01.04.1965
Sameinað þing: 37. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í D-deild Alþingistíðinda. (2711)

100. mál, vegáætlun fyrir árin 1965--68

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Það, sem ég bæti nú við þessar umr., verður í þeim dúr að bæta heldur við, en draga úr aðfinnslum gagnvart hæstv. samgmrh. vegna þessarar vegáætlunar, sem hér er til umr., ef hún á að skrifast á reikning hans öðrum mönnum fremur í stjórnarliðinu, sem er sennilega ekki ósanngjarnt að gera.

Ég skal taka það strax fram, að þegar ég sá þessa vegáætlun til fjögurra næstu ára, þá hnykkti mér við. Ég ætlaði naumast að trúa mínum eigin augum um, að það gæti verið svo, að fjárframlögin til nýbyggingar vega færu heldur lækkandi frá ári til árs, heldur en hækkandi og varð mér þá ljóst, að raungildi talnanna færi hraðminnkandi frá ári til árs. En það fór ekkert á milli mála við nánari athugun, svona var þetta, svona er þetta. Og það er það, sem hefur verið uppistaðan í þeim aðfinnslum, sem hér hafa verið hafðar í frammi í umr. um vegáætlunina og það er ómögulegt að segja annað en það, þegar við lítum til baka og sjáum, að sérhver útgjaldaliður fjárl. hefur farið síhækkandi frá ári til árs, ef ekki átti stórlega að draga úr verðgildi fjárframlaganna og svo blasir þetta við í einum þýðingarmestu málum fjárl., samgöngumálunum, að fjárveitingarnar til nýbyggingar vega eiga að fara ekki aðeins lækkandi að krónutölu, heldur enn meir auðvitað að raungildi, þá hlýtur mönnum að bregða í brún, þegar allar aðstæður eru þannig í landinu, að mikil þörf hefði verið á því, að aukin fjárframlög yrðu veitt og meiri átök gerð.

Ég held, að það sé í raun og veru fyllilega forsvaranlegt, þó að hv. þm. hafi hér í umr. látið þau orð hrjóta, að þessi vegáætlun væri hneyksli. Það er hún. Og ég hefði ekki lagt þm. það út nema til hræsni, ef þeir hefðu ekki skýrum orðum tjáð hugsun sína og afstöðu gagnvart þessari vegáætlun. Það bar þm. vitanlega að gera. Og ég veit, að það hefur ekki komið hæstv. samgmrh. á óvart, þó að dómar þm. yrðu harðir um þetta „pródúkt“.

Ég læt þetta nægja, af því að nú er liðið nokkuð á kvöld, til þess að tjá afstöðu mína til vegáætlunarinnar.

Ég kemst þá ekki hjá því þessu næst að víkja nokkuð að þeim hluta þessarar áætlunar, sem að Vestfjörðum sný, og umr., sem spunnizt hafa af því, hvernig staðið hefur verið að þeim málum að þessu sinni.

Það var enginn skoðanamunur, enginn ágreiningur milli okkar Vestfjarðaþingmanna á þeim tveim viðræðufundum, sem við áttum um það verkefni okkar að reyna að skipta fjárveitingunum til vega á Vestfjörðum. Okkur kom öllum saman um, að það verk væri erfitt og vandasamt vegna þess, hve upphæðirnar væru hryggilega lágar.

Ég verð að segja það, að stjórnarþingmennirnir báru sig nálega eins illa og við stjórnarandstöðuþingmennirnir, þegar þeir stóðu frammi fyrir þessu verkefni. En þegar þeir höfðu játað þetta, hversu upphæðirnar væru hryggilega smátt skornar, þá fóru þeir með varúð að láta okkur skilja, að það væri nú samt sem áður ekki alveg svona slæmt. Það stæði til að hjálpa dálítið upp á sakirnar í samgöngumálum Vestfjarða að öðrum leiðum og þá fórum við auðvitað að verða forvitnir og spyrja: Hvernig, hvernig á það að verða? Jú, þá var okkur tjáð, að það hefði um skeið verið unnið í Efnahagsstofnuninni að undirbúningi viðreisnaráætlunar Vestfjarða og nú væri svo komið, að einn þáttur hennar væri langt til fullgerður, þó ekki alveg, og í því sambandi var upplýst, að miklar vonir stæðu til, að ríkisstj. fengi lán úr viðreisnarsjóði Evrópu, að upphæð 32 millj. kr., sem varið yrði til samgöngumála á Vestfjörðum á næstu fjórum árum. Það er rétt, sem hv. 4. þm. Vestfjarða (ÞK) sagði hér áðan, að það var ekki alveg fullyrt, að lánið væri fengið, en allar líkur taldar á því. En því var þá bætt við, að það skipti raunar ekki máli í þessu sambandi, því að ríkisstj. væri búin að skuldbinda sig til að fullnægja þessum þætti viðreisnaráætlunar Vestfjarða um 32 millj. kr. framlög, þó að þessi lántaka brygðist. Þannig var því slegið föstu, að þarna kæmi til að öðrum leiðum 32 millj. kr. upphæð og leysti nokkuð úr þeim vanda, sem við stóðum þarna frammi fyrir. Hins vegar var það játað af stjórnarþingmönnunum, stjórnarstuðningsmönnunum, sem fluttu okkur þennan boðskap, að vandinn með skiptingu vegafjárins á Vestfjörðum minnkaði raunar ekki að ráði við það, að það hillti undir þessar 32 millj., því að það væri skilyrði a.m.k., ef lánið fengist úr viðreisnarsjóðnum, að á móti kæmi jafnmikið framlag innlent og þá yrðum við, hvort sem okkur líkaði það betur eða verr, að leggja fjárframlög fjárlaga til samgöngumála á Vestfjörðum til þeirra vega, sem þeir vísu menn uppi í Efnahagsstofnun ákvæðu að skyldu fá framlögin úr viðreisnarsjóði Vestfjarða. Þannig yrðu mótframlögin á fjárl. bundin af ákvörðunum þeirra manna, sem hefðu verið að semja viðreisnaráætlunina í pukri uppi í Efnahagsstofnun.

Þá fórum við að spyrjast fyrir um það, hvaða vegir það væru, sem þeir væru búnir að útvelja með starfsmönnum Efnahagsstofnunarinnar fjögur næstu ár til þess að eiga að fá fjárframlögin. Og þá lét einn af hv. þm. stjórnarliðsins, Sigurður Bjarnason, skína á horn af miklum pappír upp úr vasa sínum og dró þar upp eitt mikið plagg, sem mun hafa verið eitt af skjölum Efnahagsstofnunarinnar, áætlun um það, hvernig viðreisnarsjóðsféð ætti að skiptast á vegi á Vestfjörðum. Varð mér þá ljóst, að stjórnastuðningsþingmennirnir eru búnir að taka þátt í því að skipta vegafénu á Vestfjörðum sem mótframlögum gegn þessu fé og ákveða þannig fram í tímann skiptingu nálega alls vegafjár á Vestfjörðum næstu fjögur ár. Þetta fannst mér óbróðurlega að verki verið, þegar nálega ekkert var þá eftir til þess að skipta til annarra vega. Ég skal ekkert fara í launkofa með það, ég er maður hreinskilinn, að mér líka ekki þessi vinnubrögð. Ég tel, að þm. eins og sama kjördæmis, hvort sem þeir þessa stundina eða hina eru stjórnarstuðningsmenn eða í stjórnarandstöðu, þar sem ráð er fyrir því gert, að skipting fjár, hvort sem er til vega eða annars, skuli gerast á sameiginlegum fundum þm. allra fyrir kjördæmið, eigi ekki að hafa þau vinnubrögð, að það verði uppvíst, þegar að lokum er komið, að meiri hl. þm., þeir sem styðja stjórnina, sé búinn að ganga frá allri skiptingu á fénu og binda fastmælum, hvernig það skuli vera. Þá er það ekkert nema sýndarmennska, blekking, að mæta á fundi ásamt stjórnarandstöðuþm. og segja: Nú skulum við fara að skipta, — þegar það er búið. Ég minnist þess, að á þessum okkar fundi impraði Hermann Tómasson á því, að sér þætti miður, að með þessu yrði ekki hægt að ná saman veginum um Strandasýslu norður í Árneshreppinn á skemmri tíma en 3–4 árum, þætti það illt, ef ekki væri hægt að haga skiptingunni svo, að þetta mætti takast á 2 árum. Það var þess vegna hans ósk, að við reyndum að finna leiðir til þess, að það mætti takast og ég lái honum það ekki. Ég man, að hv. 3. þm. Vestf. impraði á fjárveitingu til eins vegar, sem hann sagði að hefði ekki fengið neina fjárveitingu í ein 6–7 ár, en þyrfti mikilla umbóta við og hefði ástand þess vegar valdið slysum. Ég minntist einnig á að fá smáfjárveitingu til eins vegar. Þetta voru allar okkar óskir um breytingar. Þessu stungu okkar kæru félagar á sig, fóru. Sumir þeirra þinguðu svo í fjvn. um málið. Þegar við svo sáum nál. og till. frá fjvn., varð okkur ljóst, að ekki ein einasta ósk okkar minni hl. í þingmannahóp Vestfirðinga hafði verið tekin til greina, — ekki ein einasta, en hins vegar sagt í nál., að skiptingin á vegafé í kjördæmunum væri öll gerð í samráði við þm. kjördæmanna. Eins og hér var í pottinn búið, var þetta ósatt að því er snerti Vestfirði, því að það hefur einmitt verið alveg forðazt að gera það í samráði við okkur og við þeim fáu óskum, sem við bárum fram um breytingar, var ekki orðið, — ekki einni einustu. Það er ekkert að undra, þó að það verði nokkrar umr. um það, þegar ekki er beitt bróðurlegri vinnubrögðum eða viðkunnanlegri, en þetta. Við í minni hl. mættum vera meira en lítið lítillátir og auðmjúkir, ef við teldum ekki ástæðu til að skýra frá þessu.

Það hefur mikið verið um það rætt, hvort það sé rétt, sem hv. 3. þm. Vestf. hafði sagt hér í dag, að það hafi komið fram á þessum okkar viðræðufundi, að ekki væri til þess ætlazt, að framlögin úr viðreisnarsjóði Vestfjarða kæmu inn á vegáætlunina. Það er þó sannleikur, sem engum tjáir að neita, að þetta bar á góma og einn af stjórnarstuðningsþm. sagði, að það væri ekki ætlunin, að þetta kæmi á vegáætlunina, lánsféð. Og það var meira að segja rökstutt, að það væri með tilliti til þess, að þá mætti búast við svipuðum kröfum úr öðrum kjördæmum. Þessu tjóar ekki að neita, þetta fór þarna fram. Ég hefði ekki talið ástfæðu til að segja frá því, nema af því að hér er búið að bera ósannindi á einn af mínum þingbræðrum, sem hafði þarna sagt rétt frá, því að einmitt þegar við höfðum um þetta rætt, var bent á, að þetta stæðist tæpast, að halda lánsfénu þarna utan við, því að það bryti í bága við 10. gr. sjálfra vegal., þar sem segir: „Skal áætlunin annars vegar gera grein fyrir þeim framkvæmdum, sem fyrirhugaðar eru á tímabilinu, en hins vegar þeirri fjáröflun, sem gert er ráð fyrir vegna þeirra.“ Það að ætla að stinga undan hjá vegáætluninni lánsfé var beint brot á 10. gr. og einmitt þegar þessi orðaskipti okkar fóru fram, var á það bent. Seinna sáum við svo nál, meiri hl. fjvn. Þar kemur fram framarlega í nál., að fjvn.-mönnum var þetta auðvitað fyllilega ljóst, því að þar stendur svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Svo sem gert er ráð fyrir í hinum nýju vegal., eru nú gerðar till. um allar þær framkvæmdir, sem fyrirhugaðar eru á fjögurra ára tímabilinu. Gegnir þar sama máli um þær framkvæmdir, sem unnar verða fyrir fjárveitingar úr vegasjóði, og þær framkvæmdir, sem vinna skal með væntanlegu lánsfé.“

Í þriðja lagi kemur þetta svo í ljós á bls. 10 á þskj. 348, þ.e.a.s. brtt. fjvn., því að þar stendur:

„Heimilt er að vinna að lagningu hraðbrauta, þjóðbrauta og landsbrauta, svo sem rakið er hér á eftir, ef fjár verður aflað til framkvæmdanna.“

Gagnályktun af þessu rökrétt er sú, að ekki sé heimilt að vinna að neinum framkvæmdum öðrum, en hér séu taldar á eftir og fjár sé aflað til á vegáætluninni.

Það var þegar þetta lá allt saman fyrir, sem við hv. 3. og 1. þm. Vestf. töldum algerlega ógerlegt annað en að bera fram brtt. við vegáætlunina, þar sem gert væri ráð fyrir, til hvaða vega rynni þetta fé úr viðreisnarsjóði Vestfjarða, 32 millj., sem höfðu verið nefndar við okkur á fundi. Þess vegna ákváðum við að flytja okkar brtt., því að ella var okkur ljóst, að það var margskjalfest, að ef við flyttum engar slíkar till., var hægt að segja: Nú, þið fluttuð engar till. og höfðuð þó fyrir ykkur á þremur þskj., hvorki meira né minna en á þremur þskj., að það væri óheimilt að ráðast í nokkrar aðrar framkvæmdir, en nefndar væru á vegáætluninni og gert ráð fyrir fjárútvegun. — Við vorum því algerlega til neyddir að flytja okkar brtt., svo sem við gerðum, eftir að málið lá svona fyrir.

Ég held, að það fari ekkert á milli mála, að á þessu stigi málsins var það algerlega ákveðið, að viðreisnarsjóðsféð ætti að fara utan við vegáætlunina, enda kom það í ljós á þessum fundi okkar Vestfjarðaþm., þegar ég lét í ljós, að ég hefði heyrt um þetta mál á skotspónum. Ja, hvaðan gat það borizt? Jú, þeir upplýstu það, okkar félagar úr stjórnarstuðningsliðinu. Samgmrh. upplýsti það aðspurður á fundi fjvn., að það þyrfti ekki að hugsa sérstaklega um lánsfjárútvegun fyrir Vestfirði, það yrði leyst með öðrum hætti. Þetta hafði ég einmitt frétt út af fundi fjvn., áður en Vestfjarðaþingmannafundurinn var haldinn. Þar með hafði hæstv. samgmrh. tjáð fjvn. það, að fyrir lánsfé ætti að sjá til vissra vegaframkvæmda á Vestfjörðum utan við vegáætlunina, það yrði gert með öðrum hætti, en í sambandi við afgreiðslu vegáætlunar.

Ég held, að það sé því alveg fullkomlega sannað, að það er fyrst eftir umr. s.l. mánudagskvöld, að hik kemur á stjórnarliðið og hæstv. ráðh. um að afgreiða þessi mál svona afbrigðilega, halda þarna milljónatuga fjárveitingum utan við vegáætlun. Og þá var ætlunin að slíta umr. En þar kom babb í bátinn, og umr. var frestað og þetta babb, sem var í bátnum, var þetta. Ég fagna því. Það minnkar enginn maður af því að gera heldur að athuguðu máli það, sem rétt er, heldur en lemja hausnum við steininn og rota sig á því að gera rangt. Og hæstv. ráðh. á það og hans samstarfsmenn, að þeir hafa nú heldur kosið að hverfa frá því, sem þeir ætluðu að gera rangt og gera það nú með formlega réttum hætti og það hefur gerzt hér í dag með flutningi og boðskap hæstv. fjmrh. og þeirri till., sem þeim boðskap svo fylgdi. Samkv. því fer þetta viðreisnarsjóðsfé Vestfjarða inn á vegáætlunina og er ætlað þar að leysa ákveðin, aðkallandi og nauðsynleg verkefni í vegamálum okkar. Skal ég ekkert skorast undan því að fagna því, að þetta fé er í fyrsta lagi útvegað, skiptir mig engu máli, hvort það hefði heldur verið útvegað frá Washington eða Moskvu eða frá viðreisnarsjóði eða flóttamannasjóði Evrópu. Það gerir allt saman sama gagnið, hvaðan sem það kemur, 32 millj. til vegamála á Vestfjörðum á næstu 4 árum er góður fengur, enda þörfin mikil.

Hitt kann ég ekki við, að hv. 4. þm. Vestf., sem talaði, eftir að hv. 3. þm. Vestf. hafði hér talað í kvöld, sagði að Sigurvin Einarsson hefði talað af fullkomnu ábyrgðarleysi og vanþakkað þetta átak. Þetta er með öllu ómaklegt. Hv. 3. þm. Vestf. hafði um þessa fjárútvegun, þessar 32 millj. til vegamálanna á næstu 4 árum, svo mikil lofsyrði, að ég hef þar engu við að bæta a.m.k. Vissulega taldi ég þetta þakkarvert, en það er ekki hægt að ásaka hv. 3. þm. Vestf. fyrir það, að hann hafi talað sem vanþakklátur maður. Það var síður en svo.

Hér er talað um, að til hafnarmála, vegamála og flugvalla á Vestfjörðum eigi að koma 171.4 millj. kr. Um það hefur verið spurt hér, hvort þetta sé fé, sem eigi að koma að sem lánsfé með sama hætti og upphæðin til vegamálanna eða hvort þarna séu meðtalin nú ákveðin mótframlög á vegáætluninni fyrir næstu ár og að útvegaða féð sé aðeins helmingur af þessari nefndu upphæð, 171.4 millj. kr. Ég stend í þeirri meiningu, að hér sé aðeins um að ræða útvegað fé, sem nemi helmingnum af þessari upphæð, 171.4 millj., hitt séu fjárframlögin til vega og hafna og flugvalla á fjárl. nú og á næstu árum. Ég held, að þetta sé rétt, mundi þá heldur kjósa, að það væri svo, að hér væri ekki verið að tvítelja sama féð, heldur væri aðfengna upphæðin 171.4 millj. og skyldi ég þá enn bæta nokkrum lofsorðum við til hæstv. ríkisstj. fyrir að hafa útvegað það fé. En það verður áreiðanlega leiðrétt, ef það er misskilningur, að hér séu innifalin væntanleg framlög á fjárl. til hafnargerða, vegagerða og flugvalla og hér sé ekki um heildarupphæð að ræða, heldur aðeins um þá upphæð, sem viðreisnaráætlunin bætir við aðrar fjárveitingar.

Þá virðist það, eins og það bögglast fyrir okkur kannske að skilja þetta rétt, hafa bögglazt fyrir hv. 11. landsk. þm. að skilja till. okkar hv. 3. þm. Vestf. Þær eru margar og þær eru settar upp af ágætum starfsmanni þingsins. En kjarni þeirra er sá, að þegar við vissum um, að afla átti 32 millj. kr. lánsfjár til framkvæmda í vegamálum á næstu 4 árum til ákveðinna, mjög fárra vega, 5 vega, ef ég man rétt, og allir hinir að verða afstanz, þá lögðum við málin niður fyrir okkur á þennan veg: Ef tekið er erlent lán upp á 32 millj., er þá skynsamlega með það farið, með því að dreifa framkvæmdinni, sem fyrir þetta lánsfé á að koma, á 4 ár? Er ekki skynsamlegra að gera áætlunina þannig, að lánsfénu verði varið til stórframkvæmda í þessum höfuðáföngum í þessum þýðingarmiklu vegum á 2 árum, á þeim 2 árum, sem þm. eru yfirleitt að hugsa um, þegar þeir gera till. í sambandi við þessa vegáætlun, því að hitt eru meira tölur út í loftið, sem þeir setja á pappír fyrir þriðja og fjórða áætlunarárið? Menn vita, að það verður að endurskoða þessa áætlun eftir tvö árin. Framkvæmdatímabilið, sem um er að ræða, er því næstu tvö ár. Og hvers vegna er það skynsamlegra að vinna fyrir 32 millj. á næstu tveimur árum, heldur en dreifa því á fjögur ár? Það er m.a. með tilliti til verðbólguófreskjunnar. Þetta vegafé væri búið að missa mikið af gildi sínu, ef helmingur þess ætti að bíða til áranna 1967 og 1968. Þess vegna er það uppistaðan í okkar till., að 16 millj. af vegafénu fari til framkvæmda á yfirstandandi ári, 1965 og aðrar 16 millj. — og þar með er því lokið — til vegaframkvæmda á Vestfjörðum á árinu 1966. Þetta gerði okkur mögulegt einmitt að nota á annan hátt og til fjárveitinga til miklu fleiri vega það fé, sem koma skal á fjárl., innlenda féð til vegaframkvæmda á Vestfjörðum og það er með því fé, sem við leggjum til að ráðizt sé í vegaframkvæmdir á einum 20 vegum á Vestfjörðum, sem ekki áttu að fá neinar fjárveitingar vegna þess, hvað þessir fáu aðalvegir áttu að taka mikið upp, um 80–90%, bæði af lánsfénu og vegasjóðsfénu. Þetta á ekki að vera torskilið mál, en þetta er meginkjarni till., að taka lánsféð og verja því til meginframkvæmda á næstu tveimur árum, en dreifa því ekki á fjögur og fá þá meira laust af vegasjóðsfjárframlögunum til hinna minni fjárveitinga til hinna dreifðu vega úti um byggðirnar. Það hefur þegar verið lagt þannig út af íbúum Vestfjarða, að ef eingöngu væri varið fé til vegarins sunnan Þingmannaheiðar og vegarins frá flugvelli á Patreksfirði norður um Litladal og Hálfdán til Bíldudals og síðan Gemlufallsheiði og Breiðadalsheiði til Ísafjarðar ásamt Bolungarvíkurvegi og vegi til Súgandafjarðar og Flateyrar, væru að verulegu leyti þessir vegir teknir fram úr, að þeir væru að nokkrum hluta sportvegir, en ekki litið við neinum vegum, kannske enn þá þýðingarmeiri, sem greinast út frá þessum vegarstofni um byggðirnar, þjónustuvegum fólksins. Ég veit, að það er ekki hugsað þannig af okkar þingbræðrum í þingmannahópi Vestfirðinga, að þessir vegir séu látnir sitja fyrir, af því að þeir séu ekki aðeins nytjavegir fólksins, heldur sportvegir umferðarinnar, almennu umferðarinnar. Það er af því, að þessir vegir eru ekki uppbyggðir vegir og ef þeir eru ekki endurbættir, er vegakerfið á Vestfjörðum ósamstætt og lítt nothæft nema um hásumarið og þessar framkvæmdir eru því nauðsynlegar. En það er skynsamlegra að haga framkvæmdum eins og ég og hv. 3. og 1. þm. Vestf. leggjum til, að átakið sé gert í þessum vegum á tveimur árum og síðan sé varið meginhluta af innlenda fénu í umbætur á hinum vegunum jafnframt.

Það mun enginn hafa misskilið hins vegar brtt. okkar á þskj. 379, sem er um það að verja 300 þús. kr. til þess að brúa Steinadalsá í Strandasýslu. Hún þarf ekki útskýringa við. En það er fátt og smátt um fjárveitingar á þessari vegáætlun til brúargerða á Vestfjörðum og við töldum því ekki neina goðgá að flytja þarna brtt. um eina litla brú.

Með þessu, sem ég nú hef sagt, skal ég láta máli mínu lokið og tel raunar, að tilefni hinna miklu umr. milli okkar Vestfjarðaþm. um vegáætlun að þessu sinni sé í fyrsta lagi óánægja með vegáætlunina sjálfa og í annan stað óánægja með það, hvernig að málinu var staðið af okkar félögum. Ef þingmannahópurinn á Vestfjörðum á að annast skiptingu fjárins, er það ekki viðkunnanlegt, að fjórir þeirra séu búnir að halda hvern fundinn eftir annan og ákveða fyrir fullt og fast alla skiptinguna, en koma síðan samt á tvo fundi með okkur og þykjast vera að skipta eða þykjast ætla að fara að skipta því, sem búið er að skipta og geta þannig ekki tekið til greina neina till., smáa eða stóra, frá okkur. Í annan stað að hafa unnið með opinberri stofnun hér í borginni að ákveðinni áætlun um þýðingarmikið mál í okkar kjördæmi, en hafa minni hl. þm., eins og þeir væru einhverjir hættulegir fjandmenn þessara mála, alveg utan við. Og í sambandi við þetta kemst ég ekki hjá að segja það hér, að mér mislíka einnig þau vinnubrögð opinberrar stofnunar að gauka skjölum, þýðingarmiklum skjölum til upplýsinga á vissum þýðingarmiklum kjördæmismálum, að stuðningsmönnum stjórnarinnar einum, svo að þeir þurfi bara að fara laumulega með þessi skjöl, en halda þeim leyndum fyrir þm. minni hl. Þetta eru engin embættisleg vinnubrögð og verður að vita þau, en þannig hefur Efnahagsstofnunin í þessu tilfelli hagað sér.

Mín síðustu orð skulu svo vera þau, að ég tel, að það hafi verið mjög mikil þörf á því að útvega lánsfé, eins og lofað var fyrr á þinginu í vetur, lánsfé til vegamála á Vestfjörðum og ég fæ nú ekki betur séð en það hefði verið full þörf á því að lita til Austfjarðanna eitthvað með líkum hætti, því að því verður ekki neitað, að það er mjög líkt ástatt með vegamálin á Vestfjörðum og Austfjörðum. Fjarlægðirnar eru miklar í þessum landshlutum, fjalllendi mikið og ástandið í vegamálum þannig mjög áþekkt í báðum þessum landshlutum. Ég tek því undir það með hv. 5. þm. Austf., að Austfirðingum hlýtur að hitna í hamsi við það að fá ekki svipaða afgreiðslu á sínum málum á þessu þingi og við Vestfirðingar höfum þó fengið. Það má segja, að það sé í mörg horn að líta. hjá fjárveitingavaldinu, en þarna er um tvo landshluta að ræða, sem erfitt er að gera upp á milli og ómöguleg leiki, held ég, að það geti nú varla verið að útvega utanlands eða innan 32 millj. á 4 árum, eins og þetta er nú fyrirhugað til okkar. Þess vegna kemst ég ekki hjá að viðurkenna það, að mér finnst þarna vera gert upp á milli tveggja landshluta, sem standi mjög svipað að vígi og hefðu haft mjög svipaða þörf báðir. Þess vegna skil ég þm. Austfjarða mjög vel og tek undir þeirra mál og vil enn skírskota til hæstv. samgmrh. og ríkisstj. í heild, hvort þeir gætu nú ekki fullnægt réttlætinu betur og drýgt þannig meiri dáð, en þeir jafnvel hafa gert með þessari útvegun til vestfjarða. Er ekki til meira í viðreisnarsjóðnum gegn góðum tryggingum hins ágæta íslenzka ríkis?