01.04.1965
Sameinað þing: 37. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í D-deild Alþingistíðinda. (2696)

100. mál, vegáætlun fyrir árin 1965--68

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Á þskj. 399 flytur ríkisstj. brtt. við vegáætlunina og fjalla þær um fjárveitingar til vegagerðar á Vestfjörðum. Þessar till. standa í beinu sambandi við þá framkvæmdaáætlun fyrir Vestfirði, sem unnið hefur verið að og tel ég rétt að gera hér nokkru nánari grein fyrir því máli.

Á síðasta þingi flutti hv. 4. þm. Vestf. till. til þál. um, að Alþ. skoraði á ríkisstj. að láta athuga möguleika á því, að Íslendingar hagnýti sér aðstoð frá viðreisnarsjóði Evrópuráðsins í þeim tilgangi að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Á vegum Evrópuráðsins er svokallaður viðreisnarsjóður eða Resettlement Fund, sem hefur það hlutverk að aðstoða Evrópulönd við lausn vandamála, sem stafa af tilflutningi fólks. Þessi sjóður gegnir hlutverki sínu með því að veita lán til framkvæmda, sem ætlað er að skapa nýja möguleika til lífsframfæris, þar sem þess gerist þörf vegna tilflutninga fólks. Þessari till. var vísað til fjvn. og mælti n. með samþykkt hennar, en till. varð ekki útrædd. Ríkisstj. lét samt kanna möguleika á lántöku hjá viðreisnarsjóðnum og var það gert með tilliti til fjáröflunar vegna framkvæmda á Vestfjörðum, en árið 1963 hafði Alþ. samþ. till. til þál. frá tveim þáv. þm. Vestfjarða, þeim Gísla Jónssyni og Kjartani J. Jóhannssyni, þál. um framkvæmdaáætlun til stöðvunar á fólksflótta. úr Vestfjarðakjördæmi. Skyldi ríkisstj. fela Framkvæmdabanka Íslands að semja 5 ára framkvæmdaáætlun til stöðvunar fólksflóttanum úr Vestfjarðakjördæmi. Á vegum Framkvæmdabankans hefur verið unnið mikið starf að þessari áætlanagerð. Því starfi er ekki lokið enn og heildaráætlun liggur ekki fyrir. En til þess að skapa möguleika á lánsfjármagni frá viðreisnarsjóðnum til framkvæmda á Vestfjörðum þegar á þessu ári ákvað ríkisstj., að flýtt yrði sérstaklega þeim þætti framkvæmdaáætlunarinnar, sem varðar samgöngumál.

Í lok febrúar s.l. hafði verið gengið frá framkvæmdaáætlun í samgöngumálum Vestfjarða, sem ríkisstj. samþykkti. Áætlunin er um framkvæmdir í vegamálum, flugvallargerð og hafnarmálum á næstu 4 árum, 1965–1968. Samkv. þessari áætlun er gert ráð fyrir framkvæmdum samtals að upphæð 171.6 millj. kr., sem skiptist þannig, að í hafnir eiga að fara 71.8 millj., í vegi 67.7 millj. og í flugvelli 32.1 millj. Það er gert ráð fyrir, að helmings af fjármagni til þessara framkvæmda verði aflað innanlands eða 85.6 millj., en 86 millj. eða 2 millj. dollara komi frá viðreisnarsjóði Evrópuráðsins, ½ millj. dollara á ári í 4 ár. Á grundvelli þessarar áætlunar í samgöngumálum, sem er hluti af væntanlegri heildaráætlun um framkvæmdir á Vestfjörðum, sótti ríkisstj. um 500 þús. dollara. lán á ári i 4 ár úr viðreisnarsjóðnum. Sjóðurinn hefur nú samþykkt þessa lánsbeiðni. Lánið er til 15 ára með 6% vöxtum auk kostnaðar. Lánið er afborgunarlaust fyrstu 5 árin.

Samkv. vegal. er gert ráð fyrir, að í vegáætlun sé gerð grein fyrir þeim framkvæmdum, sem fyrirhugaðar eru á tímabilinu og þeirri fjáröflun, sem gert er ráð fyrir þeirra vegna. Með tilliti til þessa eru bornar fram brtt. á þskj. 399 vegna fyrirhugaðrar lántöku hjá viðreisnarsjóðnum til vegaframkvæmda á Vestfjörðum. Brtt. fela í sér, að heimilað verði að vinna að lagningu þjóðbrauta og landsbrauta á Vestfjörðum fyrir 34 millj. kr. Ég tel þess ekki þörf að lesa upp till. sundurliðaða, þar sem hún liggur fyrir hv. þm. En ég vil aðeins til frekari skýringar á gangi þessa máls og málsmeðferð geta þess, að ætlunin var að skýra frá þessari framkvæmdaáætlun fyrir Vestfirði í sambandi við heildarframkvæmdaáætlunina fyrir árið 1965. En þar sem vegáætlunin er nú komin til lokaafgreiðslu hér í hv. sameinuðu þingi, þykir óhjákvæmilegt að taka þetta bæði inn í hana og gera nú þegar á þessu stigi í sambandi við þessar brtt. grein fyrir þessum þætti málanna.