25.03.1965
Sameinað þing: 34. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í D-deild Alþingistíðinda. (2682)

100. mál, vegáætlun fyrir árin 1965--68

Frsm. meiri hl. (Jón Árnason) :

Herra forseti. Till. til þál. um vegáætlun fyrir árin 1965–1968 var vísað til fjvn. 10. febr. s.l. Hefur n. síðan rætt málið á 18 fundum. Eins og fram kemur í nál., stendur n. öll sameiginlega að brtt. á þskj. 348. Hins vegar hefur ekki náðst samkomulag innan n. um endanlega afgreiðslu málsins. Sá ágreiningur, sem átti sér stað innan n., var um tekjuhlið vegáætlunarinnar. Vildi minni hl. hækka tekjuliðina um 30 millj, kr. fyrir hvort árið 1965 og 1966, og skyldi afla tekna með viðbótarlántökum umfram það, sem hinar sameiginlegu till. n. gera ráð fyrir. Undir afgreiðslu málsins mætti vegamálastjóri á fundum n. Veitti hann margvíslega aðstoð og upplýsingar. Þá átti n. fund með vegamálaráðh. og vegamálastjóra sameiginlega, þar sem ræddir voru sérstakir þættir vegáætlunarinnar.

Það er nú í fyrsta skipti, eftir að vegal. frá 30. des. 1963 voru samþ., að vegáætlun til fjögurra ára liggur fyrir til afgreiðslu. Á síðasta þingi var samþykkt vegáætlun, sem náði aðeins til ársins 1964 hvað framkvæmdir snerti. Hins vegar var þá að mestu gengið frá öðrum þáttum vegáætlunarinnar, svo sem flokkun veganna og öðru því, sem lýtur að ákvæðum l. að öðru leyti. Eins og vegal. kveða á um, eru nú till, gerðar um allar þær framkvæmdir, sem fyrirhugaðar eru á umræddu tímabili. Gegnir sama máli um þær framkvæmdir, sem unnar verða fyrir handbært fé úr vegasjóði og þær framkvæmdir, sem vinna skal að fyrir væntanlegt lánsfé. Með hliðsjón af því flytur n. brtt. um, að á eftir II. kafla, um skiptingu útgjalda, komi nýr kafli, svo hljóðandi:

„Framkvæmdir við hraðbrautir, þjóðbrautir og landsbrautir, sem ekki verða að öllu leyti greiddar af fé vegasjóðs á áætlunartímabilinu. Heimilt er að vinna að lagningu hraðbrauta, þjóðbrauta og landsbrauta svo sem rakið er hér á eftir, ef fjár verður aflað til framkvæmdanna.“

Þau verkefni, sem þannig er ætlað að vinna að á fjögurra ára tímabilinu, eru í fyrsta lagi hraðbrautir: Reykjanesbraut, Vesturlandsvegur, Suðurlandsvegur og Hafnarfjarðarvegur. Fyrirhuguð lán til framkvæmda í hraðbrautunum eru 1965 62.5 millj., 1966 63.9 millj., 1967 75.8 millj. og 1968 71.8 millj. kr.

Í öðru lagi eru þjóðbrautir. Þar er um að ræða Siglufjarðarveg eða Strákaveg, Múlaveg, Austurlandsveg og Suðurfjarðaveg um Vattarnes. Fyrirhugað lán til framkvæmda í þjóðbrautum er á árinu 1965 15.4 millj., 1966 15.6 millj., 1967 6 millj. og 1968 6 millj. kr. Þá er gert ráð fyrir að taka lán til landsbrauta, samtals 3½ millj. kr., á árunum 1966–1968 og verja því fé til byggingar Heydalsvegar.

Samkv. 10. gr. vegal. skal vegamálastjóri semja till. að vegáætlun fyrir þjóðvegi, aðalfjallvegi og aðra fjallvegi til fjögurra ára i senn, til leiðbeiningar um skiptingu þess fjár, sem til ráðstöfunar er hverju sinni til vegagerðar. Skal áætlunin annars vegar gera grein fyrir þeim framkvæmdum, sem fyrirhugaðar eru á tímabilinu, en hins vegar þeirri fjáröflun, sem gert er ráð fyrir vegna þeirra. Þegar vegáætlunin var lögð fram á Alþ., hafði vegamálastjóri ekki gengið frá till. sínum um skiptingu fjár eða till. um einstakar vegaframkvæmdir. Þessar till. bárust n. hinn 15. febr. Voru það ýtarlegar og sundurliðaðar upplýsingar um kostnað við nýbyggingu helztu þjóðbrauta, landsbrauta, brúargerðir og síðar komu till. um hraðbrautir. Þessar upplýsingar vegamálastjóra náðu yfir framkvæmdir á þjóðbrautum, sem kosta 227 millj. og 350 þús. kr. Þar á móti er fé til ráðstöfunar í vegáætlun samkv. till. vegamálastjóra 89 millj. 510 þús. Til framkvæmda í landsbrautum voru áætlanir yfir 193 millj. 195 þús. kr., en þar á móti var á sama hátt fé til framkvæmda 99 millj. 590 þús. kr. Til brúargerða voru kostnaðaráætlanir yfir 32 stórbrýr og 73 brýr, sem eru 10 m og lengri, eða samtals 105 brýr. Heildarkostnaður er 219 millj. 275 þús. kr., en fjármagn í vegáætlun samkv. till. vegamálastjóra 92 millj. 495 þús. kr. Þá fylgdi till. vegamálastjóra yfirlit um stórbrýr á óbrúuðum ám og brýr, sem þarf að endurbyggja á næstu 10 árum. Stórbrýr eru þær brýr kallaðar, sem kosta 2 millj. kr. eða meira. Fjöldi þeirra, sem talið er að þurfi að byggja eða endurbyggja á næstu 10 árum, er alls 59 brýr, samtals 3.631 lengdarmetrar og kostnaður áætlaður 232.5 millj. Brýr, sem eru 10 m og stærri, en undir 2 millj. kr. kostnaði, telur vegamálastjóri á sama hátt að séu alls 187, samtals 3.727 lengdarmetrar og áætlaður heildarkostnaður 165.9 millj. kr. Eins og sjá má af vegáætluninni og þeim fskj., sem með henni eru, ásamt þeim upplýsingum, sem vegamálaskrifstofan hefur látið fjvn. í té, er ljóst, að þegar er búið að vinna geysimikið verk varðandi allan undirbúning að framhaldi og endurbyggingu þjóðveganna. Hafa þessar upplýsingar auðveldað þm. að átta sig á stærð þeirra verkefna, sem úrlausnar bíða og með hliðsjón af því hafa þeir svo gert sínar till. um skiptingu þess fjármagns, sem fyrir hendi er.

Í aðalatriðum er skipting á fé milli kjördæma í sömu hlutföllum og var á s.l. ári. Hefur n. einnig á sama hátt og áður haft samráð við þm. um einstakar fjárveitingar og farið nær eingöngu eftir óskum þeirra um skiptinguna. Í bréfi vegamálastjóra til fjvn. 15. febr. s.l. segir m.a.:

„Þegar till. til þál. um vegáætlun fyrir árin 1965–1968 var lögð fram á Alþ. á s.l. hausti, varð að sjálfsögðu að áætla tekjur vegasjóðs samkv. vegal. fyrir seinasta ársfjórðung ársins 1964. Þar sem ofangreindri till. til þál. var ekki vísað til fjvn. fyrr en í byrjun þessa mánaðar, hefur í samráði við samgmrn. þótt rétt að endurskoða áætlanir um tekjur og skiptingu útgjalda með hliðsjón af ýtarlegri upplýsingum um þessi atriði, er nú liggja fyrir.“

Þær breytingar, sem endurskoðunin leiddi í ljós varðandi tekjuliði áætlunarinnar, snerta aðeins árið 1965, en eftirstöðvar tekna frá árinu 1964 eru taldar vanáætlaðar um 1.5 millj. kr. nettó. Hækka því tekjuliðir um sömu upphæð. D–liður tekjuáætlunarinnar, ríkisframlag vegna 89. gr. vegal., var 47.1 millj. Er það 100 þús. kr. hærri upphæð, en fjárlög heimila og varð því að leiðrétta. B-liðurinn, tekjur af þungaskatti, var hins vegar hækkaður um sömu upphæð,og hafa þessar breytingar því ekki áhrif á niðurstöðutölur tekjuáætlunarinnar. Nettótekjur áranna 1966–1968 eru því óbreyttar.

Í sambandi við skiptingu útgjalda verður nú að taka tillit til þeirra breytinga, sem átt hafa sér stað, frá því að vegáætlunin var samin í októbermánuði s.l. og hafa bein áhrif til hækkunar á allmarga útgjaldaliði áætlunarinnar. Breytingar þessar eru: Hækkun söluskatts 1. jan. úr 5.5% í 7.5%, hækkun á launum opinberra starfsmanna um 6.6% allt árið 1965 og hækkun kaupgjaldsvísitölu um 3.05%, sem kom til framkvæmda 1. marz, og tekur sú hækkun einnig til opinberra starfsmanna. Öll þessi atriði hafa í för með sér breytingar, sem leiða til hækkunar á framkvæmda- og rekstrarkostnaði vegagerðarinnar. Var því óhjákvæmilegt að taka fullt tillit til þess við skiptingu á fé til útgjalda í vegáætlun. Við lið 1, stjórn og undirbúning, nam hækkun útgjalda um og yfir 500 þús. kr. hvort árið. Liðurinn viðhaldskostnaður þjóðvega hækkar 1965 um 2½ millj., 1966 um 2.7 millj., 1967 um 2 millj. 750 þús. og 1968 um 3 millj. kr. Þá varð lítils háttar hækkun á liðunum: til vega í kaupstöðum og kauptúnum og til tilrauna í vega- og gatnagerð. Hvort tveggja er það í samræmi við vegal. og nær aðeins til ársins 1965 í sambandi við hærri tekjur vegasjóðs það ár, eins og ég hef áður skýrt frá. Þar sem tekjur vegasjóðs eru nær óbreyttar, koma þessar útgjalda hækkanir til þess að valda nokkurri lækkun á ýmsum útgjaldaliðum. Þó helzt upphæðin til hraðbrauta, sem er 10 millj. kr., óbreytt, enda er verulegur hluti af upphæðinni ætlaður til þess að standa undir samningsbundnum afborgunum og vöxtum af lánum, sem búið er að taka til þessara framkvæmda.

Heildartekjur vegasjóðs verða samkv. áætlun árið 1965 263.7 millj. kr. Er það um 21.6 millj. kr. hærri upphæð, en var í vegáætlun 1964, en þar af eru 16.7 millj. eftirstöðvar frá fyrra ári. Til viðbótar þessu er nú gert ráð fyrir að taka lán til vegaframkvæmda, að upphæð 77.9 millj. kr., og skiptist það þannig, að 62.5 millj. fara til Reykjanesbrautar, 11.4 millj. til Siglufjarðarvegar og 4 millj. til Múlavegar. Aðrir vegir, sem heimilt er að taka lán til framkvæmda á þessu fjögurra ára tímabili, eru Vesturlandsvegur, hraðbrautin frá Reykjavík áleiðis upp í Kollafjörð, samtals 62.5 millj., Suðurlandsvegur samtals 60.1 millj., Hafnarfjarðarvegur 23 millj., og til þjóðbrauta: Austurlandsvegur um Möðrudal og Jökuldal samtals 6 millj., Suðurfjarðavegur um Vattarnes samtals 9 millj. og Heydalsvegur á árunum 1966–1968 samtals 3½ millj. kr.

Samkv. þessu, sem ég hef nú sagt, verður heildarfjármagn, sem varið verður til vegamála á árinu 1965, 341.6 millj. kr. Ætla ég, að það sé allmiklu meira fjármagn, en dæmi eru til um áður, að varið hafi verið til vegamála á einu ári. Eins og fram kemur á þskj. 348, gerir n. till. um nýja vegakafla, þeir verði teknir í þjóðvegatölu. Eru þær till. allar í samræmi við ákvæði vegal. um það, hvaða vegir skuli teljast til þjóðvega. Að öðru leyti eru till. n. hér um smávægilegar orðalagsbreytingar, sem hefur þótt rétt að gera varðandi örnefnatilvísanir og prentvillur, sem sézt hefur yfir að leiðrétta, þegar vegáætlunin var samþ. á síðasta þingi.

Sá þáttur, sem hvílir hvað þyngst á vegasjóði, er kostnaðurinn við vegaviðhaldið. Fer sú upphæð stöðugt hækkandi og í ár er gert ráð fyrir að verja 92.5 millj, kr. í þessu skyni. Er sú upphæð ein út af fyrir sig meira en öll fjárveiting var til vegamála á árinu 1959. Segja má, að það sé eðlileg afleiðing af lengingu akbrautanna og aukinni umferð. Ég tel hins vegar, að nokkuð ætti þó að koma á móti, þegar fjölförnustu vegirnir, eins og Reykjanesbrautin, Vesturlandsvegur að Kollafirði og Suðurlandsvegur hafa verið byggðir úr varanlegu efni. Ég efast ekki um, að þetta eru þeir vegakaflar, sem taka tiltölulega langmest til sín af fé til viðhalds.

Í grg. vegamálastjóra um viðhaldskostnað þjóðveganna koma fram ýmsar skýringar, sem rétt er að ræða nokkru nánar. Hann segir, að þeir rúmlega 800 km. sem bættust í tölu þjóðvega á síðasta ári, hafi að mestu leyti verið sýsluvegir, sem viðhald hafi verið vanrækt á árum saman vegna fjárskorts og raunar flestir byggðir af vanefnum í upphafi. Þegar þetta er haft í huga, sé ekki að undra, þótt viðhald þjóðveganna á s.l. ári hafi verið lakara en undanfarin ár.

Þá er það annað vandamál, sem snýr að viðhaldi veganna og skiptir ekki minna máli, en það eru hinir sívaxandi vöruflutningar með stórum vörubifreiðum frá Reykjavík til hinna fjarlægustu staða, til Ísafjarðar og allt til Hafnar í Hornafirði. Þessir flutningar, segir vegamálastjóri, að byggist m.a. á óeðlilega lágum þungaskatti og einnig því, að þessar bifreiðar eru að jafnaði hlaðnar langt yfir það, sem umferðarlögin leyfa, án þess að viðkomandi yfirvöld fái rönd við reist. Samkv. umferðarl, frá 1958 er leyfður 6 tonna öxulþungi á öllum opinberum vegum. Á örfáum aðalleiðum er þó leyfður nokkru hærri öxulþungi. Hins vegar hefur komið í ljós, að mikið af þeim bifreiðum, sem stunda vöruflutninga á langleiðum, eru með 8, 10 og allt upp í 12 tonna öxulþunga. Segir vegamálastjóri, að bifreiðar með slíkan öxulþunga risti beinlínis í sundur veikbyggða, gamla malarvegi og brjóti niður ræsi og brýr, sem byggð voru fyrir allt annan þunga. Þá telur hann, að vegalögreglan, sem annast eftirlit með því, að ákvæðum umferðarl. sé framfylgt, sé allt of fáliðuð til þess að geta sinnt þessu verkefni svo sem þörf er á. En þar við bætist, að dómsvaldið hafi í flestum tilfellum dæmt svo lágar sektir vegna brota á ákvæðum öxulþunga, að það hafi ekki haft tilætluð varnaráhrif. Verði ekki unnt að stemma stigu við þessari þróun, muni viðhaldskostnaður vega og brúa á ýmsum aðalleiðum vaxa úr hófi fram á næstu árum. En hvenær sem er geta hlotizt af þessu stórslys og hinar alvarlegustu afleiðingar, eins og öllum má ljóst vera. Ég tel, að Alþ. beri að taka þessar ábendingar vegamálastjóra til sérstakrar athugunar og gera síðan nauðsynlegar ráðstafanir, hvort heldur er með nýrri lagasetningu eða á annan hátt, sem að gagni má koma.

Ég vil að lokum endurtaka, að með samningu þeirrar vegáætlunar, sem hér liggur fyrir til afgreiðslu, hefur verið unnið mikið verk. Liggja nú fyrir meiri upplýsingar og heildaráætlanir í vega- og brúamálum en áður hefur átt sér stað. Af þessu leiðir, að nú er auðveldara að taka upp skipulagðar framkvæmdir og stærri áfanga í senn, eftir því sem aðstæður leyfa, en með því ætti að nýtast betur, en ella, það fjármagn, sem fyrir hendi er hverju sinni.

Sumir alþm. hafa látið í ljós, að þeir hafi orðið fyrir vonbrigðum með nýju vegal., þeir hefðu búizt við, að miklu meira fjármagn yrði til ráðstöfunar við nýjar byggingarframkvæmdir, en raun væri á. Hitt er þó staðreynd, að fjármagn til vegamála hefur verið stóraukið. Við erum að framkvæma og höfum í sumum tilfellum nýlokið við stærri átök í vegamálum, en dæmi eru til um áður í þessu landi. Það er svo annað mál, að nú, þegar vegáætlun til fjögurra ára liggur fyrir með öllum þeim upplýsingum, sem henni fylgja, verður enn ljósara en áður, að mörg aðkallandi verkefni bíða enn úrlausnar, verkefni, sem kosta mikið fjármagn, þegar til framkvæmda kemur.

Herra forseti. Ég legg svo til, að till. fjvn. á þskj. 348 verði samþykktar og vegáætlunin með þeim breytingum afgreidd sem ályktun Alþingis.