05.05.1965
Sameinað þing: 47. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í D-deild Alþingistíðinda. (2737)

108. mál, síldarleit fyrir Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum

Einar Ingimundarson:

Herra forseti. Ég vil aðeins nota tækifærið til að þakka hv. allshn. fyrir afgreiðslu hennar á þeirri till., sem hér er til umr. Einnig get ég lýst yfir því fyrir mitt leyti, að ég get alveg sætt mig við það orðalag, sem n. hefur ákveðið á tillgr., enda er það að mestu samhljóða tillgr., eins og hún var orðuð upphaflega.