01.04.1965
Sameinað þing: 37. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í D-deild Alþingistíðinda. (2709)

100. mál, vegáætlun fyrir árin 1965--68

Forseti (BF) :

Fram er komin skrifleg brtt. frá Geir Gunnarssyni o.fl., svo hljóðandi: „Við 13. lið I. Hraðbrautir, 3. liður orðist svo: Hafnarfjarðarvegur: a. Kópavogur-Engidalur 1967 17½ millj., 1968 7½ millj, b. Kópavogsháls 1965 35 millj., 1966 35 millj.“

Fyrir þessari brtt. þarf afbrigði og verður reynt að leita þeirra.

Það virðist vera vonlaust að fá samþ. afbrigði fyrir fram kominni skrifl. brtt. og verður umr. haldið áfram.