25.03.1965
Sameinað þing: 34. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í D-deild Alþingistíðinda. (2686)
100. mál, vegáætlun fyrir árin 1965--68
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Ég vil taka mjög undir það, sem fram hefur komið hér hjá þeim hv. þm., sem hafa talið, að brýna nauðsyn beri til þess að auka fjármagn til vegagerðarinnar almennt. Á það jafnt við um nýbyggingu þjóðvega, byggingu nýrra brúa sem og vegaviðhaldið, sem hefur verið svo af vanefnum gert, að til vandræða horfir í stórum landshlutum. Og ef það kæmi fyrir á næsta sumri, að mjög úrkomusamt yrði, hygg ég, að það yrði ekki komizt langt með það, sem nú er ætlað til vegaviðhalds. því að eins og þegar hefur komið fram í þessum umr., eru vöruflutningar á þungum bifreiðum svo miklir, að það ber nauðsyn til og miklu meiri nauðsyn, en áður að ætla vegaviðhaldinu mikið fjármagn. En eins og vegamálum er nú fyrir komið, þýðir aukið fjármagn til vegaviðhalds minnkandi fjármagn til nýbyggingar vega og byggingar brúa. Og þetta tel ég, að sé mjög illa farið. Þarna þarf að sjá fyrir því, að enda þótt vegaviðhaldið taki meira fjármagn til sín með hverju ári sem líður, eins og nauðsynlegt verður að telja, þarf jafnframt að tryggja, að það gangi ekki út yfir nýbyggingu þjóðvega eða byggingu brúa yfir torfær vatnsföll.
Það er kunnugt öllum hv. þm., að mörg sýslufélög og sveitarfélög hafa lagt mikið að sér hin síðari ár til þess að koma áfram nýbyggingu þjóðvega. Þetta hafa sveitar- og sýslufélögin gert með því að útvega lán og taka á sig miklar vaxtagreiðslur vegna þeirra, jafnframt því sem bæði sveitar– og sýslufélög og ræktunarsambönd hafa lánað tæki til vegagerðarinnar og ekki fengið greiðslu fyrir, fyrr en að mörgum árum liðnum. Og þetta atriði vildi ég ræða nokkru nánar.
Á þskj. 146, á bls. 34, stendur, með leyfi hæstv. forseta:
„Gert er ráð fyrir, að bráðabirgðalánin verði greidd að fullu á næstu tveimur árum. Miðað við það skiptast fjárveitingar til landsbrauta í vegáætlun þannig á áætlunartímabilinu.“
Nú vil ég leyfa mér að spyrja hæstv. ríkisstj., hæstv. samgmrh., sem er hér staddur, hvort það sé meining hæstv. ríkisstj. að krefjast þess, að þær skuldir, sem voru við s.l. áramót á landsbrautum, verði borgaðar upp að öllu leyti á næstu tveimur árum og jafnframt því verði ekki stofnað til nýrra skulda vegna hlutaðeigandi landsbrauta eða hvort meiningin sé sú, að gömlu skuldirnar séu borgaðar upp, vegaframkvæmdum haldið áfram með nýjum lántökum. Þetta hefur ekki komið ljóst fram í þeim umr., sem hér hafa fram farið, en ég tel, að þetta sé allþýðingarmikið mál fyrir fjöldamarga aðila, ekki sízt þá sem hafa stofnað til mikilla skulda til þess að ýta vegakerfinu áfram. Og í öðru lagi vil ég leyfa mér að spyrja hæstv. samgmrh. um það, hvort leyfðar verði nýjar lántökur til þeirra vegaframkvæmda, sem ekki er talað sérstaklega um lántökur til í þeirri vegáætlun, sem hér liggur fyrir á þskj. 348. Þar er gert ráð fyrir lántökum til vissra vegaframkvæmda, en ég vil leyfa mér að spyrja, hvort það komi ekki til mála, að leyfðar verði lántökur til annarra vega, en þar um getur og þau lán verði svo greidd upp með þeim fjárveitingum, sem annaðhvort kunna til að falla á þessu fjögurra ára tímabili eða falla til síðar. Þetta hefur einnig sína þýðingu. Og í þriðja lagi vil ég leyfa mér að spyrja: Verður leyft að byggja brýr, sem eru á áætlun þessa fjögurra ára tímabils, fyrr á tímabilinu, en gert er ráð fyrir, ef fjármagn fæst og einhverjir aðilar vilja taka að sér vaxtagreiðslur af þeim lánum, þar til fjárveitingin fæst greidd frá ríkinu?
Ég geri þessar fsp. vegna þess, að mér finnst svo mikið á skorta, að það sé hægt að gera það átak í vegamálum, sem nauðsyn krefur og ætlað er fjármagn til samkv. þeirri áætlun, sem hér liggur fyrir. Og ég veit, að hugur margra stefnir að því, að hraðar sé haldið áfram í þessum efnum, en fjármagn vegáætlana gerir ráð fyrir. Því er það nauðsynlegt, að það liggi ljóst fyrir nú þegar, hvers menn mega vænta í þessum efnum á komandi árum.