta og fyrirferðarmikil á efnahagsskýrslum, en þó af þeirri gerð, að þau hafa sáralítið þjóðhagslegt gildi að því leyti, að almenningur fer á mis við hagnað þeirra og nýtur yfirleitt einskis í framförum af því fjármagni, sem í þetta er lagt. Grundvallarþörfum lítilmagnans er ekki fullnægt. Fólkið sjálft verður útundan. Það er áfram sama hungraða mergðin, sem hvergi á höfði sínu að að halla. Frá þessu kunna að vera undantekningar, en yfirleitt mun þessi lýsing vera nokkuð sönn mynd af ástandinu.

Ef Íslendingar treystast til þess að leggja þróunarlöndunum eitthvert lið af sinni fátækt, þá vona ég, að þeir, sem veljast til forustu um slík mál, kynni sér sjálfstætt þarfir viðkomandi þjóða, en lesi ekki allt á annarra bækur eða gegnum annarra gler.

Að gerðum þessum aths. er ég fús til að styðja till., eins og hún liggur fyrir. Ég lít svo á eins og hv. flm., að málefni þróunarlandanna séu okkur ekki óviðkomandi og væri vel, ef þessi till. yrði til þess að vekja sem flesta til umhugsunar um vandamál þessara þjóða og leiða menn til rétts skilnings á högum þeirra og háttum.

Hvað sjálfan mig snertir, er mér einna efst í huga, að við slítum ekki menningar- og félagsleg vandamál þessara þjóða úr tengslum við efnahagsleg vandamál þeirra. Þess vegna álít ég, að það komi allt eins til greina, sem einnig hefur komið fram hjá hv. flm., að við beinum aðstoð okkar, ef til kæmi, inn á þá braut að bjóða stúdentum eða öðrum námsmönnum frá þessum löndum til náms við háskólann, t.d. í læknisfræði eða kynntum þeim félagslega uppbyggingu hér á landi, sem vel hefur gefizt, svo sem á sviði samvinnumála og verkalýðsmála, enda hygg ég, að það muni vera nokkur þáttur í menningar- og efnahagssamskiptum Norðurlanda við þróunarþjóðirnar og þannig um heppilegt fordæmi að ræða fyrir okkur Íslendinga. Eitt af því, sem ég hef heyrt menntaða Asíu- og Afríkubúa ræða um, er það, hvílík nauðsyn þjóðum þeirra sé á þjóðlegri menningarvakningu, þ.e. að rækja þjóðleg fræði, sögu sína og sagnir, þjóðkvæði og allt annað, sem tilheyrir menningu þeirra frá upphafi vega. Þeir hafa sagt, að ef hægt væri að vekja þjóðirnar til meðvitundar um sína eigin þjóðararfleifð, þá hefði það meira gildi fyrir framfarirnar heldur en milljónir dollara og tugir raforkuvera og heil herdeild af erlendum tæknifræðingum, eins og einn vinur minn frá Filippseyjum sagði við mig í fyrra. Ekki á ég von á því, að við Íslendingar getum komið þeim að miklu liði í þessu efni, en hins vegar ættum við að geta skilið, að í þessu er mikill sannleikur fólginn. Slík þjóðleg vakning hefur víðast hvar og ekki sízt hér á landi, leyst úr læðingi þá orku, sem innra býr í mannshuganum og er án efa mikilvæg forsenda framtaks og framfaravilja. Þó að þetta atriði skipti okkur Íslendinga kannske ekki miklu máli vegna sýnilegrar vangetu í því að gerast þjóðlegir vakningapostular í Afríku eða Asíu, þá kann það að skipta t.d. nýlenduveldin fyrrverandi talsverðu máli, vegna þess að þau ráða miklu um fræðslumál þessara landa og hafa gert sig sek um að fara þar aftan að siðunum eins og í fleiru, m.a. með óviðeigandi kennslubókum, allt frá stafrófskveri og upp í mannkynssögu, sem sögð er að hætti stórþjóðanna, en ekki frá sjónarhóli nýlenduþjóðanna sjálfra.

Ég skal ekki hafa þessi orð mín fleiri, en tek undir till., eins og ég hef áður sagt og legg áherzlu á nauðsyn þess, að við reynum að kynna okkur þessi mál sem allra bezt frá ýmsum hliðum.