03.03.1965
Sameinað þing: 28. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í D-deild Alþingistíðinda. (2743)
90. mál, síldarflutningar og síldarlöndun
Ingvar Gíslason:
Herra forseti. Ég hef áður hér á hv. Alþingi við annað tækifæri lýst þeirri skoðun minni, að síldarflutningar séu nú eitt hið mikilvægasta mál Norðlendinga. Það er alkunna, að atvinnugrundvöllur norðlenzkra sjávarplássa er að verulegu leyti háður síldarvinnslunni. Það eru bæði verksmiðjur og síldarplön, sem um er að ræða. Slík atvinnutæki eru yfirleitt uppistaðan í atvinnu í norðlenzkum sjávarplássum. En nú undanfarin ár, má segja, hefur skapazt mjög alvarlegt ástand á Norðurlandi, vegna þess að fiskur hefur brugðizt þar á miðum, bæði þorskfiski og síldveiði. Af þessu hefur skapazt mjög slæmt atvinnuástand og ég hygg, að atvinnuástandið verði trauðla bætt með öðru, a.m.k. ekki fyrst um sinn, heldur en því að sjá fiskverkunarstöðvunum og síldarstöðvunum fyrir hráefni og ég hygg, að síldarflutningar séu þar efst á blaði. Að svo miklu leyti sem eigin geta síldarverksmiðja og síldarsaltenda á Norðurlandi hrekkur ekki til, verður hið opinbera að hlaupa hér undir bagga. Ég tek því eindregið undir þá stefnu, sem fram kemur í þáltill. Það er of mikið í húfi til þess að láta sem ekkert sé.
Það er áreiðanlega ekki frá öðrum tekið, þótt Norðlendingar fái sinn skerf af síldaraflanum, þegar þess er gætt, að á Norðurlandi hefur afkoma manna um áratuga skeið verið að verulegu leyti byggð á síldarvinnslu og allt atvinnulíf fjölmargra staða þar er, ef svo má segja, innstillt á síldarvinnsluna. Og auk þess er verksmiðjukostur á Norðurlandi langmestur, miðað við aðra landshluta og þar eru einnig stærstu og mestu síldarplönin. Það er auðvitað fagnaðarefni, hve síldin ætlar að reynast Austfirðingum mikil lyftistöng, og ekki vil ég hafa af Austfirðingum möguleikana til að notfæra sér hinn mikla síldarafla. En á hitt vil ég leggja ríka áherzlu, að Norðlendingum er það lífsnauðsyn, að áframhald geti orðið á því, að þeir njóti síldaraflans að sínum hluta.
Við stöndum að vísu frammi fyrir því vandamáli að leggja verulegt fjármagn til síldarflutninganna, en ég held þó, að það sé leysanlegt spursmál, ef eindreginn vilji er fyrir hendi og sameinuðu átaki beitt í því skyni. Vandamál fjármagnsins er þó hverfandi hjá vandamáli atvinnuleysisins á Norðurlandi. Allir sjá, hvert langvarandi atvinnuleysi leiðir um síðir. Það leiðir til þess, að þessir staðir tæmast af fólki. Það er ekkert við að vera og fólk yfirgefur eignir sínar, staðfestu sína og með því fara milljónir í súginn og það skapar enn ný vandamál. Auk þess er það þjóðhagslega séð, meira en hæpið að láta stórvirk, vönduð og dýr atvinnutæki standa auð og aðgerðalaus. Í því er áreiðanlega mjög lítil fyrirhyggja.
Ég er þeirrar skoðunar, að verksmiðjurnar á Norðurlandi. a.m.k. margar hverjar, ættu að hafa sjálfar sæmileg skilyrði til þess að bera stóran hluta af flutningskostnaðinum. Það fer m.a. eftir því, hvernig að þeim yrði búið um lánakjör vegna þess kostnaðar, sem af flutningunum leiðir. Ef t.d. væri hægt að dreifa stofnkostnaði í flutningatækjum yfir nógu langan tíma, er það mikilvæg aðstoð. Svo kemur og hitt til, að margar verksmiðjanna eru löngu afskrifaðar og byggðar á hagstæðum tíma. Má því segja, að þær ættu að geta keypt hráefni dýrara verði.
Alla þessa hluti þarf að athuga. En meginmálið er það, að atvinnuástandið á Norðurlandi er slíkt, að það verður að finna lausn á því og þar koma síldarflutningar af fjarlægum miðum einna helzt til greina. Frá tæknilegu sjónarmiði eru flutningar á bræðslusíld auðveldir, ekki sízt að sumarlagi. Tæknilega séð eru litlar sem engar hindranir á því máli. En það er bara ekki nóg að flytja bræðslusíld. Það er líka nauðsynlegt að sjá síldarsöltunarstöðvunum fyrir hráefni. Það er vafalaust höfuðvandamálið. En með skipulagi og einhverri fjárhagsaðstoð mætti þó leysa það mál einnig. Það er alls ekki dæmalaust, að söltunarsíld hafi verið flutt austan fyrir land allt til Eyjafjarðarhafna.
Ég endurtek það, að ég tel þetta mál eitt hið mikilvægasta fyrir Norðurland og það er nauðsynlegt að gera ráðstafanir fyrir næstu síldarvertíð til þess að stórauka síldarflutninga. Það er vonandi ekki nema stundarfyrirbæri, að síldin leggst frá Norðurlandi og það yrði síðar talið glapræði, ef þetta stundaraflaleysi hefði verið látið valda atvinnulegri upplausn í norðlenzkum sjávarplássum með þeim afleiðingum, sem slíku hljóta að fylgja.